Morgunblaðið - 15.10.2008, Side 27

Morgunblaðið - 15.10.2008, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 27 MINNINGAR ✝ Jónas R. Jónas-son, fyrrum fulltrúi hjá Land- síma Íslands, fædd- ist á Sauðárkróki 1. febrúar 1911. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 6. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Ágústa Run- ólfsdóttir f. 1.8. 1892, d. 23.6. 1972, og Jónas Jónasson, f. 4.9. 1884, d. 1912. Jónas R. átti einn albróður, sem dó í frumbernsku. Seinni eig- inmaður Ágústu var Páll Jó- hannsson, f. 1888, d. 1981, og eignuðust þau níu börn: Ingi- björgu, Nönnu Soffíu, Lárus Kristin, Jóhann, Sigurð, Ragnar, Kristján Leó, Nönnu Regínu og Ástu Lovísu. Jónas R. kvæntist Fanney Jónasdóttur 13.9. 1930. Hún fæddist 14.2. 1912 á Sauðadalsá, V-Húnavatnssýslu, og lést 19.8.1991. Dætur þeirra eru þrjár: Guðrún Erla, f. 24.9. 1930; Sigrún, f. 25.7. 1942; Fann- ey, f. 2.12. 1948. Guðrún Erla var gift Baldri Jónas- syni, d. 1976. Þau eignuðust tvö börn, Vilborgu og Jónas. Sigrún var gift Sigurvin Hannibals- syni. Þau skildu. Þeirra börn eru fjögur: Svala, Hannibal, Arnór og Harpa Sif. Sam- býlismaður Sigrúnar er Hans Óli Hansson. Fanney er gift Steinþóri V. Guðmundssyni og eiga þau þrjár dætur: Þórhildi, Ragnheiði og Valgerði. Afkomendur Jónasar R. og Fanneyjar eru þrjátíu og fjórir. Jónas sinnti ýmsum störfum á unglingsárum, en vann síðan alla sína starfsævi hjá Landsíma Ís- lands. Útför Jónasar R. verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 15. Elsku afi. Mikið er skrýtið að hugsa til þess að eiga ekki eftir að sjá þig aftur. Þú varst svo fastur punktur í tilveru okkar. Það var einstakt að eiga afa sem hélt heimili allt fram á 98. ald- ursár, geta komið við í notalegan te- sopa og hlustað á sögur af ævintýra- legum ferðum þínum um landið í lífi og starfi. Þú gast nefnt hvert manns- barn og hvern stein í hverri sveit og varst botnlaus uppspretta fróðleiks um ólíklegustu málefni, allt frá Ís- lendingasögunum til nýjasta slúð- ursins um Britney Spears. Margar frásagnir þínar af gömlu tímunum minntu okkur jafnframt rækilega á þau þægindi sem við bú- um við í dag. Þegar þú varst fjórtán ára í vegavinnu og þurftir að hefja hvern dag á því að þíða klaka úr stíg- vélunum þínum yfir prímus. Það er úr fjölmörgum skemmti- legum minningum að velja en um- fram allt varstu okkur góð fyrir- mynd. Okkur er ofarlega í huga umburðarlyndi þitt, réttsýni og ör- læti. Einnig var þér alltaf mest um- hugað um aðra, allt fram á síðustu stundu. Þú bjóst yfir góðum húmor og prakkarinn var aldrei langt undan. Við sjáum ljóslifandi fyrir okkur grallaralegt bros þitt og hvernig þú undirstrikaðir kaldhæðnislegt grín með sposkum svip. Okkur fannst þú langflottasti af- inn, algjör töffari í leðurjakkanum, með silkitrefil um hálsinn og vel snyrt yfirvaraskegg, eins og klipptur út úr gamalli Hollywood-mynd. Við munum sakna þín, ekki síst um jólin, hver á nú að þykjast vera með möndluna úr grautnum? Ástarkveðjur til ömmu. Takk fyrir samveruna allt okkar líf. Þórhildur, Ragnheiður og Valgerður. Aldurhnigin hetja hefur lokið göngu sinni hér á jörð. Ekki þurfti andlátsfregn Jónasar R. Jónassonar að koma okkur, sem fylgst höfum með heilsu hans, neitt á óvart, en alltaf er það svo að slíkar fréttir snerta einhvern streng í hjarta þeirra sem til þekkja. Svo var snert- ingin heit að kveikt var á kerti fyrir Jónas í Gjábakka á mánudaginn eftir að fregnin barst. Jónas var einn þessara manna sem hafa afar þægilega nærveru. Ekki er auðvelt að útskýra hvers- vegna en kannske var ástæðan hóg- værðin og mannkærleikurinn í hug- skoti hans. Jónas var gjafmildur og snyrtimennska og nákvæmni var honum í blóð borin. Hann hafði miklu að miðla til samferðamann- anna, enda stálminnugur um allt sem hafði hent hann á langri ævi. Hann hafði kynnst örbirgð og allsnægtum af eigin raun og skynsemi hans