Morgunblaðið - 20.11.2008, Blaðsíða 21
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á heimavelli Hlynur Ingi Grétarsson fóðrar fiskana sína í einu af búrunum
þrettán sem hann er með heima hjá sér.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
H
ann Sverrir er svo vin-
sæll og hefur stóru
hlutverki að gegna,
ætli hann sé ekki með
einn fjórða úr stöðu-
gildi hér,“ segir einn starfsmaður
Leikstofunnar á Barnaspítala
Hringsins um fiskinn Sverri sem þar
býr. Sverrir fær góða umsögn hjá
starfsfólkinu og krakkarnir hafa ein-
staklega gaman af honum. „Sagan á
bak við Sverri er sú að fyrir átta ár-
um lá hér á Barnaspítalanum um
tíma drengur sem gaf þennan gull-
fisk á leikstofuna eftir að hann losn-
aði af spítalanum, eflaust bæði til að
þakka fyrir sig og til að gleðja þau
börn sem eiga eftir að vera hér.
Drengur þessi heitir Sverrir og auð-
vitað var fiskurinn látinn heita í höf-
uðið á honum.“
Allir voru tilbúnir að hjálpa
Sverrir hefur í þau átta ár sem
hann hefur búið á Barnaspítala
Hringsins, haldið til í fimmtán lítra
búri en nýlega fékk hann heldur bet-
ur meira sundrými. Þrír forfallnir
fiskaáhugamenn færðu honum að
gjöf nýtt og miklu stærra búr. Þetta
eru þau Hlynur Ingi Grétarsson,
Elma Rún Benediktsdóttir og Inga
Þóra Þóroddsdóttir. „Dóttir mín,
Karen Ísabel, þurfti að liggja hér
inni á spítalanum um tíma og þá tók
ég myndir af Sverri og setti inn á
fiskaspjallsvefinn. Þegar spjall-
verjar sáu myndirnar tókum við
okkur til og ákváðum að gera eitt-
hvað í málinu,“ segir Inga Þóra og
bætir við að farið hafi fram pen-
ingasöfnun á spjallinu og Leikstof-
unni fært að gjöf. „Við fórum í gælu-
dýrabúðir og það var auðsótt mál að
fá eigendur þeirra til að styrkja
þennan góða málstað og þeir gáfu
það sem til þurfti. Heildsala nokkur
gaf svo vagninn sem búrið er á, svo
hægt sé að keyra það um hér á Leik-
stofunni.“
Þremenningarnir eru öll miklir
fiskaáhugamenn og Hlynur einbeitir
sér að sérstökum og sjaldgæfum
fiskum, en hann er með ræktun
heima hjá sér. Þar er hann með 13
fiskabúr sem rúma um 3.000 lítra af
vatni og fiskarnir eru um 200. En
hvað er svona frábært við fiska?
„Þetta er ekki ósvipað og að vera í
hestamennsku, nema þessu fylgir
ekki útivera. Við einbeitum okkur að
því að rækta góða einstaklinga, við
ræktum liti í fiskum, byggingu og
útlit. Fiskar eru líka mjög skemmti-
legir, þeir hafa ólíkan persónuleika
og skapgerð. Og það er útbreiddur
misskilningur að gullfiskar séu
heimskir og að þeir muni ekki neitt.
Þvert á móti eru þeir klárir og það
er hægt að kenna þeim ýmislegt. Ég
hef kennt mínum fiskum ýmsar
kúnstir og þeir gera mannamun, eru
til dæmis hræddir við ókunnuga.
Þeir læra líka að þekkja hljóð, fisk-
arnir mínir verða til dæmis eins og
æstir hundar þegar þeir heyra hljóð-
ið sem fylgir því að ég opna ísskáp-
inn, af því þeir vita að þar er mat-
urinn þeirra geymdur.“
Hlynur hefur viðurnefnið Vargur
enda rekur hann fyrirtæki sem heit-
ir Vargur ehf. sem þjónustar nokkur
stór fiskabúr í fyrirtækjum. „Þá sé
ég fyrst og fremst um að halda búr-
unum hreinum og skipta um vatn í
þeim. Það skiptir máli að gera þetta
með hjartanu,“ segir Vargur sem
sér líka um vefinn fiskaspjall.is en
það fara fram umræður um fiska og
vatnadýr. Þar er margan fróðleik að
finna um fiska og þar geta byrj-
endur fengið svör við hinum ýmsu
spurningum. „Ég stofnaði líka félag-
ið Skrautfisk sem er mjög skemmti-
legt og gefur fólki með fiskaáhuga
færi á að hittast.“
Elma segist alltaf hafa haft áhuga
á öllum dýrum en eftir að hún og
Hlynur tóku saman þá hefur áhugi
hennar á fiskum aukist mikið. Áhugi
Ingu Þóru á fiskum er einnig tilkom-
inn vegna þess að maður hennar er
mikill fiskaáhugamaður, en tilfellið
er að karlar eru í meirihluta þeirra
sem eru á fiskaspjallinu. Og merki-
legt nokk, þeir hafa margir svipuð
áhugamál. „Mjög margir okkar eru
til dæmis með mótorhjólaáhuga,“
segir Vargur sem sækir í vatnið því
hann stundar reglulega sjósund í
Nauthólsvíkinni. „Það er rosalega
hressandi og manni líður svo vel á
eftir.“
Fiskurinn
Sverrir er elsk-
aður og dáður
Gullfiskurinn Sverrir á Barnaspítala Hringsins
nýtur mikilla vinsælda. Nýverið gáfu nokkrir
aðdáendur hans honum nýtt og stærra búr.
