Morgunblaðið - 15.10.2008, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
VANDRÆÐALEGT er að stjórnar-
flokkarnir skuli ekki geta komið sér
saman um vatnalögin, sagði Val-
gerður Sverrisdóttir, þingmaður
Framsóknarflokks, á Alþingi í gær.
Gildistöku laganna verður frestað
fram til ársins 2010 en þau voru
samþykkt á Alþingi eftir miklar deil-
ur árið 2006. Þáverandi stjórnarand-
staða stóð harðlega gegn lögunum
og töluðu sumir um einkavæðingu á
vatni. Sátt náðist um að fresta gild-
istöku laganna meðan nefnd færi yf-
ir hvernig þau samræmdust öðrum
lagaákvæðum. Hún hefur nú skilað
af sér því áliti sínu að fresta beri
gildistökunni og láta aðra nefnd
endurskoða lögin.
Valgerður, sem var iðnaðarráð-
herra árið 2006, sagði á þingi í gær
að hefði vatn einhvern tímann verið
einkavætt hefði það verið árið 1923
þegar núgildandi lög voru sam-
þykkt. Stóra spurningin væri hvort
þjóðnýta ætti vatnið eða virða eign-
arréttinn. „Niðurstaða nefndarinnar
er engin önnur en sú að fresta mál-
inu,“ sagði Valgerður og bætti við að
hún tryði því varla að niðurstaða
næðist þar sem samfylkingarfólk
hefði látið svo stór orð falla í um-
ræðunni á sínum tíma.
Valgerður ein ósammála
Sigurður Kári Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, sagðist
sammála Valgerði um að ekki
væri ástæða til að breyta réttarstöðu
landeigenda. Hins vegar væri full-
komlega sjálfsagt að einfalda stjórn-
sýslu vatnamála og skýra betur út
réttindi almennings gagnvart vatni
bærust kröfur um það úr samfélag-
inu. Stjórnarflokkarnir væru sam-
mála um það. „Og ef einhver er
ósammála því er það háttvirtur
þingmaður Valgerður Sverr-
isdóttir,“ sagði Sigurður Kári og
bætti við að hún væri þá ósammála
fulltrúa síns flokks í nefndinni.
Morgunblaðið/Þorkell
Vatn veld-
ur deilum
Hegningarlagafrum-
varp lagt fram að nýju
Dómsmálaráð-
herra hefur lagt
fram frumvarp til
breytinga á al-
mennum hegn-
ingarlögum sem
snýr að upptöku
eigna, hryðjuverk-
um, mansali og
peningaþvætti.
Frumvarpið var
lagt fram á síðasta þingi en fékkst
ekki afgreitt og kemur nú óbreytt aft-
ur til þingsins. Vinstri græn stóðu
gegn frumvarpinu í fyrra og höfðu
m.a. áhyggjur af að ákvæði í því
kynnu að takmarka borgaraleg rétt-
indi fólks. Fulltrúar annarra flokka í
allsherjarnefnd stóðu með frumvarp-
inu en engu að síður kom það aldrei
til annarrar umræðu.
Réttindi barna tryggð
Ágúst Ólafur
Ágústsson, Sam-
fylkingu, hefur
lagt fram þings-
ályktunartillögu
ásamt ellefu
flokkssystkinum
sínum þess efnis
að samningur
Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi
barnsins verði
lögfestur hér á landi. Ísland skrifaði
undir sáttmálann árið 1990, ári eftir
að hann var samþykktur, en til að
hægt sé að beita honum fyrir ís-
lenskum rétti þarf að lögfesta hann.
Þingið ráði
Kristinn H. Gunn-
arsson og sjö
þingmenn Fram-
sóknar, VG og
Samfylkingar
hafa lagt fram
frumvarp um að
Alþingi kjósi rík-
isendurskoðanda
í stað þess að for-
sætisnefnd Al-
þingis ráði hann.
Þá myndi sama fyrirkomulag gilda og
um umboðsmann Alþingis. Flutn-
ingsmenn benda á að forseti Alþing-
is hafi úrskurðarvald í forsætisnefnd
ef ágreiningur rís og þess vegna ráði
vilji hans eins ef svo ber undir.
Dagskrá þingsins
Þingfundur hefst kl. 13:30 í dag og
þá mun forsætisráðherra flytja Al-
þingi munnlega skýrslu um stöðu
bankakerfisins. Þingmenn fá svo
tækifæri til að bregðast við.
halla@mbl.is
Björn Bjarnason
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Kristinn H.
Gunnarsson
ÞETTA HELST …
RÓLEGT yfirbragð hefur verið yfir Alþingi það sem af er vikunni, eins og þingmenn séu að jafna sig á látum síð-
ustu viku. Össur Skarphéðinsson og Kjartan Ólafsson brostu þó sínu blíðasta þegar þeir tókust í hendur í þingsal í
gær en ekki fylgir sögunni hvað þeir handsöluðu. Ellert B. Schram fylgdist alvarlegur með.
