Morgunblaðið - 15.10.2008, Síða 20
Biblíumatur í Neskirkju
Jesús var veislumaður, en hvers konar mat borðaði
hann? Hverjar eru matarhefðir Biblíunnar?
Næstu fimmtudagshádegi verður í Neskirkju eldaður
biblíumatur og matarmenningin kynnt.
Sr. Sigurður Árni Þórðarson og Ólafía Björnsdóttir
elda. Fimmtudaginn 16. október, verður
kjúklingaréttur Maríu í Nasaret. Kynning hefst kl. 12.
Allir fá svo uppskriftina.
Biblían þjónar lífinu, hinu líkamlega líka.
Svo er auðvitað aukabónus
að þessi heilsumatur er bragðgóður!
Allir velkomnir.
Neskirkja.is
daglegtlíf
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
Við vorum bara orðin þreyttá því að skilja ekki hvaðvar í gangi. Atburðir síð-ustu viku voru svo hraðir
að það hefur verið erfitt fyrir okkur
að fá yfirsýn og þess vegna ákváðum
við að halda málfund til að hjálpa
nemendum við það,“ segir Helga
Margrét Beck, gjaldkeri Nemenda-
félags Menntaskólans við Hamrahlíð
(NFMH).
Nemendur skólans söfnuðust
saman í hátíðarsalnum í hádeginu í
gær þegar tekin var pása frá hefð-
bundinni kennslu til að fara yfir þá
atburði sem snúið hafa íslensku
þjóðfélagi á annan endann síðustu
vikuna. Áður hafði nemendum gefist
færi á að senda nemendafélaginu
spurningar um fjármálaástandið og
var Guðmundur Ólafsson, lektor í
hagfræði við Háskóla Íslands, feng-
inn til að svara þeim eftir bestu getu
og fara yfir stöðuna á mannamáli.
Getum við eitthvað gert?
Margar spurningar brenna á
vörum menntskælinga og fengu þeir
útrás fyrir einhverjar þeirra þegar
opnað var fyrir umræður, m.a. hvað
þyrfti að gera til að koma í veg fyrir
að sagan endurtæki sig, hvað Rús-
salánið raunverulega þýddi og hvort
við sem einstaklingar gætum gert
eitthvað til að ástandið batnaði hrað-
ar.
Einn nemandi sem tók til máls
velti því upp hvort efast mætti um
gæði háskólanáms í ljósi þess hversu
mistæk fjármálaráðgjöf bankanna
til almennings hefur verið. Öðrum
lék forvitni á að vita hverjir færu á
endanum verst út úr kreppunni, lág-
launafólk, meðalmaðurinn eða aðrir?
Áhyggjur af framtíðinni
Talað hefur verið um að búast
megi við brottflutningi ungs fólks
frá landinu á næstu árum sem muni
leita betri kjara annars staðar eða
kjósa að snúa ekki heim aftur að
námi loknu verði ekkert að gert.
Skiljanlega er framtíðin mennta-
skólanemum hugleikin og velta þeir
margir fyrir sér hvaða kjör muni
bíða þeirra eftir útskrift.
„Margir hér eru á leið í há-
skólanám, jafnvel til útlanda, og
þetta mun hafa áhrif á okkur hvað
varðar húsnæði, námslánin og allt
saman,“ segir Helga við blaðamann
eftir fundinn. Félagi hennar úr
stjórn NFMH, Kristinn Árni Lár
Hróbjartsson forseti, bætir við að
tölur um atvinnuleysi valdi nem-
endum líka áhyggjum. Námsmenn
séu flestir í hlutastarfi og ekki ólík-
legt að þeir verði fyrstir látnir fjúka.
„Ef þetta heldur svona áfram fer
Kringlan á hausinn og þá missir
hálfur MH vinnuna. Það eru margir
sem vinna með skóla og þetta hefur
áhrif á okkur öll.“
Nú þegar er orðið tvísýnt um ut-
anlandsferðir margra nemenda við
skólann. Þ.á m. var hætt við náms-
ferð til Barcelona sem átti að vera
hluti af spænskuáfanga í MH. Þá
þurfti 14 manna hópur sem útskrif-
ast nú um jólin að aflýsa útskrift-
arferð til Dóminíska lýðveldisins og
að sama skapi er hætt við að Hamra-
hlíðarkórinn komist ekki í áætlaða
söngferð til Frakklands þar sem
óvíst er um stöðu fyrirtækja sem
ætluðu að styrkja ferðina. Kristinn
og Helga nefna líka byggingu tón-
listarhúss, listaháskóla og fleiri
verkefni sem tvísýnt sé um og hafi
áhrif á alla í samfélaginu.
