Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 29
✝ Svanhvít Frið-riksdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 29.
janúar 1925. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Sunnuhlíð þriðju-
daginn 7. október
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Friðrik
Ingimundarson, f.
17. september
1894, d. 20. febr-
úar 1983 og Svein-
björg Sveinsdóttir, f. 2. apríl
1898, d. 4. september 1977. Þau
hjónin bjuggu lengst af í Vest-
mannaeyjum.
Svanhvít giftist hinn 24. ágúst
börn: Kristin, f. 22. nóvember
1971, Jakob, f. 27. janúar 1978
og Svanhvíti, f. 1. september
1982. Dóttir Friðriks og Helgu
Guðjónsdóttur er Sigurrós, f. 20.
ágúst 1967. b) Flóki, f. 21. októ-
ber 1951, kvæntist 9. mars 1974
Ásdísi Sigurþórsdóttur, f. 23.
febrúar 1954. Foreldrar hennar
eru Sigurþór Ísleiksson og
Ólafía Kristín Sigurðardóttir.
Flóki og Ásdís eiga 2 dætur,
Birtu, f. 29. febrúar 1976 og
Heklu, f. 8. apríl 1988.
Svanhvít var undir tvítugu
þegar hún fluttist til Reykjavík-
ur. Fyrstu árin var hún í vist,
eins og þá var kallað, vann á
saumastofu Hagkaupa og síðar
verksmiðjustörf hjá ORA, en
lengst af var hún heimavinn-
andi.
Lengst af bjuggu þau hjónin
Svanhvít og Kristinn í Fögru-
brekku 16 í Kópavogi.
Útför Svanhvítar fer fram frá
Fossvogskapellu í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
1946 Kristni Sigur-
jónssyni, f. 4. apríl
1923, d. 20. ágúst
1993. Foreldrar
hans voru hjónin
Sigurjón Arnlaugs-
son, f. 15. júlí 1877,
d. 10. desember
1959 og Steinþóra
Þorsteinsdóttir, f. 4.
júní 1883, d. 8. febr-
úar 1945. Svanhvít
og Kristinn eign-
uðust tvo syni, þeir
eru: a) Friðrik, f.
30. mars 1946,
kvæntist 27. júní 1970 Þóru Jak-
obsdóttur, f. 16. maí 1947. For-
eldrar hennar eru Jakob Þor-
steinsson og Ásta Þórðardóttir.
Friðrik og Þóra eiga saman 3
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Elskuleg tengdamóðir mín,
Svanhvít Friðriksdóttir, er látin,
83 ára að aldri og vil ég kveðja
hana með þessum litla sálmi.
Svana eins og hún var oftast
kölluð, var fædd í Vestmannaeyj-
um 29. janúar 1925, næstelst í
fjögurra systkina hópi. Elín var
elst, þá Svana, Friðrik og Matt-
hildur. Frændgarðurinn í Vest-
mannaeyjum var stór og margar
skemmtilegar sögur hafa verið
sagðar frá þeim tíma þegar hún
var að alast þar upp.
Á þessum árum voru efnin ekki
mikil og sjálfsagt þótti að allir
færu að vinna fyrir sér strax og
getan leyfði. Svana fór því til
Reykjavíkur í vist strax um tví-
tugt. Hún kynntist fljótlega
Kristni Sigurjónssyni sem varð
hennar lífsförunautur. Þau eign-
uðust tvo yndislega syni, Friðrik
og Flóka. Þegar ég var aðeins 13
ára gömul skólastelpa, sagði Maja
vinkona mín: Við skulum fara og
heimsækja hana Svönu, konuna
hans Kidda frænda, hún er svo
skemmtileg og talar við unglinga
eins og fullorðið fólk. Þangað fór
ég með henni, var henni alveg
sammála, og var síðan tengdadótt-
ir hennar í 38 ár.
