Morgunblaðið - 15.10.2008, Síða 17

Morgunblaðið - 15.10.2008, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 17 ERLENT Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is STJÓRN George W. Bush Banda- ríkjaforseta kynnti í gær áform um að nota alls 250 milljarða dollara til að kaupa hlutabréf í bandarískum bönkum í því skyni að endurvekja traust á fjármálakerfinu. Bush viðurkenndi að sem mark- aðshyggjumanni væri sér þvert um geð að samþykkja svo viðamikil ríkisafskipti af bönkunum, þau mestu í Bandaríkjunum frá fjórða áratug aldarinnar sem leið. Hann hefði þó komist að þeirri niðurstöðu að ríkisafskiptin væru nauðsynleg. „Markmiðið með aðgerðunum er ekki að leggja frjálsa markaðinn undir sig, heldur að varðveita hann.“ „Okkur þykir miður að þurfa að grípa til þessara aðgerða,“ sagði Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna. „Þetta er ekki það sem við vildum – en aðgerðir okkar í dag eru það sem við verðum að gera til að endurvekja traust á fjármála- kerfi okkar.“ Knúðir til að samþykkja aðstoðina Bandarískir embættismenn sögðu að 125 milljarðar dollara yrðu not- aðir til að kaupa hlutabréf í níu bönk- um. sem hafa þegar þegið aðstoðina, þeirra á meðal Citigroup, JPMorgan Chase, Bank of America, Goldman Sachs og Morgan Stanley. 125 milljarðar dollara verða not- aðir síðar til að kaupa hlut í öðrum bönkum sem samþykkja aðstoðina. Fréttastofan AP sagði að Paulson hefði þurft að knýja nokkra af stóru bönkunum til að samþykkja aðstoð- ina. Fjármálaráðherrann hefði talið nauðsynlegt að kaupa fyrst hluta- bréf í sterkum bönkum, sem þyrftu ekki endilega hlutafé, til að ekki yrði litið á ríkisaðstoðina sem smánar- blett. Bush sagði að gert væri ráð fyrir því að bankarnir keyptu hlutabréfin aftur þegar fjármálamarkaðirnir réttu úr kútnum. Ríkið kaupir forgangshlutabréf, en þau bera fasta vexti sem greiða þarf áður en aðrir hluthafar fá arð. Hugsanlegt er að ríkið hagnist á hlutabréfunum ef bankarnir rétta úr kútnum, en það er ekki öruggt. Hlutafé dælt í banka  Bush segir ríkisafskiptin af bandarískum bönkum nauðsynleg til að endurvekja traust á fjármálakerfinu  Ríkið kaupir hlutabréf fyrir 250 milljarða dollara Í HNOTSKURN » Bankar sem fá hlutafé fráríkinu samþykkja reglur sem takmarka föst laun, kaup- auka og starfslokasamninga stjórnenda bankanna. » Stjórnin sagði að bankarmættu ekki geyma nýja fjármagnið heldur yrðu þeir að nota það til að lána hver öðrum og viðskiptavinum. » Stjórnin hyggst einnigvíkka út ábyrgðir sínar þannig að þær nái til innlána smáfyrirtækja. BÖRN í fátækrahverfi Djakarta, höfuðborgar Indónesíu, böðuðu sig ofan í tunnu með rigning- arvatni í gær sem aðra daga. Að minnsta kosti 80% af 250 milljónum íbúa Indónesíu hafa ekki aðgang að rennandi vatni. Þar sem aðgangur að hreinu vatni er takmark- aður verður fjöldi fólks því að notast við árvatn til drykkjar, baða og þvotta samkvæmt heimild- um Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Tunnubað í Djakarta Reuters FRÉTTASKÝRING Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is BÆÐI forsetaefnin vestanhafs, Bar- ack Obama og John McCain, hafa síðustu daga lagt fram tillögur sínar vegna efnahagsvandans og lausa- fjárkreppunnar. En ný könnun USA Today og Gallup bendir til þess að al- menningur sé vantrúaður á hæfni mannanna tveggja til að leysa vand- ann. Um 44% aðspurðra segjast hafa trú á áætlunum Obama og aðeins 31% á tillögum McCains. Síðustu kappræður forsetaefn- anna verða í nótt að íslenskum tíma. Efnahagstillögur McCains ganga m.a. út á afnám skatta á atvinnuleys- isbætur, lægri skatta á lífeyrissparn- að og aukinn skattafrádrátt fyrir fólk sem þarf að selja eignir með tapi á markaði. McCain hefur lagt fram hugmyndir um skattalækkanir á fyr- irtæki í von um þannig verði hægt að sporna við atvinnuleysi. En demó- kratar hafa sagt að forsetaframbjóð- andinn vilji með tillögunum gefa m.a. olíufyrirtækjum færi á að