Morgunblaðið - 29.09.2008, Qupperneq 40
40 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
EMMA ROBERTS ER
NÝJA STELPAN, Í
NÝJA SKÓLANUM
ÞAR SEM NÝJU
REGLURNAR ERU
TIL VANDRÆÐA!
STÆRSTA OPNUN Á ÍSLANDI FYRR OG SÍÐAR. YFIR 69.000 MANNS
EIN BESTA MYND ÁRSINS!
SÝND Í KRINGLUNNI
WILD CHILD kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
JOURNEY TO THE C... kl. 63D - 8:103D LEYFÐ 3D - DIGITAL
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
SMART PEOPLE kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
DARK KNIGHT kl. 10:10 LEYFÐ
TROPIC THUNDER kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
CHARLIE BARTLETT kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
DEATH RACE kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
STAR WARS: C. W. kl. 5:50 LEYFÐ
WALL • E m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ
WILD CHILD kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
WILD CHILD kl. 8 - 10:10 LEYFÐ LÚXUS VIP
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
JOURNEY TO THE C... kl. 5:50 3D LEYFÐ 3D - DIGITAL
SVEITABRÚÐKAUP kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 LEYFÐ LÚXUS VIP
SÝND Í ÁLFABAKKA
-DV
-S.V., MBLSÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
ÍSLE
NSK
T TA
L
FRÁ MANNÖPUNUM SEM FÆRÐU OKKUR
SHREK
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUMYND
ÞAR SEM ALLIR SKEMMTA
SÉR KONUNGLEGA.
Þ
að tekur tíma að venjast þeirri stað-
reynd að einn hæfileikaríkasti og
vinsælasti kvikmyndaleikari sam-
tímans er fallinn frá. Paul Newman
var svo margt fleira. Ósvikin kvik-
myndastjarna eins og þær gerast flottastar,
goðsögn og glæsimenni, það leyndist engum,
en hann var líka fallegur að innan, eilíflega að
láta gott af sér leiða og lagði tugmilljónir dala í
góðgerðarstarfsemi. Ekki síst barnaspítala,
rausnarskapur hans teygði sig vítt um lönd,
m.a.s. Hringurinn naut góðs af gjafmildi hans.
Vildu verða boxarar
Ég var svo lánsamur að vera að byrja að
stunda kvikmyndir af alvöru þegar Newman
var að slá í gegn, og fá að eldast með honum í
hálfa öld. Það voru forréttindi, áhangendur
hans vildu vera eins og hann í einu og öllu, þær
tilraunir gengu upp og ofan. En þvílík áhrif
hafði þessi ólýsanlegi leikari að maður stældi
hann eins og stóra bróður eða sér eldri vin.
Hann var ekki aðeins nr. 1, heldur 2, 3, ég veit
ekki hvar skal enda. Ballið byrjaði með Some-
body Up There Likes Me (́56), sem var sýnd í
Gamla Bíó 1958, eða 9. Newman hirti myndina
um vandræðagepilinn og boxarann Rocky
Graziano, með húð og hári og vann sinn fyrsta
leiksigur. Fram að því hafði hann leikið bæði
auka- og aðalhlutverk í myndum sem flestir
eru búnir að gleyma. Aðdáunin gekk svo langt
að friðsemdarmenn létu sig dreyma um að
verða boxarar – þrátt fyrir ævilanga skömm á
barsmíðum og ofbeldi. Slíkur var máttur þessa
bláeyga töffara sem fór sínu fram í trássi við
boð og bönn. Svo skemmtilega vill til að ef
menn eru fráneygir má sjá Steve McQueen,
eina leikarann sem veitti Newman alvöru sam-
keppni, bregða fyrir í smáhlutverki.
Ýjað að samkynhneigð
Í dag eru leikarar af allt öðru sauðahúsi, alls
ekkert verri en áður, en þar er enginn líklegur
arftaki bláeyga sjarmatröllsins nema ef vera
skyldi Tom Cruise, sem reyndar á erfitt með að
halda stefnunni upp á síðkastið. Frá þessum
tíma, allt fram á 10. áratuginn var Newman
ókrýndur konungur hvíta tjaldsins, hátindarnir
milli 6́0 og 8́0. Leikstíllinn var að miklu leyti
kenndur við „method“-leikhús Stellu Adler og
Lee Strasberg, sem ráku hið sögufræga
Actor’s Studio í New York, og komu við sögu
flestra málsmetandi leikara á síðari helming
20. aldarinnar. Þá var Newman, sem fæddist í
Cleveland 1925, búinn að snúa baki við fjöl-
skyldufyrirtækinu, sem var rekstur sport-
vöruverslana, og hafði lokið undirstöðunámi í
leiklist við Yale háskólann. Newman kom eft-
irminnilega við sögu kvikmyndagerða sviðs-
verka Tennessee Williams og er eftirminnileg-
ur sem spilltur meðlimur efnaðrar
Suðurríkjafjölskyldu í Some Like It Hot. Þau
hæfðu vel hvort öðru, Newman og Elizabet
Taylor, sem lék konuna hans. Bælt, ófullnægt
kynlíf og fjölskylduerjur gegnsýra þetta sögu-
fræga verk, þar sem ýjað er að samkynhneigð
Newman-karaktersins.
Harðsoðinn heimur fjárhættuspila
Engu síðri en ófrægari er kvikmyndagerð
leikritsins Sweet Bird of Youth, þar sem mót-
leikari hans var heldur ekki af verri endanum,
hin stórfenglega Geraldine Page. Þá hafði
Newman leikið á móti síðari konu sinni, Joanne
Woodward, í enn einni kvikmyndagerð verks
eftir Williams, The Long Hot Summer, nokkr-
um árum áður. Newman lék ófáa uppreisn-
arseggi og andfélagslega sinnaðar hetjur á sín-
um rösklega 60 mynda ferli, ein sú fyrsta var
sjálfur útlaginn og byssubófinn Billy the Kid, í
The Left Handed Gun, leikstjóri Arthur Penn.