Kristinn segir að NFMH hafi talið
málþingið vænlegra til árangurs en
að rjúka til mótmæla, „þegar fólk
veit ekki hverju, hverjum og hvernig
það á að mótmæla. Það er ekki hægt
að mótmæla gjaldþroti“. Hann
bendir á að sagt hafi verið að nið-
ursveiflan gæti varað næstu fimm
árin, eða fram að því þegar nýstúd-
entar nú muni flestir útskrifast úr
háskólanámi.
„Það eru mjög margir í þjóðfélag-
inu núna sem örvænta, sem sjá bara
svart og vita ekki hvað þeir geta
gert,“ segir Helga. „Okkur langar að
fólkið geti séð ljósið við enda gang-
anna.“
Kreppan kemur okkur öllum við
Morgunblaðið/Frikki
Áhyggjufull Kreppan brennur á menntaskólanemum eins og öllum öðrum og fjölmenntu MH-ingar í hátíðarsalinn til að ræða málin, enda fróðleiksfúst fólk.
Með atburðum liðinnar
viku hefur almenningur
gert sér æ betur grein fyr-
ir því að fjármálakrepp-
an kemur öllum við,
hvort sem það eru
áhættufjárfestar eða
venjulegir mennta-
skólanemar. Una Sig-
hvatsdóttir ræddi krepp-
una með MH-ingum.
Morgunblaðið/Frikki
Stjórnin Kristinn Árni Lár Hróbjartsson og Helga Margrét Beck úr stjórn
NFMH vildu með málþinginu hjálpa menntskælingum að skilja gang mála.
ÞEIR Andri Freyr Þórðarson og
Pétur Már Sigurjónsson, báðir
nemendur á lokaári, eru ánægðir
með málfundinn. „Þetta var mjög
upplýsandi og gott framtak hjá
nemendafélaginu. Mér fannst ég
heyra hluti sem ég hafði ekki heyrt
fyrr,“ segir Pétur.
„Þetta er allt búið að gerast svo
hratt, nýjar fréttir á hverjum degi,
svo maður gat ekki áttað sig al-
mennilega á þessu í samhengi,“
bætir Andri við. Meðal MH-inga er
vaxandi meðvitund um áhrif efna-
hagsvandans að sögn strákanna og
mikið talað um „helvítis kreppuna“
á göngum skólans. Þeir eru sam-
mála um að þótt menntaskólanem-
ar verði kannski ekki verst úti eins
og er þá hafi samt flestir áhyggjur
af kreppunni, ekki síst atvinnu-
ástandinu og hvernig muni ganga
að fá vinnu eftir útskrift. Margir
endurskoði nú eflaust framtíð-
arplönin. „Ég ætlaði að reyna að
ferðast eitthvað eftir útskrift, áður
en ég færi í háskóla,“ segir Pétur.
„En það getur verið að ég hætti við
það núna og fari bara beint í fram-
haldsnám.“
„Helvítis
kreppan“
tíðrædd
Morgunblaðið/Frikki
REKTOR Menntaskólans við
Hamrahlíð, Lárus H. Bjarna-
son, ávarpaði nemendur sína
áður en málþingið hófst.
Hann minnti m.a. á að með-
an önnur verðmæti töpuðust
sköpuðu nemendur sér sjálfir
eigin verðmæti dag hvern.
„Sú innistæða sem maður
eignast hjá sjálfum sér með
menntuninni er miklu traust-
ari en nokkur bankainn-
istæða,“ sagði Lárus. Hann las
að lokum fyrir nemendur ljóð
eftir Stein Steinarr, með
sterkri skírskotun í íslenskt
samfélag.
Að sigra heiminn
Að sigra heiminn er eins
og að spila á spil
með spekingslegum svip
og taka í nefið.
(Og allt með glöðu geði
er gjarna sett að veði).
Og þótt þú tapir, það gerir
ekkert til,
því það er nefnilega vit-
laust gefið.
Menntun ofar öllu
|miðvikudagur|15. 10. 2008| mbl.is