Morgunblaðið - 29.09.2008, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 41
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
ALLS EKKI FYRIR
VIÐKVÆMA!
- B.S., FBL
- Þ.Þ., D.V.- 24 STUNDIR
- S.V., MBL- Ó.H.T., RÁS 2
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA
HÖRKU-DANSMYND
MEÐ HINNI SJÓÐHEITU
MARY ELIZABETH WINSTEAD
SÝND Í ÁLFABAKKA
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
2 VIKUR Á TOPPNUM!
EIN FLOTTASTA ÆVITÝRAMYND ÁRSINS MEÐ
ÍSLENSKU LEIKKONUNNI ANÍTU BRIEM Í EINU
AF AÐALHLUTVERKUNUM.
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
Þegar Charlie Bartlett talar þá hlusta allir!
-TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
S.V. - MORGUNBLAÐIÐ
SÝND Í KRINGLUNNI
Frábær gamanmynd frá framleiðendum Sideways.
DENNIS QUAID, SARAH JESSICA PARKER,
ELLEN PAGE, OG THOMAS HADEN CHURCH
- H.G.G., POPPLAND
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
- S.V. MORGUNBLAÐIÐ
SÝND Á SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA
WILD CHILD kl. 6 - 8 LEYFÐ
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
CHARLIE BARTLETT kl. 8 B.i. 12 ára
WILD CHILD kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
STEP BROTHERS kl. 8 B.i. 7 ára
MAKE IT HAPPEN kl. 10:10 B.i. 16 ára
MAKE IT HAPPEN kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
STEP BROTHERS kl. 8 B.i. 16 ára
MIRRORS kl. 10:10 B.i. 16 ára
SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSISÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
NÖRDAR um allan heim hafa beðið
leiksins Warhammer Online – Age
of Reckoning með mikilli eftirvænt-
ingu. Liðin eru fjögur ár síðan stór-
smellurinn World of Warcraft kom
út og gerði allt vitlaust, og má
segja að væntingarnar til War-
hammer Online hafi verið í réttu
hlutfalli við þann tíma sem liðinn er
frá útgáfu World of Warcraft.
Nú er stund sannleikans runnin
upp, og virðist nördasamfélagið
þegar vera farið að skiptast í tvær
fylkingar: þá sem eru með War-
craft, og þá sem eru hrifnari af
Warhammer. Er fyrirsjáanlegt að
það muni verða þrætuepli nörda um
langt skeið hvor leikurinn ber af -
kannski jafnlengi og deilt hefur
verið um hvor er flottari, James T.
Kirk eða Jean-Luc Picard.
Leikur landvinninga
Eins og í öllum deilum af þessum
toga hafa báðar hliðar ýmislegt til
síns máls. Leikirnir hafa sína kosti
og galla og er fjarri því hægt að
tala um að Warhammer sé einhvers
konar framhald eða eftiröpun á
Warcraft þó svipaður blær sé á
leikjunum.
Í World of Warcraft fer hvað
mest púður í að leysa allskyns
[langdregnar] þrautir innan leiks-
ins, einn síns liðs eða í góðra vina
hópi. Þó Warhammer bjóði upp á
þrautir af þessu tagi þá eru þær
stuttar og auðunnar, enda ekki að-
alatriði leiksins. Aðalfjörið í leikn-
um felst einkum í því að skapa
skemmtilegan allsherjarvígvöll and-
stæðra fylkinga leikmanna til að
berjast um yfirráð í ævintýraheim-
inum.
Á meðan landamæri Warcraft
eru fastmótuð og borgir og virki
óvinarins nær ósigranleg, þá gerir
Warhammer Online ráð fyrir því að
fylkingar góðs og ills berjist um yf-
irráðin og leikurinn nái í raun há-
marki þegar tekst, bókstaflega, að
brjóta niður borgarhliðin hjá óvin-
inum og brytja þar alla í spað.