Morgunblaðið/Golli
Gjöf Þessi þrjú gengu í það að útvega fiskinum Sverri nýtt og stærra búr. Inga Þóra er með Karen Ísabel í fanginu,
en með henni eru Elma og Hlynur. Anthony Kristjánsson dregur fiskabúrið kátur að rúmi sínu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Japanskur Þessi fiskur er í eigu
Hlyns og er eini sinnar tegundar
hér á landi að því best er vitað.
Hjátrúin segir að honum fylgi gæfa.
www.fiskaspjall.is
Í HNOTSKURN
»Gullfiskar tilheyra ættkarpa (Cyprinidae) og
upprunalega lifa þeir villtir í
vötnum og ám í Austur-Asíu.
»Sverrir er frekar stór mið-að við það sem flestir eiga
að venjast þegar kemur að
gullfiskum. Hann er um 15
sentimetrar að lengd en getur
orðið 30 sentimetrar og hann
getur orðið allt að 30 ára.
Daglegt líf 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008
GLÆSILEGUR SPARIFATNAÐUR
Úrval af samkvæmisjökkum í skærum litum
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Bónus
Gildir 20.-23. nóvember verð nú verð
áður
mælie. verð
Myllu heimilisbrauð, 770 g ......... 159 219 206 kr. kg
Ali 1/1 kjúklingur, kryddaður ...... 659 879 659 kr. kg
ÍF frosnir kjúklingabitar............... 299 399 299 kr. kg
KF kofareykt folald, m/ beini ....... 399 599 399 kr. kg
KF kofareykt hangilæri, m/ beini . 1.424 1.708 1.424 kr. kg
Holta fersk piri piri kjúklingabr..... 1.869 2.379 1.869 kr. kg
Ks lambalæri í sneiðum .............. 1.155 1.359 1.155 kr. kg
ÍG ferskar grísalundir .................. 1.498 1.998 1.498 kr. kg
ÍG fersk grísarifjasteik ................. 598 799 598 kr. kg
IG ferskt grísahakk ..................... 528 703 528 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 20.-20. nóvember verð nú verð
áður
mælie. verð
Nautaribey úr kjötborði............... 2.498 3.098 2.498 kr. kg
Nautahakk, 1. fl ........................ 998 1.248 998 kr. kg
Hamborgarar, 2x115 m/brauði ... 298 376 298 kr. kg
Móa kjúklingalæri, kryddað......... 519 865 519 kr. kg
Sælkerakjötfars, frosið ............... 366 488 366 kr. kg
Nautahakk, frosið ...................... 936 1.248 936 kr. kg
Kindahakk, frosið....................... 801 1068 801 kr. kg
Lambasúpukjöt, frosið ............... 534 628 534 kr. kg
Chicago Town pitsa, 340 g.......... 498 598 498 kr. stk.
Krónan
Gildir 20.-23. nóvember verð nú verð
áður
mælie. verð
SS rauðvínslegin helgarsteik ....... 1.678 2.098 1.678 kr. kg
Bautabúrs grísasnitsel................ 849 1.698 849 kr. kg
Bautabúrs grísagúllas ................ 849 1.698 849 kr. kg
Grillborgarar með brauði, 4 stk.... 449 499 449 kr. pk.
Fiskibollur forsteiktar .................. 599 599 599 kr. kg
Fiskborgarar forsteiktir ................ 599 599 599 kr. kg
Sprite / Sprite zero. 2 l............... 119 197 119 kr. stk.
Frigg maraþon, milt.................... 1.289 1.899 1.289 kr. pk.
Nyakers piparkökur, hjörtu .......... 529 649 529 kr. pk.
Shop rite eldhúsrúllur................. 499 869 499 kr. pk.
Nóatún
Gildir 20.-23. nóvember verð nú verð
áður
mælie. verð
Grísakótelettur........................... 998 1.498 998 kr. kg
Lambakóróna, léttreykt .............. 2.998 3.798 2.998 kr. kg
SS grand orange helgarsteik ....... 1.574 2.098 1.574 kr. kg
Ungnautaglóðaborgari, ca 120 g. 139 199 139 kr. stk.
Naggalínan kjötbollur................. 389 598 389 kr. pk.
Nóatúns skinka ......................... 235 469 235 kr. pk.
Snittubrauð/baguette ................ 199 298 199 kr. stk.
Coke 1 l .................................... 99 169 99 kr. stk.
Nóatúns súkkulaði/mintukökur ... 599 649 599 kr. pk.
Nóatúns salthnetusmákökur ....... 599 649 599 kr. pk.
Þín verslun
Gildir 20.-26. nóvember verð nú verð
áður
mælie. verð
Viking pilsner, 0,5 l .................... 89 119 178 kr. ltr
Hatting ostabrauð, 2 stk. ............ 339 419 339 kr. pk.
Findus Oxpytt, 550 g.................. 498 679 906 kr. kg
Hunts tómatar niðursoðnir, 411 g 119 154 290 kr. kg
La Choy súrsæt sósa, 284 g ....... 329 398 1.159 kr. kg
Druvan hvítvínsedik, 300 ml ....... 259 339 864 kr. ltr
Tilda Basmati suðupokar, 500 g . 529 598 1.058 kr. kg
Milka Milk súkkulaði, 100 g........ 179 249 1.790 kr. kg
Opera froðusápa ....................... 199 319 199 kr. stk.
Lægra verð á helgarsteikinni
helgartilboðin
Morgunblaðið/Jim Smart
Kræsingar Þrátt fyrir þrengingar gera flestir sér daga-
mun í mat um helgar þótt hlaðborðið fái að bíða .