Ein merkasta mynd leikarans, The Hustler,
birtist á tjaldinu árið 1962. Klassísk mynd um
billjarðleikara sem fær dýrkeypta lexíu í harð-
soðnum heimi fjárhættuspils og næturgölturs í
vafasömum félagsskap. Önnur af hans bestu
myndum er nútímavestrinn Hud, eftir Martin
Ritt, þar fer Newman með hlutverk svarta
sauðsins í einni Suðurríkjaauðmannsfjölskyld-
unni til viðbótar. Ritt leikstýrði honum einnig í
Hombre, ógleymanlegum og óvenjulegum
vestra, þar sem hann leikur hvítan mann, alinn
upp hjá indjánum. Þessar myndir, H-in þrjú,
eru jafnan taldar með bestu verkum Newmans.
Sumir vilja bæta við spæjaramyndinni Harper,
það er ofrausn. Á hinn bóginn má ekki gleyma
túlkun naglans og fangelsislimsins Luke í Cool
Hand Luke, þar sem hann át öll harðsoðnu
eggin, þið munið. Árið 1969 stofnuðu ofurst-
jörnur þess tíma framleiðslufyrirtækið First
Artists, sem átti reyndar ekki eftir að skilja
mikið eftir í kvikmyndasögunni, öfugt við fyr-
irmyndina, United Artists. Þetta voru auk
Newmans þau McQueen, Barbara Streisand,
Dustin Hoffman og Sidney Poitier. Fyrirtækið
stóð altént að einni gleymdri en frábærri
mynd, The Time and Life of Judge Roy Bean,
með Newman í titilhlutverkinu undir leikstjórn
meistara Johns Ford. Auk þess að leika og
framleiða leikstýrði Newman örfáum myndum,
m.a. Rachel, Rachel, sem færði konu hans Ósk-
ars–tilnefningu, og kvikmyndagerð leikritsins
The Effect of Gamma Rays on Man-in-the-
Moon Marigolds, og ekki má gleyna Glerdýr-
unum, eftir Williams.
Fékk loks Óskar
Þegar líða tók á 8. áratuginn fór maður loks
að taka eftir því að átrúnaðargoð æskunnar var
tekið að reskjast - enda kominn á sextugsaldur.
Hlutverkin urðu meira við hæfi aldursins, líkt
og íshokkíleikarinn í Slap Shot, þar sem hann
hafði öðlast gjörsamlega nýjan sjarma og
breidd, orðinn rámur og frakkur og viðskota-
illur. Það klæddi hann vel, jafnvel enn betur í
hinni fantagóðu The Verdict, eftir Sidney
Lumet, þar fer Newman á miklum kostum sem
roskinn, sífullur lögmaður, sem kemur sjálfum
sér og öðrum á óvart. Eins og oft áður var hann
svikinn um Óskarinn fyrir túlkun sína, Aka-
demían bætti honum það loksins upp fyrir
ágæta frammistöðu í The Color of Money,
framhaldsmyndar The Hustler, gerðri af Mart-
in Scorsese, með fyrrgreindan Cruise eit-
urbrattan á móti gamla refnum. Newman var
hvergi af baki dottinn; sjötugur lék hann eins
og unglingur á móti Melanie Griffith í No-
body’s Fool. Þau voru yndisleg saman. Síðast
lét Newman að sér kveða í þeim biksvarta og
magnaða krimma, The Road to Perdition, tæp-
lega áttræður. Stal myndinni af mönnum á
borð við Jude Law, sem vonast til að komast
einhvern tíman með tærnar þar sem Newman
hafði hælana.
Einn sá stærsti
Hápunkturinn á ferli Newmans var að mín-
um dómi Butch Cassidy and the Sundance Kid,
myndin sem breytti ekki aðeins vestranum og
varð sá mest sótti í sögunni, heldur kvikmynda-
landslaginu í áratugi. The Sting var í allt öðrum
gæðaflokki, mynd sem enginn nennir að sjá á
meðan Butch…, er háklassík. Newman lék á
móti Robert Redford í báðum myndunum og
það hefur ekki enn birst sá dúett sem kemst í
tæri við þá félaga.
Newman var tvígiftur, síðari kona hans var,
eins og fyrr segir, gæðaleikkonan Joanne
Woodward, sem lifir mann sinn. Þau áttu sam-
an þrjú börn og hálfa, hamingjusamlega öld,
fjarri heimsins glaumi eins og kostur var, í
Connecticut fylki. Frá fyrra hjónabandi átti
Neman þrjú börn til viðbótar og er eitt þeirra
látið. Einn af nágrönnum Newmans á austur-
ströndinni var rithöfundurinn A. E. Hotchner.
Þeir stofnuðu saman fyrirtækið Newman’s
Own, sem framleiddi pastasósur og fleira fyrir
matargerð. Hver græddur eyrir fór beint til
líknarmála. Það eru því fleiri en kvikmynda-
unnendur sem harma fráfall einnar stærstu
stjörnu kvikmyndanna fyrr og síðar.
Bláeygði höfðinginn er allur
Bandaríski stórleik-
arinn Paul Newman
lést á föstudaginn
Eftir Sæbjörn Valdimarsson
saebjorn@heimsnet.is
1969 Flottur í hlutverki Butch Cassidy. 2004 Newman með eiginkonu sinni, Joanne Woodward, við kosningaskrifstofu demókrata.
1973 Sem Henry Gondorff í The Sting. 1958 Í The Left Handed Gun með Litu Milan. 2006 Newman með Robert Redford.