Morgunblaðið - 20.11.2008, Blaðsíða 39
Menning 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
APAKÓNGUR á silkiveginum, sýn-
isbók kínverskrar frásagnarlistar
frá fyrri öldum er komin út hjá JPV
útgáfu. Hjörleifur Sveinbjörnsson
valdi efnið og þýddi úr kínversku og
skrifar einnig inngang og almenn að-
faraorð að hverju verki.
Kvittað fyrir Kínadvöl
„Þessi bók hefur verið lengi á leið-
inni,“ segir Hjörleifur. „Ég var í
námi í Kína frá 1976 til 1981, miklum
umbreytingarárum í sögu og póli-
tísku lífi þjóðarinnar. Menn voru að
gera upp við arf Maótímabilsins og
menningarbyltingarinnar sem lauk
formlega 1976, sama ár og ég fór út,
og voru að reyna að finna eitthvað
skárra. Eftir þessi fimm ár í Kína
hefur það alltaf blundað í mér að
kvitta fyrir dvölina á einhvern hátt
og gera mitt til að stytta bilið milli
þjóðanna. Þessi sýnisbók kínverskra
bókmennta er tilraun til þess. Ég
tók þær bækur sem ég þekki
skemmtilegastar og bjó til sýnisbók
úr öllu saman. Þetta eru sögur frá
ýmsum tímum, meginhlutinn, frá
1300 til 1800, en ég tylli tánum að-
eins niður í 20. öldina. Þessar bók-
menntir hafa notið mikilla vinsælda í
Kína og verið í endalausri úrvinnslu
í alls kyns formum, í Pekingóper-
unni, teiknimyndum, kvikmyndum
og sjónvarpsþáttaröðum.“
Ófínar bókmenntir
Uppistaðan í bókinni eru fimm
stórar sögur auk nokkurra smá-
sagna og draugasagna frá ýmsum
tímum. „Þetta eru afþreyingarbók-
menntir síns tíma, ófínar bók-
menntir sprottnar upp úr munn-
legum frásögnum,“ segir Hjörleifur.
„Sögumenn komu á mannamót eða í
tehús og sögðu sögur og enduðu
gjarnan með því að segja áheyr-
endum að ef þeir vildu fá meira að
heyra yrðu þeir að koma aftur næsta
dag. Þessi hvatning gekk aftur í
þeim skáldsögum sem spruttu upp
úr þessum munnlegu frásögnum,
þannig að hver skáldsagnarkafli
endar á því að lesandinn er hvattur
til að lesa næsta kafla.
Ég vona að þessi bók fái sæmilegar
viðtökur hérna vegna þess að þetta
eru skemmtilegar og læsilegar sögur,
ekki framandi frekar en almenni-
legar sögur eru yfirleitt. Umhverfið
getur reyndar verið nokkuð framandi
en persónurnar eru fólk í alls kyns
bjástri og það er skemmtilega frá því
sagt. Menn þurfa því hreint ekki að
setja sig í virðulegar stellingar til að
geta notið þessara sagna.“
Fólk í alls
kyns bjástri
Morgunblaðið/Valdís Thor
Þýðandinn „Þetta eru afþreyingarbókmenntir síns tíma,“ segir Hjörleifur.
ELSTA verkið í sýnisbókinni er
Þríríkjasaga frá 14. öld, hetju-
saga um valdabaráttu.
Fenjasaga frá svipuðum tíma
er útlaga- og fóstbræðrasaga
og er hluti hennar í myndasögu-
formi.
Vesturferðin er frá 16. öld og
fjallar um svaðilför búdda-
munks og fylgisveina hans.
Í Hinni lærðu stétt er skop-
ast að fáfróðum embætt-
ismönnum og í Drauminum um
rauða herbergið er sagt frá
ástarflækjum og heitum tilfinn-
ingum.
Yngsta verkið er Luotuo Xi-
angzi, skáldsaga frá fjórða tug
síðustu aldar um einyrkja sem
hleypur með kerru – rickshaw –
um götur Peking og vill vera
sjálfstæður og engum háður.
Sögur í sýnisbók
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
LEIÐTOGAFUNDUR Reagans og
Gorbatsjovs í Höfða haustið 1986 er
efniviður kvikmyndar sem nú er í
undirbúningi. Líklegt er að leik-
stjóri myndarinnar verði einn
kunnasti leikstjóri samtímans,
Bretinn Sir Ridley Scott, höfundur
myndanna Blade Runner, Thelma
& Louise, Alien og American Gang-
ster. Myndir Ridleys Scott hafa
hlotið 31 Óskarsverðlaunatilnefn-
ingu og 9 Óskarsverðlaun. Hér á
landi eru staddir Stewart Mack-
innon framleiðandi og Kevin Hood
handritshöfundur.