Svana og Kiddi voru ákaflega
samrýnd hjón. Fjölskylda Kidda
var stór og þau óþreytandi að
kalla fólk saman, og var þá oft
mikið hlegið, jafnvel sungið og
spilað því tónlistin var í hávegum
höfð. Árið 1971 fluttu þau í Fögru-
brekku í Kópavogi, og hófst þá
nýtt tímabil í lífi Svönu en það var
garðurinn. Hann var hennar líf og
yndi, og engu til sparað í tíma og
vinnu. Það er yndislegt að minnast
liðinna tíma í Fögrubrekkunni,
krakkarnir að veltast um í grasinu
og þeir fullorðnu að gæða sér á
kaffiveitingum úti á stétt.
Svana var óþreytandi að hjálpa
sonum sínum og þeirra fjölskyld-
um með ráðum og dáð á allan hátt,
við Friðrik bjuggum hjá þeim um
tíma og oft var gott að geta leitað
til ömmu með barnapössun.
Barnabörnin urðu sex og barna-
barnabörnin tvö, ekkert gladdi
hana meira en að sjá þau. Það var
mikið áfall 20. ágúst 1993 þegar
Kiddi lést sviplega af slysförum. Á
nokkrum klukkutímum var hann
horfinn úr lífi okkar, kletturinn
sem alltaf var hægt að reiða sig á.
Allt í einu var Svana ein í Fögru-
brekkunni og það var þungbært.
Árið 1995 flutti hún í indæla íbúð í
Fannborg 8, þar sem hún kynntist
ágætu fólki, þar átti hún góð ár,
þar til heilsan fór að bila. Síðustu
árin hafa verið henni erfið, ég vildi
óska að við hefðum getað á ein-
hvern hátt gert henni hlutina létt-
bærari. Nú í sumar komst hún á
Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð, hún
fékk ekki að njóta þess að vera þar
nema nokkrar vikur, þá var hún
farin. Ég vil trúa því að nú líði
henni vel, nú horfir hún brosandi
niður til okkar, vonandi í fé-
lagsskap allra þeirra sem farnir
voru á undan og hún saknaði, og
þá að sjálfsögðu Kidda. Ég vil
þakka henni árin öll og fyrir allt
sem hún var minni fjölskyldu.
Guð blessi minningu Svanhvítar
Friðriksdóttur.
Þín tengdadóttir
Þóra Jakobsdóttir.
Elsku amma mín, þegar ég
hugsa um þig koma upp í huga
minn margar góðar minningar sem
ylja mér um hjartarætur og fá mig
til að brosa.
Kaffiboðin í Fögrubrekkunni
þar sem kökurnar þínar runnu
ljúflega niður. Þegar hlúð var að
rósunum í garðinum. Þegar við
horfðum saman á flugeldana á ára-
mótunum og þegar þú sást börnin
mín nýfædd þá ljómaðir þú öll
upp. Þú hafðir alltaf óbilandi trú á
mér sama hvað ég tók mér fyrir
hendur og er ég þér þakklát fyrir
það. Ég er svo ánægð að hafa ver-
ið skírð í höfuðið á þér og að hafa
fengið að ganga þennan hluta af
lífsins vegi með þér.
Ég elska þig, amma mín, guð
geymi þig.
Þín alnafna
Svanhvít Friðriksdóttir.
Ástkær amma mín, Svanhvít
Friðriksdóttir, verður jarðsungin í
dag. Við amma bjuggum saman
um tíma, urðum þannig nánar vin-
konur og var hún mér ávallt ein-
staklega hjartfólgin.
Fyrstu ár ævi minnar bjó ég
ásamt foreldrum mínum á neðri
hæðinni hjá afa og ömmu í Fögru-
brekku og gætti amma mín þá yfir
daginn. Nábýlið við ömmu og afa
gaf mér mikið og gott var að geta
stokkið upp tröppurnar á milli
hæða hvenær sem maður vildi, oft
á náttkjólnum til að kyssa alla
góða nótt eða bara til að spjalla.
Svana amma var einstaklega hlý
og góð manneskja. Hún var alltaf
róleg, yfirveguð og mjög heima-
kær. Hún hafði mikið jafnaðargeð
og lagði mikið upp úr því að lifa í
sátt og samlyndi við alla. Hún
hafði sérlega gaman af börnum og
var alveg ekta „amma“ eins og
þær gerast bestar. Hjá henni var
heimilið alltaf til fyrirmyndar, það
var alltaf allt hreint og fínt og röð
og regla á öllum hlutum. Þar sem
hún vann heima gat maður alltaf
verið að skottast með henni og
fengið að taka þátt í því sem hún
var að stússast, hvort sem það var
garðvinna, bakstur, saumaskapur
eða annað. Hún tók mér alltaf opn-
um örmum, var þolinmóð, talaði
hlýlega til mín og kallaði mig „litla
ljósið sitt“.
