Morgunblaðið - 15.10.2008, Síða 19

Morgunblaðið - 15.10.2008, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 19 Greiðslustöðvun Með dómi sem kveðinn var upp 9. október 2008 kl. 17.00 ákvað héraðsdómstóll í Lúxemborg (Tribunal d’arrondissement de Luxembourg), á dómþingi um viðskiptamál, að fallast á beiðni Kaupthing Bank Luxembourg S.A., firmaskrárnúmer B 63997, með aðsetur að 35a avenue J-F Kennedy, L-1855 Lúxemborg, um greiðslustöðvun skv. ákvæðum 60-2 (15) í IV. kafla laga um fjármálamarkaði frá 5. apríl 1993, með áorðnum breytingum. Með sama dómi voru Emmanuelle Caruel-Henniaux og Franz Fayot , fyrir hönd PricewaterhouseCoopers S.à r.l., skipuð umsjónarmenn bankans og var þeim falið það hlutverk að hafa umsjón með eignum bankans. Jafnframt voru greiðslustöðvunni ákveðin tímamörk allt að sex mánuðum. Fyrir hönd PricewaterhouseCoopers S.à r.l., Emmanuelle Caruel-Henniaux og Franz Fayot. Suspension of Payments By judgment rendered on 9th October 2008 at 5 p.m., the Tribunal d’arrondissement de Luxembourg (District Court) sitting in commercial matters ordered the admission of the société anonyme Kaupthing Bank Luxembourg S.A. registered with the having its registered office at 35a, avenue J-F Kennedy, L-1855 Luxembourg to the benefit of the procedure of the suspension of payments in accordance with Part IV of the law dated 5th April 1993 relating to the Financial sector as amended and declared the applicability of article 60-2 (15) of such law. The same judgment appointed PriceWaterhouseCoopers S.à.r.l. represented by Mrs Emmanuelle Caruel-Henniaux and Me Franz Fayot as administrators with mission to control the management of the assets of the Bank and limited the procedure of the suspension of payments to six months. For conformed extract. The Administrators PriceWaterhouseCoopers S.à.r.l represented by Mrs Emmanuelle Caruel-Henniaux and Me Franz Fayot. Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is „UNNIÐ er að því að endurskipuleggja og efla rekstur SPRON með tilliti til langtímahagsmuna félagsins og í gjörbreyttu umhverfi fjármálafyrirtækja.“ Þannig segir í yfirlýsingu frá SPRON í gær. Er í yfirlýsingunni vísað til þess að eftir yfirtöku Fjár- málaeftirlitsins á Kaupþingi sé ljóst að forsendur fyrir sameiningu Kaupþings og SPRON séu brostnar og því verði ekki af samruna fyrirtækjanna að ræða. Þá segir að ljóst sé að gjörbreyttar aðstæður á fjármálamörkuðum hafi neikvæð áhrif á afkomu SPRON. Starfsemi sjóðsins verði þó óbreytt. Í yfirlýsingu frá Byr sparisjóði í síðustu viku sagði að staða sjóðsins væri sterk. Hins vegar kom þá fram hjá viðskiptaráðherra eftir fund með forsvarsmönnum spari- sjóðanna að staða þeirra væri misjöfn og væri verið að leita allra leiða til að bæta stöðu þeirra. Það á til að mynda við um Sparisjóð Mýrasýslu, en eftir yfirtöku Fjármála- eftirlitsins á Kaupþingi hefur byggðaráð Borgarbyggðar óskað eftir viðræðum um framtíð sparisjóðsins. Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs- ins í Keflavík, segir að endurskipulagning á rekstri spari- sjóðsins hafi staðið yfir frá því síðastliðið vor. „Þetta gerð- ist hjá okkur í framhaldi af sameiningu við sparisjóðina á Vestfjörðum og í Húnaþingi. Við erum því í hagræðing- arferli sem mun ná alveg út næsta ár,“ segir hann. Endurskipuleggja SPRON Í HNOTSKURN »Viðskiptaráðherra sagði ísíðustu viku, eftir fund með forsvarsmönnum spari- sjóðanna, að staða þeirra væri misjöfn, sumir standi vel en aðrir síður. »Ríkið getur aukið viðstofnfé sparisjóðanna í landinu um allt að 20%.  Ekkert verður af sameiningu SPRON og Kaupþings eftir að Fjármálaeftirlitið yfirtók bankann  Staða sparisjóðanna í landinu er mjög misjöfn og til skoðunar HLUTABRÉFAMARKAÐIR í Evrópu og Asíu héldu áfram að hækka í gær, þótt hækkanirnar væru ekki sambærilegar við það sem gerðist á mánudag. Í frétt Financial Times segir að hjólin séu eitthvað farin að snúast á millibankamörkuðum erlendis vegna aðgerða stjórnvalda beggja vegna Atlantsála. Nú síðast ákvað Bandaríkjastjórn að nýta 250 milljarða dala til að kaupa hlutafé í þarlendum bönkum, óski bankarnir eft- ir því. Breska FTSE-vísitalan hækkaði um 3,23%, þýska DAX um 2,70% og franska CAC um 2,75%. Sömu sögu var hins vegar ekki að segja af bandarískum mörk- uðum þar sem hlutabréf hófu daginn með hækkunum, sem þó gengu