Ætla má að kapp færist í menn í dag þegar forsætisráðherra flytur Alþingi munnlega skýrslu um stöðu banka-
kerfisins. Undanfarið hafa þau mál lítið verið rædd í þinginu og stjórnarandstaðan krafist þess að fá tækifæri til
að ræða málin í þaula. Stuttir fyrirspurnatímar nægðu ekki til þess að mati þingmanna. halla@mbl.is
Staða bankakerfisins verður rædd á Alþingi í dag
Morgunblaðið/Ómar
Sælir og blessaðir á þingi
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
FORSVARSMENN Landsbankans
verða að svara fyrir þær ákvarðanir
sínar að hafa haldið áfram að stofna
reikninga í útibúum erlendis þrátt
fyrir athugasemdir Fjármálaeftir-
litsins um að ekki væri búið um hnút-
ana með fullnægjandi hætti. Þetta
sagði Árni Páll Árnason, þingmaður
Samfylkingar, á Alþingi í gær og
taldi ljóst að gera þyrfti úttekt á því
sem aflaga fór og leiddi til hrunsins í
efnahagslífinu. Taldi Árni Páll við-
skiptanefnd Alþingis eiga að sinna
því hlutverki á opnum nefndarfund-
um þannig að allar upplýsingar væru
uppi á borðum. „Ég vil undirstrika
það að maður hlýtur að staðnæmast
við hina siðferðilegu ábyrgð, rekstr-
arlegu ábyrgð og hina refsiréttar-
legu ábyrgð forsvarsmanna Lands-
bankans sem héldu áfram að stofna
til skuldbindinga eftir að fyrir lágu
athugasemdir Fjármálaeftirlitsins,“
sagði Árni Páll og þeir þingmenn
sem til máls tóku voru sammála um
að fara þyrfti gaumgæfilega yfir að-
dragandann að bankakreppunni.
Strangari reglur mögulegar?
„Við þær aðstæður sem uppi eru
núna er ljóst að eitthvað mikið hefur
farið úrskeiðis og við verðum að
horfast í augu við það,“ sagði Sig-
urður Kári Kristjánsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, og velti því upp
hvort mögulegt væri að setja strang-
ari reglur, m.a. um tryggingar á út-
lánum íslenskra banka erlendis, án
þess að það bryti í bága við EES-
samninginn þannig að ábyrgðin yrði
fyrirtækjanna sjálfra en ekki ís-
lenskra skattgreiðenda.
Forsvarsmenn Lands-
banka verða að svara
Eitthvað mikið fór úrskeiðis, segir Sigurður Kári
FRÉTTIR
GUÐJÓN Friðriksson sagnfræðingur breytti for-
mála og eftirmála bókar sinnar um Ólaf Ragnar
Grímsson, forseta Íslands, til samræmis við nýj-
ustu atburði í efnahagsmálum þjóðarinnar áður
en prentun bókarinnar hófst. Titill bókarinnar er
Saga af forseta og kemur út hjá Forlaginu fyrir
jól.
Jóhann Páll Valdimarsson, útgáfustjóri For-
lagsins, segir að bókin hafi verið í forvinnslu í
prentsmiðju þegar höfundur breytti henni. Í
breyttum for- og eftirmála er fjallað um Glitni og
gerð grein fyrir breytingum sem orðið hafa á síð-
ustu vikum. „En það var ekki hreyft við stafkrók í
bókinni,“ bendir Jóhann Páll á og segir það al-
rangt að bókin hafi verið afturkölluð úr prent-
smiðju.
Í bókinni koma fram ýmsar nýjar upplýsingar,
meðal annars um samskipti Ólafs Ragnars og
Davíðs Oddssonar sem hafi verið verri en fólk
gerði sér grein fyrir en um það vitna meðal annars
áður óbirt bréf sem fóru þeim í milli.
Guðjón Friðriksson segir að sér hafi þótt viss-
ara að skrifa bæði nýjan for- og eftirmála í ljósi at-
burða að undanförnu en forsetinn hafi ekki óskað
eftir breytingum á því sem eftir honum væri haft.
Guðjón byggir bókina á viðtölum við Ólaf Ragnar,
samferðamenn hans, stjórnmálamenn og fræði-
menn. Hann segist ekki líta á sig sem málsvara
Ólafs Ragnars. Verði lesendur að meta það fyrir
sig hvort forsetinn hafi gengið of langt í stuðningi
sínum við íslensku útrásina.
Breytti formála og eftirmála
Guðjón Friðriksson, höfundur ævisögu forseta Íslands, segir að forsetinn hafi ekki óskað eftir
breytingum Efnahagshrunið á Íslandi knúði höfund til að endurrita for- og eftirmála sögunnar
Í HNOTSKURN
»Ólafur Ragnar Grímssonvar fyrst kjörinn forseti Ís-
lands árið 1996 og er hans
fjórða kjörtímabil nýhafið.
»Árið 1973 var hann skip-aður fyrsti prófessor við
Háskóla Íslands í stjórnmála-
fræði.
»Hann settist fyrst á Al-þingi 1974 sem varaþing-
maður og á árunum 1988-1991
var hann fjármálaráðherra í
ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar.
Morgunblaðið/mbl.is
Forsetasaga Guðjón Friðriksson segist ekki vera málsvari forsetans og leggur málið í dóm lesenda.
Forsetabók afturkölluð
www.mbl.is/mm/frettir
mbl.is | Sjónvarp