Morgunblaðið - 29.09.2008, Síða 29

Morgunblaðið - 29.09.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 29 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Heilsa Léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuðum LR-kúrinn er ótrúlega einfaldur og öflugur. Aukin orka, betri svefn og aukakílóin hverfa. Dóra 869-2024, www.dietkur.is Atvinnuhúsnæði Til leigu nýinnréttuð skrifstofu- herbergi í 104 Rvk. Securitas- öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð samnýting. Uppl. í síma 896 9629. Listafólk - hönnuðir - einyrkjar Nokkur herbergi- vinnustofur - skrif- stofur, um 20 m2 í snyrtilegu húsnæði í Hafnarfirði. Sameiginl. kaffistofa. Verð 20 - 27.000 Uppl. í síma 898 7820 Hafnarfjörður - 40 fm - laust Til leigu 40 fm skrifstofa eða vinnu- stofa á 1. hæð í snyrtilegu húsnæði. Verð kr. 52.000 á mánuði m. rafm. og hita. Uppl. í síma 898 7820. Gott 100 fm skrifstofuhúsnæði á 3. hæð við Síðumúla til leigu. Hagstæð leiga. Upplýsingar í síma 896 8068. Sumarhús Rotþrær, heildarlausn (“kit”) á hagstæðu verði. Sérboruð siturrör, fráveiturör og tengistykki. Einangrunarplast og takkamottur. Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími 561 2211. Heimasíða: www.borgarplast.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Námskeið í tréskurði Fáein pláss laus fyrir byrjendur. Hannes Flosason, sími 554 0123 og 863 0031. Viðskipti Skelltu þér á námskeið í netviðskiptum! Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk- ingu til að búa þér til góðar tekjur á netinu. Við kennum þér nákvæmlega hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com og kynntu þér málið. Þjónusta PLEXIFORM.IS OG BÓLSTRUN Dugguvogi 11 Leðurbólstrun og viðgerðir á sætum. Bakkmyndavél og skynjarar fyrir bíla. Framleiðum standa fyrir fartölvu, bæklinga, nafnspjöld og blaðafolda o.fl. sími 555 3344. Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslismælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., símar 567 1130 og 893 6270. Byggingar Stálgrindarhús frá Kína Flytjum inn stálgrindarhús. Allar stærðir og ýmsir möguleikar. Traustur aðili. Blikksmiðja Gylfa ehf., 897-9161. blikkgylfa@internet.is Málarar Málningarvinna Þaulvanur málari ætlar að bæta við sig verkefnum í sumar. Inni og úti. Vönduð og öguð vinnubrögð. Sann- gjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318. Ýmislegt Tískuverslunin Smart, Grímsbæ/Bústaðavegi Buxnadagar 15% afsláttur kvartgallabuxur. Mánudag og þriðjudag. Sími 588 8050. Dömur Mjög léttir þægilegir inniskór úr leðri og skinnfóðraðir í miku úrvali. Stærðir. 36 - 41 Verð frá: 4.985.- til 7.350.-- Misty skór Laugavegi 178 sími 551 2070 opið: mán - fös 10 - 18 lau 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf ATHUGAÐU: SÖMU FRÁBÆRU VERÐIN Teg. 81103 - fer rosalega vel, gamal- reynt snið nú í fleri litum í BC skálum á kr. 2.950,- og buxur fást á kr. 1.450,- Teg. 5207 - nýkominn aftur í CDE skálum á kr. 2.950,- buxur í stíl á kr. 1.450,- Teg. 18696 - mjög haldgóður og flott- ur í CDE skálum á kr. 2.950,- buxur í stíl á kr. 1.450,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Jeppar RANGE ROVER SPORT 4.4 HSE, Árg. 2006, ekinn 43 þ.km, Bensín, leður, lúga, DVD ofl. Tilboðsverð 5.900þ. Til sýnis og sölu hjá Bílalíf Kletthálsi 2, sjá fleiri myndir á www.bilalif.is Rnr.122685 Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason Nýr BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla. 8921451/5574975. Húsviðhald Þarftu að breyta eða bæta heima hjá þér? Eða þarftu aðstoð í nýbyggingunni? Við erum til í að aðstoða þig við alls- konar breytingar. Við erum til í að brjóta niður veggi og byggja upp nýja, breyta lögnum, flísaleggja eða parketleggja og fl. Bjóðum mikla reynslu og góð vinnubrögð. Upplýsingar í s. 899 9825. Einkamál Stefnumót.is "Þar sem Íslendingar kynnast". Ertu í makaleit? Leitar þú nýrra vina? Vant- ar þig dansfélaga? Ferðafélaga? Göngufélaga? Spjallfélaga? Nýttu þér vandaðan vef til að kynnast fólki á þínum forsendum. Stefnumót.is Vertu ævinlega velkomin/n. LINGVA. Málaskólinn Lingva ehf. Örnámskeið í tungumálum í október. Franska, þýska, danska, japanska, kínverska, arabíska. www.lingva.is, Laugavegur 170. s. 561-0315. Þegar ég hugsa til baka um hann pabba minn, þá kemur upp í hugann maður sem var réttsýnn, fylginn sér, hafsjór af fróðleik og allt- af með fullt af verkefnum, t.d. að fara á fundi, ráðstefnur, gönguferðir, sjó- ferðir, skoðunarferðir eða að grúska í bókum. Hann fór ekki troðnar slóðir eða lét almenningsálitð breyta sínum hugs- unum. Hann hugsaði mikið um nátt- úruna og framtíð hennar og vildi lifa í sátt við hana. Heiðarleiki og hugsunin um að láta gott af sér leiða, mikla sig ekki af eigin verkum er það sem ég man í hans fari. Þótt hann hafi ekki verið að trana sér fram tóku margir eftir hans mörgu góðu verkum sem leiddi m.a. til viðurkenningar (riddarakross fálkaorðunnar) ásamt fleiru. Þessar viðurkenningar fékk hann fyrir störf unnin í sjálfboðavinnu og að eigin frumkvæði. Ég vil þakka honum fyrir yndisleg ár sem ég átti með honum, öll ferða- lögin og alla þá hlýju sem hann sýndi mér og öllum í kringum mig. Einar J. Egilsson ✝ Einar J. Egils-son fæddist á Norður-Flankastöð- um í Sandgerði 17. janúar 1930. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð 14. september síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Kópavogskirkju 22. september. Minningarnar um hann eru allar tengdar góðum og skemmtileg- um hlutum og enginn skuggi fellur þar á. Elsku pabbi minn, þú skilur eftir þig frá- bært ævistarf og son sem minnist þín með stolti. Egill. Hávaxinn, sterklega byggður, ljós yfirlitum, glaðlegur og hvers manns hugljúfi sem honum kynntist. Við Útivistarfélagar vorum heppn- ir þegar hann gekk til liðs við okkur. Hann var orðinn aðalfararstjóri okk- ar í dagsferðum áður en við vissum af – og ómissandi. Hann var ekki bara fararstjóri og leiðsögumaður, hann var einstaklega frjór og tillögugóður um ferðir; hvert ætti að halda og hvað ætti að leggja áherslu á. Einar var einnig góður skipuleggjandi, alltaf vel undirbúinn og fær um að svara þeim óteljandi spurningum sem upp komu í slíkum ferðum. Hann kom á svoköll- uðum raðferðum, sem voru nýlunda, en urðu skemmtilegar og fræðandi – og vel sóttar, því enginn sem byrjaði í þeim vildi missa úr ferð. Hæst og ógleymanlegust stendur ferðin þar sem við fetuðum í fótspor Sigvalda Sæmundssonar, fyrsta ríkisráðna landpóstsins. Var þá gengið frá Reykjavík að Móeiðarhvoli, með við- komu í Skálholti. Fyrir þær göngur fékk hann mikið lof frá póststjórninni – og þátttakendur fengu númeruð spjöld með frímerki og póststimpli dagsins, sem urðu safngripir. En Einar fór aldrei nema í dags- ferðir. Það var engin leið að fá hann til að koma inn í Bása til að sjá það sem félagið var búið að