gerði honum kleift að sjá gæfuna í hvoru- tveggja. Jónas taldi sig hafa verið afar heppinn einstakling. Á sínum mann- dómsárum varð konuefnið á vegi hans, kvenkosturinn og gæðakonan Fanney Jónasdóttir. Jónas og Fann- ey eignuðust þrjár mannvænlegar dætur sem var honum ómetanleg gæfa því að eftir að hann varð hjálp- arþurfi hafa dætur hans Sigrún og Fanney aðstoðað hann af alúð og nærgætni. Hann taldi það grimm ör- lög, en jafnframt mikla reynslu, að elsta dóttir hans, Erla, hefur lengi verið heilsulaus og ég veit að þessi reynsla markaði djúp sorgarspor í hans raunsæja sjálf. Það var ekki ætlun að rita hér æviágrip heldur aðeins að þakka Jónasi samfylgdina og færa honum þakkir fyrir blómin og gómsætið sem hann gaukaði að okkur, starfs- mönnum Gjábakka, við hin ótrúleg- ustu tækifæri. Með þessum ljóðlínum kveðjum við þessa alþýðuhetju og þökkum fyrir kímnina, fróðleikinn og þá virð- ingu sem hann sýndi okkur, starfs- mönnum Gjábakka. Og nú er leiðir skiljast og vetur sest að völdum, þá verður þetta síðasta kveðjuóskin mín. Að vorið eigi í hjarta þínu völd á dögum köldum og vefji sínu fegursta skarti sporin þín. (Jón frá Ljárskógum.) Aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Jónasar R. Jónassonar. F.h. starfsmanna Gjábakka, Sigurbjörg Björgvinsdóttir. Jónas R. Jónasson                                        ✝ Okkar ástkæri GUÐMUNDUR A. ÞÓRÐARSON, Holtsflöt 4, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 12. október. Útförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 20. október kl. 14.00. Málfríður K. Björnsdóttir, Guðrún H. Guðmundsdóttir, Björn Guðmundsson, Skúlína H. Guðmundsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Guðmundur Benediktsson, Þórður Guðmundsson, Guðný Hrund Rúnarsdóttir, Ólöf Ásta Guðmundsdóttir, Guðmundur Guðjónsson og afabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐLAUG MARTEINSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður til heimilis á Brúarflöt 2, Garðabæ, lést föstudaginn 10. október. Jarðsungið verður frá Garðakirkju, Garðabæ mánudaginn 20. október kl. 15.00. Guðjón Ólason, María Guðbjörg Óladóttir, Flóvent Johansen, Sigurlaug Maren Óladóttir, Smári Hauksson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, BRYNDÍS G. THORARENSEN, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð sunnudaginn 12. október. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 20. október kl. 15.00. Kristín Thorarensen, Örn Vigfússon, Guðríður M. Thorarensen, Þórður Ásgeirsson, Egill Thorarensen, Ásdís Matthíasdóttir, Guðlaugur Thorarensen, Gloria Thorarensen, Daníel Thorarensen, Sigurður Thorarensen, Áslaug Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Stellu vinkonu minni kynntist ég fyrir fjörutíu og sjö árum þegar við fluttum með fjölskyldum okkar í sama húsið á Höfðabrautinni. Við bundumst fljótt sterkum vináttuböndum sem héldust alla tíð síðan. Við gerðum margt saman. Í mörg ár fórum við saman í laugina og gufu á fimmtudagskvöld- um og í mörg ár fórum við saman í húsmæðraorlof. Hlutverk okkar beggja var svipað. Við vorum heima- vinnandi húsmæður og börnin okkar voru á svipuðu reki. Við fylgdumst Þorgerður Bergsdóttir ✝ ÞorgerðurBergsdóttir fæddist í Reykjavík 24. maí 1928. Hún andaðist á Sjúkra- húsi Akraness 6. október síðastlið- inn. Útför Þorgerðar var gerð frá Akra- neskirkju 10. okt. sl. með börnunum hvor hjá annarri og glödd- umst saman yfir vel- gengni barna og barnabarna. Nú sakna ég Stellu en minningin um ynd- islega manneskju yljar og ég bið henni bless- unar á nýjum braut- um. Ég og fjölskylda mín biðjum afkomend- um og öðrum aðstand- endum Stellu blessun- ar og ég fæ lánuð orð Halldórs á Ásbjarnar- stöðum. En þegar nú að hinzta brunni ber, brostinn er hlekkur okkar tengikeðju, finn ég hve tregða tungu-málsins er, túlkunin smá í einni vinarkveðju, – skiljumst því hér í blóma sólskinsbæn, – blóm, sem hvísla, en tala ei né skrifa –: svo jörðin verði græn og aftur græn, gefi þeim frið sem hverfa – og þeim sem lifa. Þuríður Skarphéðinsdóttir. ✝ Vívíann MaryJonsson Gjö- veraa fæddist í Klakksvík í Fær- eyjum 4. desember 1940. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudag- inn 7. október síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Eirik Simon Jonsson og Mabel Dybvik, þau skildu. Bróðir Víví- ann er Geir Jonsson, bróðir samfeðra Jögvan Eirik og systur sam- mæðra Maj-Britt og Eli Margret. Hún fluttist með móður sinni og bróður, Geir, til Hvalba á Suðuroy 3 ára gömul. Þaðan fór móðir hennar til Noregs að vinna og þau Vívíann og Geir ólust upp hjá móðurforeldrum í Hvalba. Vívíann giftist Finn Eickhardt í Danmörku. Sonur þeirra er Erik Vil- helm, f. 17. nóvem- ber 1964. Þau flutt- ust síðan til Íslands en skildu fljótlega. Hún giftist síðar Alexander Gjö- veraa. Hann fórst með Sjöstjörnunni í febrúar 1973. Sonur þeirra er Geir, f. 4. júlí 1968. Hún var síðan í sambúð með Erni Ragnarssyni á Hornafirði árin 1976-2005. Vívíann eignaðist 5 barnabörn. Hún starfaði sem sjúkraliði lengst af starfsævi sinni á hinum ýmsu sjúkrastofnunum í Fær- eyjum, Danmörku og á Íslandi. Útför Vívíann fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Vívíann Gjögveraa okkar góða vin- kona ólst upp á Hvalba á Suðurey í Færeyjum. Ung stúlka flutti hún til Íslands og settist hér að. Hér undi hún hag sínum vel hér en var þó alltaf færeysk í hjarta sínu. Við hjónin kynntumst Vívíann á Norðfjarðarspítala fyrir nærri 40 ár- um. Þá var hún búsett á Norðfirði ásamt manni sínum Alexander og átti tvo litla drengi. Vívíann sem var sjúkraliði var dug- leg að vinna, snör í snúningum og létt í lund. Hún hló innilega og gerði að gamni sínu og kom okkur til að hlæja. Það sópaði að henni á göngum spít- alans. Hún talaði líka með skemmti- legum færeyskum hreim. Eftir eitt ár á Neskaupstað fluttum við burtu. En alltaf héldum við sam- bandi við Víví og fjölskyldu. Hún flutti til Færeyja í fáein ár með mann og börn. Árin liðu og hún varð fyrir áfalli, missti mann sig og varð ein með drengina sína. Hún flutti þá til Reykjavíkur. Hún starfaði um nokk- urt skeið á Borgarspítala sem sjúkra- liði. Henni leið þar vel og eignaðist þar góða vini. Hún kom oft í heimsókn til okkar á þessu árum. Stundum með færeyska vini sína. Hún bauð okkur alltaf með á allar skemmtanir Færeyingafélagsins þar sem „farið var upp á gólv“ og dansaður hringdans með tilheyrandi kvæðasöng. Þar var matur frá Fær- eyjum á boðstólum, skerpikjöt, knett- ir og annað góðgæti. Hlakkaði hún mikið til að smakka þetta. Og kenndi okkur að meta þetta lostæti. Seinna hitti hún Örn og flutti þá austur á Hornafjörð og bjó þar nærri 30 ár. Þar fann hún sig heima og þar ólust strákarnir upp. Vívíann vann þar við hjúkrun aldraðra í mörg ár og leið vel. Í mörg ár fór hún alltaf heim til Færeyja á Ólafsvöku. Þar hitti hún vini og frændfólk sitt. Tók hún ferjuna frá Seyðisfirði. Lengi átti hún bíla sem höfðu númerið Víví, þannig að maður sá langar leiðir hvar hún var stödd. Hún naut þessara ferða mjög og að halda góðu sambandi við gamla landið sitt. Árin liðu en alltaf vorum við í sam- bandi bréflega eða símleiðis. Hittumst líka í Færeyjum og annars staðar en það gat liðið langt á milli funda okkar. Alltaf var samt eins og við hefðum verið nálægt hvort öðru allan tímann. Seinustu árin voru Víví erfið á margan hátt og hafði hún verið veik í talsverðan tíma. Hún heyrðist ekki kvarta mikið og gerði að gamni sínu þegar við hittumst. Synir hennar hafa reynst móður sinni mjög vel og vinir hennar sömuleiðis. Við hjón sendum fjölskyldu Vívíann okkar innilegustu samúðarkveðjur og þökkum henni fyrir langa vináttu og tryggð. Megi hún hvíla í friði. Jóhann Marinósson. Vívíann Mary Jonsson Gjöveraa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.