Morgunblaðið - 20.11.2008, Side 1

Morgunblaðið - 20.11.2008, Side 1
F I M M T U D A G U R 2 0. N Ó V E M B E R 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 318. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is MENNING LOKSINS NÝ PLATA FRÁ GUNS’N’ROSES BESTI VINUR MANNSINS Lundernið ekki alltaf sem ljúfast ANTHONY Kristjánsson fylgist hugfanginn með fiskinum Sverri þar sem hann syndir um í nýja búrinu sínu. Starfsfólk leikstofunnar er ekki síður hrifið af Sverri og segir hann standa fyrir einn fjórða úr stöðugildi. Spjall- verjar á svokölluðu Fiskaspjalli söfnuðu peningum fyrir leikstofu Barna- spítalans og nokkrir fiskaáhugamenn fengu gæludýrabúðir til að leggja sitt af mörkum til að bæta aðstöðu Sverris.| 21 Sverrir gullfiskur gleður börnin Morgunblaðið/Golli Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is STJÓRN Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) samþykkti samhljóða á fundi í gærkvöldi að lána Íslendingum 2,1 milljarð Bandaríkjadala – um 294 milljarða króna – til tveggja ára til þess að koma á efnahagsstöðugleika hérlendis. Íslendingar fá að auki allt að 3 milljörðum dala, um 440 millj- arða kr., að láni annars staðar frá skv. áætlun sem IMF samþykkti. Danmörk, Finnland, Noregur, Svíþjóð, Rússland og Pólland lána Íslandi samtals allt að 3 milljörðum dala, en ekki fékkst uppgefið hve mikið hver þjóð myndi lána. Þá hafa Færeyingar boðið Íslend- ingum lán sem nemur um 7 millj- örðum kr., um 50 milljónum dala. Gert er ráð fyrir að fyrsti hluti láns IMF, 827 milljónir dala, verði veittur Íslendingum eftir nokkra daga og síðan komi féð í átta jöfnum greiðslum, um 155 milljónir á þriggja mánaða fresti. Lánið frá sjóðnum verður greitt til baka á árunum 2012 til 2015. Forsætisráðherra og utanríkis- ráðherra lýsa báðir yfir mikilli ánægju með ákvörðun stjórnar IMF. „Þetta er áfangi sem við höfum beðið eftir í nokkurn tíma. Ég tel hann mikilvægt skref í átt til upp- byggingar á öllum sviðum efnahags- lífsins, sem nú er hafin af fullum krafti,“ sagði Geir H. Haarde for- sætisráðherra í gærkvöldi. Geir kveðst afar þakklátur þeim þjóðum sem leggja Íslendingum lið í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóð- inn. „Verkefni okkar er að vinna bug á þeim vanda sem við okkur blasir og að Ísland öðlist aftur þann sess með- al þjóða sem það hafði áður en fjár- málakreppan skall á,“ segir forsætis- ráðherra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra var einnig ánægð. „Við metum mikils ákvörðun Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins og það traust til Íslands sem í henni felst. Aðkoma IMF að endurreisn íslensks efna- hagslífs er afar mikilvæg. Hún gefur okkur fast land undir fætur og legg- ur um leið grunn að þeim trúverð- ugleika sem nauðsynlegur er til að endurreisa ábyrgt íslenskt hag- kerfi,“ segir Ingibjörg Sólrún. Komið hefur fram að féð frá IMF verði notað til að styrkja krónuna og hún verður sett á flot – þá myndast markaðsverð á henni – um leið og stuðningur við hana verður talinn nægilegur til þess. | 4 IMF samþykkti lánið  Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lánar Íslandi 2,1 milljarð dollara og nokkrar þjóðir allt að 3 milljörðum  Lánið mikilvægt skref í átt til uppbyggingar á öllum sviðum efnahagslífsins, að mati forsætisráðherra  Grunnur að nauðsynlegum trúverðugleika til að endurreisa ábyrgt hagkerfi, segir utanríkisráðherra Óljós inngrip á gjaldeyrismarkaði Forsætisráðherra segir að lánið frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði notað til að grípa inn í á gjaldeyrismarkaði. Stjórnendur Seðlabankans gefa þó ekki upp hvernig þau inngrip verða og segja stefnuna viljandi óljósa. Viðskipti verða háð takmörkunum Íslendingar munu geta keypt gjaldeyri hjá bönkunum til þess að eiga í vöruviðskiptum við útlönd, kaupa þjónustu eða til ferðalaga. Ekki verður heimilt að kaupa gjaldeyri til þess að fjárfesta eða stunda spákaup- mennsku. Margir spá því að krónan veikist meira Stuðningur Seðlabankans við krónuna verður að öllum líkindum takmark- aður fyrst eftir að krónan verður sett á flot. Ekki stendur til að eyða gjald- eyrisforðanum í að styðja við óraunhæft jafnvægisgengi. Flestir spá að krónan lækki. Mikilvægt að útflytjendur færi gjaldeyri heim Mikilvæg forsenda þess að gjaldeyrisviðskipti á Íslandi stjórnist af framboði og eftirspurn er að útflytjendur færi gjaldeyri til landsins og kaupi krónur. Lamaður gjaldeyrismarkaður gangsettur H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Nýjungar! vörur fyrir þinn innri mann Loksins fáanlegur í sneiðum Handhægt –fjórar saman í kippu Leikhúsin í landinu >> 41 LÖGREGLAN á Suðurnesjum handtók tvo menn í síðustu viku sem grunaðir eru um mjög umfangsmik- inn þjófnað á verkfærum og á a.m.k. tveimur tonnum af olíu. Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald, sem rennur út í dag. Verðmæti þýf- isins hleypur á mörgum milljónum króna. Óskað hefur verið eftir að bankaleynd verði aflétt af reikn- ingum mannanna. | 2 Tvö tonn af olíu í þýfinu NÝTT félag hefur bæst í þann hóp sem kannar möguleika á byggingu gagnavers á Íslandi. Titan Global, fé- lag í eigu Jónasar Tryggvasonar og fleiri fjárfesta, hefur skorið staðarval niður í þrjá kosti á suðvesturhorni landsins. Að sögn Jónasar mun Titan Global ekki eiga gagnaverið heldur selja það áfram til risafyrirtækja í upplýsingatækni, á borð við Micro- soft, Google eða Yahoo. Fyrir eru Verne Global og Greenstone að und- irbúa gagnaver á Íslandi. | 18 Nú er það Titan Global

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.