Nokkrir hnökrar
Eins og við er að búast er graf-
íkin töluvert betri í Warhammer,
með alls kyns smáatriðum sem
gleðja augað. Útlitshönnuðir leiks-
ins hafa skapað örlítið drungalegri
heim en þann sem menn eru vanir
úr Warcraft og leikurinn bætir við
skemmtilegum fídusum eins og t.d.
að hægt er að breyta fleiri atriðum
í útliti söguhetjunnar og má þannig
breyta lit á búnaði og fatnaði nokk-
urn veginn eftir eigin höfði.
Þó margt sé betra, nýrra og
flottara í Warhammer er leikurinn
samt ekki með öllu gallalaus. Það
jók til dæmis ekki á hrifningu þess
sem þetta skrifar hversu ofboðslega
illa gekk að hlaða leiknum inn á
tölvuna og byrja að spila. Þurfti
mikið að gúggla til að finna leið-
beiningar um hvernig komast
mætti framhjá öllum þeim villum
og vandræðum sem upp komu.
Diskur nr. 1 fór í tölvuna um kvöld-
matarleytið, en ekki tókst að byrja
að spila leikinn fyrr en kl. þrjú
næsta dag.
Ekki bætir úr skák að leikurinn
virðist gera allt of miklar kröfur til
tölvunnar. Þó tölvan sem undirrit-
aður notaði til spilunar eigi að ráða
hæglega við leikinn, þá var ofboðs-
legt hökt í spiluninni - og hvarf
ekki með öllu jafnvel þó grafíkin
væri stillt á allralægstu stillingu. Sú
truflun sem af þessu hlýst og aðrir
smáhnökrar sem safnast saman,
gerir það að verkum að það gengur
brösulega, og verður ekki jafn
ánægjulegt, að berjast við aðra
leikmenn.
Spurt að leikslokum
Það er erfitt að segja til um að
svo stöddu hvor leikurinn mun
verða ofan á: World of Warcraft,
sem byggist á stórum grunni harð-
kjarnanotenda, eða hinn tæknilega
bætti og beinskeytti Warhammer.
Leikjasíður eru óðum að fyllast
af miklu lofi í garð Warhammer en
ævintýraheimurinn er svo stór, og
leikurinn því í reynd svo „langur“
að tíminn verður að leiða í ljós hvor
verður ofan á. Hönnuðir World of
Warcraft sitja auðvitað ekki auðum
höndum og senda frá sér viðbótina
Wrath of the Lich King í nóv-
ember, og lofa bæði bættri grafík
og umsátursmaskínum sem nota
má til að salla niður borgarmúra.
Verður gaman að sjá hvernig það
kemur út.
Ævintýraheimur með öðrum áherslum
Warhammer Online er kominn út og vegur að World of Warcraft Færri þrautir, fleiri orrustur
Í viðbragðsstöðu Spilun á að byggja meira á bardögum milli andstæðra fylkinga frekar en endalausum þrautum.
Erlendir dómar
Metacritic.com 87/100
PC gamer UK 88/100
Eurogamer 80/100
Gameplanet 80/100
Vígalegur Hver vill mæta þessum?
Flottari Eins og við er að búast er grafíkin töluvert betri í Warhammer.
TÖLVULEIKIR»
Leikirnir Warhammer Online
og World of Warcraft eru um
margt svipaðir og má segja að
ævintýraheimur þeirra beggja
byggist á þeim grunni sem
Tolkien galdraði fram í bókum
sínum um ævintýri hobbita,
dverga og álfa.
Warhammer-merkið rekur
rætur sínar allt aftur til ársins
1983 þegar samnefndur tindáta-
leikur (með skrímslum) kom á
markað. Mikil nördamenning
hefur orðið til í kringum War-
hammer-leiki og eru haldin mót
og reknar sérverslanir með
módelum og helstu aukahlutum.
Herkænskuleikurinn War-
craft: Orcs & Humans kom út ár-
ið 1994 og fylgdi Warcraft II árið
1995 og loks Warcraft III árið
2002. World of Warcraft hlut-
verka-fjölspilunarleikurinn kom
svo árið 2004.
Tveir leikir af
sama meiði