til baka þegar líða tók á. Dow Jones lækkaði um 0,70% og Nasdaq um 3,50%. bjarni@mbl.is Hækkanir í Evrópu og Asíu          Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is OPNAÐ var fyrir viðskipti í Kaup- höll Ísland í gær, í fyrsta sinn síðan fimmtudaginn 9. október. Sem fyrr var þó lokað fyrir viðskipti með bréf fjármálafyrirtækjanna Exista, SPRON og Straums-Burðaráss, en gengi bréfa Glitnis, Kaupþings og Landsbanka var núllstillt. Skýrir það hina gríðarlegu lækk- un Úrvalsvísitölunnar í gær, en hún féll um 77,42% í viðskiptum gær- dagsins. Var lokagildi vísitölunnar 678,4 stig, en var við upphaf við- skipta 3004,62 stig. Hefur vísitalan ekki verið á svipuðum slóðum síðan vorið 1996, þegar hún var í kring- um 680 stig. Markaðsvirði hluta- bréfa í Úrvalsvísitölunni var fyrir opnunina í gær um 1050 milljarðar króna, en við lokun markaða í gær var það komið í um 276 milljarða. Nær engin velta var með hluta- bréf í Kauphöllinni, en hún nam að- eins um 190 milljónum króna. Sex fyrirtæki hafa verið skráð úr Kauphöllinni á árinu og þrjú til við- bótar, Atorka, Teymi og Vinnslu- stöðin, stefna sömu leið. Þá hafa skilanefndir Landsbanka og Glitnis óskað eftir því að hlutabréf bank- anna verði tekin úr viðskiptum. Straumur er nú stærsta fjármála- fyrirtækið í Kauphöllinni, en auk þess standa eftir rekstrarfélög eins og Alfesca, Bakkavör, Marel og Össur. Ekki verið lægri síðan árið 1996         83@            Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is SJEIK Mohammed Bin Khalifa Al- Thani, fjármálaráðherra Katars og bróðir emírsins þar í landi, hefur hætt við kaup á 12,5% hlut í Alfesca. Sjeikinn hafði ekki fengið hlut sinn í Alfesca afhentan en sam- kvæmt lögum um verðbréfaviðskipti þarf að framkvæma svonefnda skráningarlýsingu ef aukning hluta- fjár skráðs hlutafélags í Kauphöll er 10% eða meiri. Fjármálaeftirlitið og Kauphöllin þurfa síðan að yfirfara skráningarlýsinguna. Það ferli stóð yfir áður en hætt var við kaupin. Í síðasta mánuði var greint frá kaupum sjeiksins á 5% hlut í Kaup- þingi á 25,6 milljarða króna. Hann hafði þegar greitt fyrir þann hlut og var þar ekki um hlutafjáraukningu að ræða eins og í tilfelli Alfesca. Það er ljóst að tap sjeiksins á Kaupþings- viðskiptunum er verulegt. Í tilkynningu frá Alfesca segir að riftun kaupanna hafi verið sam- komulag milli Alfesca og eignar- haldsfélags sjeiksins, Q Iceland Holding ehf., í ljósi þeirrar óvissu sem ríkir á hinum íslenska fjármála- markaði og mikillar veikingar ís- lensku krónunnar. Í tilkynningu frá Alfesca segir jafnframt að sjeikinn hafi ítrekað stuðning sinn og áhuga á Alfesca sem langtímafjárfestingu og staðfest vilja sinn til að halda áfram að vinna með félaginu gefist tækifæri til. Í ljósi ríkjandi aðstæðna hefur stjórn Alfesca ákveðið að fresta aðal- fundi félagsins, sem átti að halda mánudaginn 20. október nk., til þriðjudagsins 18. nóvember nk. Sjeikinn og Ólafur Ólafsson, stjórn- arformaður Alfesca og stór hluthafi í Kaupþingi, eru miklir vinir og hafa meðal annars stundað veiðar saman í Afríku. Sjeikinn hættir við Alfesca-kaup Var ekki búinn að fá hlutinn afhentan Morgunblaðið/Árni Sæberg Alfesca Ólafur Ólafsson stjórn- arformaður á aðalfundi 2007. NORSK stjórnvöld heimiluðu í gær- kvöldi, að Royal Bank of Scotland leysti til sín 9,98% hlut Kaupþings í norska tryggingafélaginu Store- brand. Tilkynnt var um söluna í fyrradag en í gæmorgun frysti skila- nefnd norska fjármálaeftirlitsins, sem tekið hefur Kaupþing í Noregi yfir, sölu bréfanna. Reutersfréttastofan hafði í gær- kvöldi eftir skilanefndinni, að salan gæti farið fram. Eftir skoðun á mál- inu væri ljóst, að Royal Bank of Scot- land hefði átt veð í bréfunum og því væri fallist á að þau yrðu leyst út. Verðmæti hlutarins í trygginga- félaginu Storebrand sem færður var til RBS jafngilti um 17,6 milljörðum íslenskra króna. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins var um óvenjulega lágt verð fyrir hlutinn að ræða. Norska fjármálaeftirlitið greip inn í stjórn Kaupþings í Noregi á sunnu- dag og setti bankann þar í greiðslu- stöðvun. Norsk stjórnvöld sögðu það í verkahring tryggingarsjóðs innlána eða skilanefndar að ráðstafa hlutn- um í Storebrand en ekki Kaupþings. Norðmenn sögðu já RBS fær tæp 10% afhent í Storebrand

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.