„Það verða þrjú fyrirtæki, sem
standa að myndinni, fyrirtæki okk-
ar, Headline Pictures, Ridley Scott
og fyrirtæki hans Scott Free Pro-
ductions og loks Sennett Produc-
tions. Þetta verður stór mynd um
leiðtogafundinn og endalok kalda
stríðsins,“ segir Kevin Hood.
„Bróðurpartur myndarinnar gerist
í og við Höfða, en svo verða Sov-
étríkin fyrrverandi og Wash-
ingtonborg einnig hluti af sögusvið-
inu. Það verður áhersla á fundinn
og undirbúning hans, og það sem
gerðist utan fundarherbergisins. Þó
verða þetta ekki 100 mínútur af af-
vopnunarviðræðum – það verða
kannski tvær mínútur af þeim og
98 mínútur af skemmtilegheitum,“
segir Hood.
Túlkurinn kom þeim á sporið
Stewart Mackinnon segir að þeir
Hood hafi fengið hugmyndina að
myndinni fyrir tveimur árum. „Við
fundum stórkostlega bók, sem hafði
verið gefin út í aðeins nokkur
hundruð eintökum. Bókin var eftir
Pavel Palachenko, túlk Gorbatj-
sovs, og það sem upp úr stóð var
kaflinn um leiðtogafundinn í Höfða.
Við sáum strax að þarna væri stór-
kostlegt tækifæri til að miðla heim-
inum sýn á þennan merka viðburð,
sem var vendipunktur í sögu 20.
aldar. Hann var upphafið að enda-
lokum Sovétríkjanna og kalda
stríðsins.“
Mackinnon og Hood hófu strax
frekari rannsóknir og upplýs-
ingaöflun; heimsóttu Pavel Palac-
henko og samstarfsmenn Reagans
á fundinum auk þess sem þeir lásu
það sem þeir komust yfir um fund-
inn.
„Það var svo fyrir algjöra til-
viljun að samstarfsmaður okkar
rakst á umfjöllun á netinu þar sem
vitnað var í viðtal við Ridley Scott.
Þar sagðist hann vera mjög spennt-
ur yfir verkefni sem hann hygðist
takast á hendur – að gera mynd um
leiðtogafundinn. Enn meiri tilviljun
var að við höfðum þá þegar verið í
viðræðum við fyrirtæki hans um
samstarf, en á þeim tíma vissum
hvorki við, né hann, um sameig-
inlegan áhuga á leiðtogafundinum.
Við áttum fund með David Zucker,
yfirmanni sjónvarpsdeildar Scott
Free Productions, viku síðar, þar
sem á dagskrá var að ræða þetta
fyrirhugaða samstarf. Í lok fund-
arins sagði ég: „David, við höfum
heyrt að þið séuð að gera mynd um
leiðtogafundinn í Reykjavík.“ Hann
svaraði að bragði: „Það eruð þó
ekki þið sem eruð þessir „hinir“
sem eru að vinna að sama verk-
efni?“ Þegar þetta var komið upp
varð eftirleikurinn auðveldur. Á
fundinum voru líka Ken Adelman
og Jere Sullivan og þeir höfðu sam-
band við Sennett Productions.
Mark Sennett vildi að við fengjum
Scott sjálfan í liðið, og það gekk
eftir. Þá lá beint við að efna til sam-
starfs,“segir Mackinnon.
Eiga völ á bestu leikurunum
„Handritið verður tilbúið í vor og
þá förum við í fjármögnun og að
velja leikara. Ridley Scott verður
einn framleiðendanna og við von-
umst til að hann taki leikstjórnina
að sér líka. Það þýðir að við munum
eiga völ á bestu leikurum heims í
aðalhlutverkin, og fjármögnunin
verður ekki vandamál. Ef allt geng-
ur að óskum geta tökur hafist á
næsta ári, og myndin verður tilbúin
árið 2010.“
Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir
að myndin kosti 20 milljónir Banda-
ríkjadala, eða um 2,8 milljarða ís-
lenskra króna. Ekki er enn ákveðið
hvort eða að hve miklu leyti mynd-
in verður tekin í Reykjavík.
„Á leiðtogafundinum í Höfða
komu saman tveir menn með mjög
ólík viðhorf. Og í þessu litla her-
bergi, þar sem þeir sátu, tókst þeim
að snúa heiminum við. Það sýnir
okkur að friður er mögulegur, og
ég vil að það verði þau skilaboð sem
myndin miðlar,“ segir Mackinnon
og Hood bætir við: „Og þetta gerð-
ist ekki í glæsihöllunum í Genf, sem
þekktar eru fyrir samskonar fundi,
heldur í litlu húsi í Reykjavík.“
Friður er mögulegur
Morgunblaðið/Golli
Við Höfða Kevin Hood, Stewart Mackinnon, Jere Sullivan og Jón Kristinn
Snæhólm, aðstoðarmaður kvikmyndargerðarmannanna.
Undirbúningur hafinn að myndinni um leiðtogafundinn ’86
Framleiðendur vonast til að Ridley Scott verði leikstjóri