Morgunblaðið - 15.10.2008, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 33
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HALLÓ, ÉG ER
FEITUR, LATUR
KÖTTUR
HVAÐ
HEITIR ÞÚ?
GERTTIR BÍDDU
AÐEINS
HRINGDU Í
LÖGFRÆÐING
SUMT FÓLK
ER MEÐ ÞAÐ
SEM KALLAST
„HAPHEPHOBIA“
HVAÐ Í HEIMINUM ER
„HAPHEPHOBIA“? AH!
HRÆÐSLA VIÐ ÞAÐ
AÐ VERA SNERTUR
MIG DREYMDI ÆÐISLEGAN DRAUM Í MORGUN. MIG DREYMDI
AÐ MEÐ ÞVÍ AÐ HALDA HÖNDUNUM Á MÉR ÚT TIL HLIÐANNA
GAT ÉG ÝTT MÉR UPP Í LOFTIÐ. ÞEGAR ÉG BLAKAÐI HÖNDUNUM
HRAÐAR FÓR ÉG HÆRRA OG HÆRRA. EFTIR SMÁ STUND SVEIF
ÉG YFIR TRJÁNUM OG SÍMASTAURUNUM! ÉG GAT FLOGIÐ!
ÉG SVEIF TIGNARLEGA YFIR HVERFIÐ OG ALLIR HORFÐU Á
MIG MEÐ UNDRUN. ÉG FLAUG SVO HRATT AÐ ÉG FÉKK TÁR
Í AUGUN. ÉG ÞAUT UM HIMININN OG FÓR MEIRA AÐ SEGJA
Í MARGA HRINGI! ÞAÐ VAR SVO GAMAN AÐ ÉG GAT EKKI HÆTT
AÐ HLÆJA... ÞÁ KOM MAMMA INN OG SAGÐI MÉR AÐ EF ÉG
KÆMI MÉR EKKI Á FÆTUR Á STUNDINNI ÞÁ MUNDI ÉG MISSA AF
SKÓLABÍLNUM. TUTTUGU MÍNÚTUM SÍÐAR STEND ÉG HÉRNA Í
RIGNINGUNNI OG BÍÐ EFTIR ÞVÍ AÐ FARA Í SKÓLANN, OG ÉG VAR
AÐ ÁTTA MIG Á ÞVÍ AÐ ÉG GLEYMDI NESTINU MÍNU HEIMA...
MIÐVIKUDAGAR
VERÐA EKKI MIKIÐ
VERRI EN ÞETTA
ÞIÐ GRÆÐIÐ EKKERT
Á ÞVÍ AÐ KVARTA...
ALLAR
DÝFLISSURNAR
Í RÍKINU ERU
FULLAR
MAÐUR GETUR
EKKI LIFAÐ Á
ÞVÍ AÐ VERA
JÓGAKENNARI
NÚ TIL DAGS...
ÞANNIG AÐ
ÉG ER LÍKA
MEÐ TÖLVU-
ÞJÓNUSTU
HVAÐ
SEGIR ÞÚ
GOTT,
MAMMA?
HANN ER VISS UM
AÐ HANN VERÐI
RÍKUR Á ÞESSU. HANN
HEFUR EYTT ALLRI
VIKUNNI Í LEIT AÐ
FJÁRFESTUM
HVAR? EF ÞÚ BÝRÐ TIL GULRÓTASÚPU
SKAL ÉG LEGGJA TIL 50.000 kr.
PABBI ÞINN
GETUR EKKI
HÆTT AÐ
HUGSA UM
ÞESSA
KOFFÍNSÚPU
ÞAÐ ER FÓLK
SEM BÝR
HÉRNA
Í HÚSINU
SEM ER
NOKKUÐ VEL
STÆTT
OHHHH... ÞÚ
MEIDDIR
HANN
ÞETTA ER
BARA RÉTT
BYRJUNIN
KOMIÐ MEÐ
KEÐJURNAR!
DRÍFIÐ YKKUR!
EN STELPAN
ER AÐ SLEPPA!
GLEYMIÐ HENNI.
ÉG VILDI NÁ
KÓNGULÓARMANNINUM
NÚNA FÆ ÉG LOKSINS
AÐ HEFNA MÍN
Velvakandi
LJÓSMYNDARI nokkur átti leið um Laugardalinn og tók þessa skemmtilegu
mynd af manni á bekk, hann hafði ekki fyrr opnað brauðpokann en fuglarnir
hópuðust að honum til að næla sér í bita frá þessum vingjarnlega manni.
Ljósmynd/Guðbjörg Eva Guðbjartsdóttir
Boðið til brauðveislu
Taupoki tapaðist
HINN 10. október
gleymdi ég hvítum
taupoka í stræt-
isvagnaskýli á Háaleit-
isbraut 68, sem stend-
ur við Nóatúnsbúðina
þar. Þetta var á milli
kl. 14 og15 og ég var á
leiðinni í bæinn. Í tau-
pokanum var gömul
svört myndavél í
svörtu hulstri sem mér
þykir ósköp vænt um
og langar að fá til
baka. Finnanda er
heitið fundarlaunum
og getur hann hringt í
síma 561-2831 eða 848-0435. (Ég er
alltaf heima fyrir hádegi.)
Umferðarlagabrot
VIÐ sem búum á Garðavegi í
Keflavík erum orðin þreytt á að
fólk, sem býr hér á Garðavegi sem
og aðrir, keyrir oft á móti ein-
stefnu. Það eru iðulega 2 til 3 bílar
á dag sem fara á móti einstefnu.Við
höfum nokkrum sinnum nærri lent
í árekstri út af þessu
og ég, sem þetta
skrifa, hef haft sam-
band við lögregluna og
Reykjanesbæ. En ekk-
ert er gert.