afreka þar, því ferðir okkar þangað voru alltaf helg- arferðir. En á 35 ára afmæli félagsins drifum við hann inneftir og hann var harla ánægður með allt sem hann sá og tók þátt í gleði okkar og borðhaldi og við sáum til þess að hann kæmist heim fyrir nóttina. Annað sem ein- kenndi Einar var að hann gekk alltaf í gúmmístígvélum. Hvernig sem viðr- aði og hver sem árstíðin var, hann var alltaf í grænum gúmmístígvélum með hvítri rönd að ofan. Einar átti stóran þátt í því að móta Útivist og þá sérstaklega dagsferð- irnar og eigum við honum mikla þökk að gjalda. Hann var mikill vinur okk- ar og virtur af öllum. Hans góða kona, Ásgerður, tók ekki þátt í ferðum, en gaf honum alveg lausan tauminn hvað þetta varðaði. Ég átti mörg skemmtileg símtöl við Ásgerði ef svo stóð á að Einar var ekki heima þegar ég hringdi og við tókum þá oft tal saman. Hún var alltaf glaðleg og létt í tali og vil ég nota þetta tækifæri til þess að þakka henni fyrir hvað hún tók mér alltaf vel, og hvað hún sætti sig við að Einar væri aldrei heima á sunnudögum. Það hlýt- ur oft að hafa verið erfitt. Kæra Ásgerður, ég sendi þér og þínu fólki mínar innilegustu samúðar- kveðjur og bið ykkur öllum guðs blessunar um ókomin ár. Þökk sé Einari Egilssyni. Nú geng- ur hann á guðs vegum og ég efast ekki um að honum gangi vel þar. Þökk okkar sem þekktum hann mun fylgja honum á þeirri vegferð. Nanna Kaaber. Þeim fækkar stúd- entum frá MA 1940. Einn kvaddi nýlega, Ólafur Björn Guðmundsson lyfjafræðingur, Skagfirðingur að ætt og uppruna. Óli Björn var ljúfur maður og vinmargur enda gott að vera í ná- vist hans. Hann var trúr félagi og mætti vel á þau mót sem við sam- stúdentarnir héldum. Hann var prýðilega hagmæltur og jafnvel skáld gott. Eitt sinn var ég á gangi í Reykjavík og þegar ég nálgaðist Reykjavíkurapótek var kallað á mig. Ég sá hvítklæddan mann fyrir utan dyr apóteksins og fór auðvitað til hans. Þarna var Óli Björn. Hann heilsar mér glaðlega að vanda og réttir mér litla ljóðabók. Hann seg- ist vita að ég safni ljóðum og hvort ég vilji ekki þiggja þetta ljóðakver. Ég þakka fyrir og við spjöllum um stund. Óli Björn var vinur í raun og öll Ólafur Björn Guðmundsson ✝ Ólafur BjörnGuðmundsson fæddist á Sauðár- króki 23. júní 1919. Hann andaðist á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund í Reykjavík 27. ágúst síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 2. september. þessi mörgu ár sem við áttum saman var vináttan trygg og góð. Eitt sinn heimsótt- um við Aðalbjörg þau Óla og Elínu og það var góð heimsókn. Heimili þeirra var fallegt og móttökurn- ar yndislegar. Í lok heimsóknarinnar sýndi hann okkur fal- lega garðinn þeirra við húsið. Óli sagði okkur latnesk heiti á ótal plöntum og lýsti þeim fyrir okkur. Það var stórkostlegt að sjá og heyra lýsingar Óla. Hann var nefnilega ekki aðeins lyfjafræðing- ur, hann var víðkunnur grasafræð- ingur. Ég gleymi aldrei þessari heimsókn til þeirra hjóna þar sem við hittum fyrir sérfræðing í grös- um og blómum og sjálfri nátt- úrunni. Ég þakka Óla Birni fyrir trausta vináttu um áratuga skeið. Hóg- værð og lítillæti var það sem ein- kenndi hann ásamt með ljúf- mennsku og gleði. Slíka menn er gott að umgangast. Ég sendi börnum hans og öðru samferðafólki samúðarkveðjur mínar. Guð blessi minninguna um Ólaf Björn. Sigurður Guðmundsson frá Grenjaðarstað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.