græða enn meira. Hagfræðingar segja að vandi McCains sé sá að afar erfitt sé að út- skýra tillögur hans. Einnig háir það McCain að efna- hagsmálin, sem yfirgnæfa allt annað þessa stundina í huga fólks, hafa aldrei verið hans sterka hlið. Og áhersla hans á frjálsan markað er ekki jafn aðlaðandi núna þegar margir kenna sjálfum kapítalisman- um um neyðarástandið á mörkuðum. Obama kynnti sínar hugmyndir á mánudag. Vill hann meðal annars að frestað verði í 90 daga lögtökum í húsnæði vegna húsnæðislána og jafnframt að fyrirtæki fái skatta- ívilnanir fyrir að fjölga störfum, 3000 dollara á hvert nýtt starf. Einnig vill hann að lánaábyrgðir ríkisins til bíla- framleiðenda verði hækkaðar í 50 milljarða dollara. „Við þurfum að gefa fólki ráðrúm til að jafna sig,“ sagði Obama á fundi í Ohio. Kjósendur vantrúaðir Reuters Einmitt! Starfsmenn bílaverksmiðju í Wisconsin hlýða á Obama. AF þeim 158 milljónum kvenna sem ala munu börn á þessu ári mun líf 58 milljóna vera í hættu þar sem þær njóta ekki neinnar heil- brigðisþjónustu á meðgöngu eða eftir fæðingu. Þetta er meðal þess sem kom fram í nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar (WHO) sem var kynnt í gær. Í skýrslunni var gerð úttekt á grunnþáttum heil- brigðisþjónustu í heiminum. Í nið- urstöðum segir m.a. að gífurlegur ójöfnuður ríki hvað aðgengi að slíkri þjónustu varðar, mikill munur sé milli landa og jafnvel milli hverfa í sama landi. Um 5,6 milljarðar jarðarbúa í fá- tækari löndum heims greiða yfir helming heilsugæsluþjónustu út í hönd, sem verður til þess að ýta íbú- um landanna undir fátæktarmörk. Samkvæmt skýrslunni munar meira en 40 árum á ævilíkum fólks í ríkustu og fátækustu löndum heims. Margaret Chan, framkvæmdastjóri WHO, sagði er hún kynnti niður- stöður að aðgerðaleysi væri ekki valkostur, áhersla á grunnþjónustu væri besta lausnin auk þess sem fyrirbyggjandi lækningar gætu skipt sköpum og dregið úr útgjöld- um. jmv@mbl.is Yfir 40 ára munur á ævilíkum Margaret Chan WHO segir aðgengi að heilsugæslu ójafnt SÆNSKIR dómstólar dæmdu í gær þýska konu í lífstíðarfangelsi fyrir að berja tvö ungbörn til dauða og reyna í framhaldinu að drepa móður þeirra. Í dómsúrskurði sagði fullsannað að konan, Christine Schurrer sem er 32 ára, hefði ráðist að fjölskyldunni með verkfæri sem líktist hamri. At- burðurinn átti sér stað í mars síðast- liðnum á heimili fjölskyldunnar í Ar- boga í Svíþjóð. Verkið var framið vegna afbrýðisemi sem blossaði upp eftir að móðir barnanna hóf sam- band við fyrrverandi kærasta Schur- rer. Börnin voru eins og þriggja ára gömul. jmv@mbl.is Dæmd fyrir barnamorð MIÐALDRA og eldra fólk getur aukið og bætt heilastarfsemi sína með hjálp netsins að því er fram kemur í nýrri rannsókn frá háskól- anum í Kaliforníu. Samkvæmt rannsókninni hefur netnotkun örv- andi áhrif á heilastöðvar sem stjórna ákvarðanatöku og flókinni röksemdafærslu. Þetta kemur fram á vefsíðu BBC. Vísindamennirnir sögðu jafnvel mögulegt að notkunin gæti unnið gegn aldurstengdum breytingum sem verða til þess að hægja á heila- starfseminni. „Leit að efni á netinu felur í sér flókna heilastarfsemi sem veitir þjálfun og bætir starf- semina,“ sagði Gary Small sem leiddi rannsóknina. Gífurlegt fram- boð efnis á netinu neyði fólk til að taka ákvarðanir um á hvað skuli smellt til að fá þær upplýsingar sem sóst er eftir og er örvunin því tölu- vert meiri en sú sem fæst með lestri bóka. Rannsóknin var gerð á 24 sjálfboðaliðum á miðjum sextugs- aldri og eldri. jmv@mbl.is Netið örvar heilann Hvernig er staðan? Heldur hefur fjarað undan McCain síðustu vikurnar í skoð- anakönnunum og er munurinn í sumum þeirra nú orðinn yfir 10%. Einkum þykir uggvænlegt fyrir McCain að í ríkjum sem oft hafa ráðið úrslitum hefur Obama sótt í sig veðrið. Í Ohio og Flór- ída, sem McCain hefur talið sig næsta öruggan um að vinna, standa leikar nú jafnir. S&S

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.