D.Á.
Silfur Egils
ÞEGAR ég horfði á
Silfur Egils sunnudag-
inn 12. okt., fannst
mér hann Egill vera
svo dónalegur við Jón
Ásgeir og mér fannst
mjög illa að honum
vegið. Jón Ásgeir fékk
varla færi á að svara
eða skýra mál sitt. Það má ekki
gleyma að menn eins og Jón Ásgeir
hafa líka gert meira fyrir alþýðuna
en margur annar, ég held að fólki
myndi bregða við ef Bónus væri
ekki hérna.
Húsmóðir í Garðabæ.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8, dag-
blaðalestur og postulínsmálun kl. 9,
vinnustofa kl. 9-16.30, postulínsmálun
og útskurður kl. 13, miðvikudagsfræðsla
kl. 14, framsögn og tjáning kl. 16. Ís-
lenskar fornsögur: Egils saga kl. 20.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna og smíði/útskurður kl. 9-16.30,
heilsugæsla kl. 10-11.30. Kynning á fé-
lagstarfinu kl. 15.15.
Bólstaðarhlíð 43 | Böðun, glerlist,
handavinna, dagblöð, spiladagur.
Breiðholtskirkja | Starf eldri borgara kl.
13.30.
Bústaðakirkja | Samvera kl. 13-16.30.
Spilað, föndrað, gestir koma í heimsókn.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand-
mennt kl. 9-16, leiðbeinandi er Halldóra
Arnórsdóttir. Leikfimi kl. 10, kennari er
Guðný Helgadóttir.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan í Gullsmára er opin kl. 10-11.30.
Íslendingasögur – Egilssaga í Gullsmára
á morgun. kl. 16, umsj. Arngríms Ís-
bergs. Bingó 17. okt. kl. 13.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10.
Dans kl. 14, umsjón Matthildur og Jón
Freyr, kóræfing hjá söngfélagi FEB kl. 17.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl.
9.20, glerlistarhópar kl. 9.30 og 13,
handavinnust. opin, leiðbeinandi við kl.
10-17, félagsvist kl. 13, söngur kl. 15.15,
Guðrún Lilja með gítarinn, viðtalstími
FEBK kl. 15-16, bobb kl. 16.30, línudans
kl. 18 og samkvæmisdans kl. 19.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist
kl. 9.05, H.B. ganga kl. 10, postulínsm,
H.B. og kvennabrids kl. 13, Egilssaga kl.
16, Arngrímur Ísberg les. Jónasarvaka á
morgun kl. 20, Stefán Helgi Stefánsson
tenór og Davíð Ólafsson bassi syngja við
undirleik Helga Hannessonar, Þórður
Helgason dósent flytur æviágrip um
Jónas og átta konur flytja ljóð úr ljóða-
bókinni „Úr sumardal“ sem öll tengjast
Jónasi. Verð miða er 1.000 kr.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9, 9,45, 10,30, vatns-
leikfimi kl. 9,30 og 11,40, brids og búta-
saumur kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30, m.a. handavinna og
tréútskurður, sund og leikfimi í Breið-
holtslaug kl. 9.50, frá hádegi er spilasal-
ur opinn. Fimmtud. 13. nóv. er leik-
húsferð í Þjóðleikhúsið á „Hart í bak“.
Skráning á staðnum og síma 575-7720.
Grensáskirkja | Samvera eldri borgara
kl. 14.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9 (Erla),
útskurður, hjúkrunarfræðingur kl. 9.15,
ganga kl. 10.15, brids kl. 13.
Hraunsel | Rabb kl. 9, pútt kl. 10, línu-
dans kl. 11, saumar og gler kl. 13, pílu-
kast kl. 13.30, Gaflarakórinn kl. 16.15.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl.
9 kortagerð o.fl., jóga kl. 9, 10 og 11.
Samverustund kl. 10.30, lestur og spjall.
Böðun fyrir hádegi.
Hæðargarður 31 | Stefánsganga kl. 9,
listasmiðja 9-16, framsögn 9, ókeypis
tölvuleiðbeiningar kl. 13 og gáfumanna-
kaffi kl. 15. Rekstrasjón á sunnudag kl.
15. Rúllugjald. Uppl. í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Hópdans í Linda-
skóla kl. 15. Ringó í Snælandssk. kl. 19.
Korpúlfar Grafarvogi | Pútt á morgun á
Korpúlfsstöðum kl. 10. Listasmiðja, gler-
iðnaður og tréskurður alla fimmtudaga
og föstudaga kl. 13-16.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur kl. 10.30, hópleikfimi kl.
11, handverksstofa opin kl. 13, námskeið
í myndlist með Helgu Hansen, bingó
aðra hverja viku kl. 14.50.
Neskirkja | Opið hús – starf fyrir eldri
borgara kl. 15. Sr. Örn Bárður Jónsson.
Bókin og bækurnar: Hvað les ég? Dag-
skráin hefst með kaffiveitingum á Torg-
inu. Umsjón hefur Hjörtur Pálsson guð-
fræðingur og skáld.
Norðurbrún 1 | Félagsvist kl. 14. Opið
smíðaverkstæði – útskurður.
Vesturgata 7 | Myndmennt kl. 9-16, að-
stoð við böðun kl. 9, sund kl. 10, ferð í
Bónus kl. 12.10, tréskurður kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Fyrir hádegi
er smiðja, handavinnustofan opin allan
daginn, morgunstund kl. 10, annan
hvern miðvikudag er messa, versl-
unarferð. Eftir hádegi upplestur, bók-
band og Dans kl. 14, við undirleik hljóm-
sveitarinnar Vitabandið. Uppl. 411-9450.