Á unglingsárunum bjó ég einnig
um tíma hjá afa og ömmu og þegar
afi féll frá fyrir 15 árum, þá bjugg-
um við amma áfram tvær saman í
nokkur ár. Þar sem ég er mikill
kattavinur og amma svo góð í sér,
þá tókst mér á þessum tíma að fá
leyfi fyrir nýjum íbúa í Fögru-
brekku. Sá var mjög geðstirður og
sérlundaður bröndóttur köttur
sem fékk rangnefnið Kátína.
Amma var samt auðvitað fljót að
vinna hug og hjarta ferfætlingsins
með blíðlegu tali og kræsingum,
þannig að Kátína elti hana hvert
fótmál, meðal annars út í kjörbúð
þar sem hún beið fyrir utan á með-
an amma var að versla, til að geta
fylgt henni heim aftur. Þannig var
amma, manni leið alltaf vel í návist
hennar, enda var sambúð okkar
ávallt ánægjuleg og það bar aldrei
skugga á samskipti okkar.
Það er mjög sárt að sjá á eftir
elsku ömmu, en hjarta mitt er fullt
af þakklæti fyrir það liðna, hlýjum
tilfinningum og góðum minningum
sem munu lifa áfram.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Birta Flókadóttir.
Svanhvít
Friðriksdóttir
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
KRISTÍNAR GESTSDÓTTUR,
Goðabraut 22,
Dalvík.
Bestu þakkir til allra þeirra er veittu henni aðstoð og
umhyggju í hennar erfiðu veikindum.
Friðþjófur Þórarinsson,
Þorsteinn Friðþjófsson, Harpa Sigfúsdóttir,
Björn Friðþjófsson, Helga Níelsdóttir,
Atli Viðar, Silja, Kristinn Þór, Andri Freyr,
Rúnar Helgi og Daníel.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUNNLAUGAR F. OLSEN,
Kirkjuvegi 14,
Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks D-deildar
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir auðsýnda
alúð, umönnun og hlýju. Einnig til Skátafélagsins
Heiðarbúa.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jón Kr. Olsen.
✝
Heilshugar þakkir fyrir þá virðingu og kærleika sem
sýnd var
SIGURBIRNI EINARSSYNI
þegar hann kvaddi, og alla samúð sem við nutum.
Guð launi það og blessi allt.
Börnin hans og fjölskyldur þeirra.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
RÖGNVALDUR ÞÓR ÞÓRÐARSON
frá Ísafirði,
Lækjarsmára 6,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn
13. október.
Útför hans fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 22. október
kl. 13.00.
Elín Skarphéðinsdóttir,
Magnea Rögnvaldsdóttir,
Rósa Matthíasdóttir, Freyr Baldursson,
Skarphéðinn Smith, Sigurpála Birgisdóttir,
Elín Rósudóttir, Jón Heiðar Víðisson,
Andri Þór Bjarnason,
Ragna Lind Bjarnadóttir,
Anita Ýr Ævarsdóttir
og langafabörn.
✝
Okkar kæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur og
afi,
ANDRÉS EMIL BJARNASON,
Sjávargötu 34,
Álftanesi,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 7. október.
Fjölskyldan þakkar vináttu, stuðning og hlýhug í
veikindum og við andlát Andrésar.
Sérstakar þakkir viljum við færa hjúkrunarfólki og lækni Heimahlynningar
fyrir kærleiksríka aðhlynningu. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
Andrésar.
Gréta Konráðsdóttir,
Sveinn Ingi Andrésson, Auður Björk Gunnarsdóttir,
Hanna Andrésdóttir, Anton Gylfi Pálsson,
Bjarni Sigurður Andrésson,
Fannar Már Andrésson,
Guðrún Emilsdóttir,
Emilíana Guðrún Antonsdóttir,
Sigþór Svavar Jóhannesson.