Morgunblaðið - 20.11.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.11.2008, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008 LÆGRA VERÐ - SÖMU GÆÐI Prentsmiðjan Oddi ehf., Höfðabakka 3-7, 110 Reykjavík sími 515 5000, www.oddi.is Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÍSLAND hefur ekki nýtt sér heimild til að takmarka ábyrgð á innstæðum í bönkum við ákveðna aðila, líkt og heimild er til í tilskipun Evrópusambandsins. Árið 2006 var athygli íslenska viðskiptaráðuneytisins vakin á að ef til vill ætti Ísland að nýta sér heimildina. Ári síðar var málið sett í nefnd. Bretar og Hollendingar eru meðal þeirra þjóða sem hafa nýtt sér öll undanþáguákvæði til- skipunarinnar. Eins og margoft hefur komið fram er ætlunin að semja um ábyrgðir íslenska ríkisins á innstæðum á Icesave- reikningum Landsbankans. Í tilskipun ESB þar sem mælt er fyrir um innstæðutryggingarnar, og virðist ætla að reynast Íslendingum dýr, er heimild til að takmarka ábyrgð á innstæðum fagfjárfesta, s.s. ríkja, sveitarfélaga, tryggingafélaga o.s.frv. Ef heimildin er nýtt eiga þessir aðilar ekki rétt á greiðslum vegna innstæðutrygginga. Samkvæmt upplýsingum frá viðskiptaráðuneytinu er misjafnt hversu aðildarlönd ESB hafa gengið langt við að nýta sér heimildina. Norðurlöndin hafi almennt ekki nýtt sér hana en Bretar og Hollendingar séu meðal þeirra þjóða sem nýta sér allar þessar heimildir. Hélt fjölmarga fundi Eins og greint var frá í Morgunblaðinu á laugardag fékk viðskiptaráðuneytið ábendingu um það árið 2006 að e.t.v. væri rétt að nýta heimildina. Þetta var í ráðherratíð Jóns Sigurðssonar, þáverandi formanns Framsóknar- flokksins. Hinn 30. maí 2007 skipaði nýr ráðherra, Björg- vin G. Sigurðsson, nefnd til að yfirfara ákvæði laga um innstæðutryggingar. Nefndin hélt fjölmarga fundi en hefur ekki formlega lokið störfum. Bretar og Hollendingar nýttu sér heimildina Nefnd er enn að fjalla um hvort Ísland eigi að takmarka ábyrgð á bankainnstæðum Í HNOTSKURN » Í nefndinni sátu fulltrúarfrá viðskiptaráðuneyti, Tryggingarsjóði innstæðueig- enda og fjárfesta, Fjármála- eftirlitinu, Seðlabankanum, Samtökum fjármálafyrirtækja og Félagi fjárfesta. » Um 120 sveitarfélöga.m.k. áttu innstæður í Ice- save í Bretlandi og Hollandi. Fjöldi fyrirtækja og stofnana er óljós. Hvert á rétt á jafn- virði um 20.000 evra. YFIR 30 þúsund jólastjörnur munu prýða stofur landsmanna á aðventunni. Fimm garðyrkjubænd- ur rækta stjörnurnar og hafa í nógu að snúast þessa dagana. Sigurbjörg Gísladóttir og Hannes Kristmundsson í Hveragerð rækta hátt í fjórðung framleiðslunnar og fara allar þeirra jólarósir til sölu í Blómavali. Vinnan hefst í júní þegar græð- lingum er stungið í moldina og svo þarf að vakta og vökva eftir kúnstarinnar reglum þangað til rauð, hvít og bleik blómin eru orðin söluhæf í nóv- ember. Þegar vinnu við jólastjörnurnar lýkur tek- ur við sex mánaða törn sem endar með sölu sum- arblóma næsta vor. Hannes gerði hlé á vinnunni heima við nýlega og brá sér til Færeyja. Tilgangur ferðarinnar var að færa frændum okkar 200 jólarósir sem þakk- lætisvott frá Íslendingum. Hann heimsótti yfir 20 elliheimili og sjúkrastofnanir með þessa kveðju frá Íslandi. „Vinarhugur Færeyinga í okkar garð leyndi sér ekki, en allir lögðu þeir áherslu á að passað yrði upp á fólkið í efnahagsþrengingunum. Sjálfir eru þeir enn illa brenndir eftir síðustu kreppu þar í landi,“ sagði Hannes í gær. aij@mbl.is Mörg handtök við jólastjörnurnar Morgunblaðið/Kristinn Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is EMBÆTTISMAÐUR Atlantshafsbandalagsins sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ef Ísland teldi ekki þörf á loftrýmisgæslu Breta í desember hefði bandalagið ekki neinar athugasemdir við það. Loftrýmisgæslan væri hluti af sameiginlegum vörnum NATO en ef íslensk stjórnvöld hefðu ekki áhyggjur af því þótt loftrýmisgæsla Breta félli niður hefði NATO það ekki heldur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur sagt að ákvörðunin um að hætta við loftrýmisgæsluna hafi verið tekin á vettvangi NATO og Geir H. Haarde for- sætisráðherra hefur sagt að hann teldi ekki að hætt hefði verið við vegna Icesave-deilunnar. Embættismaður NATO sagði að ákvörðunin hefði ver- ið tekin á vettvangi bandalagsins. Aðspurður hver hefði átt frumkvæði að því að ekkert verður af komu bresku flugsveitarinnar, sem átti að koma hingað í desember, sagði hann aðeins að slíka spurningu yrði að bera upp við íslensk stjórnvöld. Utanríkisráðuneytið hefur greint frá því að stefnt sé að því að spara rúmlega 100 milljónir með því að fækka þeim skiptum sem loftrýmisgæsla fer fram úr fjórum í þrjú. Sparnaðurinn felst ekki bara í að fella niður eina gæslu- lotu, heldur með því að hinar þjóðirnar borga meira. NATO hefur engar áhyggjur af minni gæslu Morgunblaðið/Árni Sæberg Loftrýmisgæsla Geir H. Haarde kannar heiðursvörð franskrar flugsveitar fyrr á þessu ári. FRIÐRIK Ólafs- son, fyrsti stór- meistari Íslend- inga í skák, mun taka þátt í skák- móti sem fram fer í Tékklandi dag- ana 28. nóvember til 6. desember n.k. Fjórir heims- kunnir skákmeistarar af eldri kyn- slóðinni munu þá etja kappi við fjór- ar ungar og efnilegar skákkonur frá Tékklandi, Úkraínu og Armeníu. Liðsfélagar Friðrik verða Anatoli Karpov, fyrrverandi heimsmeistari, Vlastimil Hort og Robert Hubner. Það er stofnun í Prag, sem býður til þessa móts. Mótshaldarar kalla sveitina sem Friðrik teflir fyrir leg- endary-players, eða sveit þjóðsagna- persóna. Friðrik sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann væri mjög spennt- ur fyrir því að tefla á þessu móti. Það fer fram í Marianbad í vesturhluta Tékklands, en þar hefur Friðrik teflt tvisvar áður, árin 1954 og 1961. Frið- rik segir að borgin sé ægifögur og m.a. þekkt fyrir heilsulindir. Á þessu ári eru liðin 60 ár síðan Friðrik tefldi fyrst í meistaraflokki, þá 13 ára gamall. Hann hefur teflt af og til eftir að hann komst á eftirlaun, síðast í Arnheim í Hollandi í fyrra. sisi@mbl.is Friðrik í úrval frægra Friðrik Ólafsson 60 ár síðan hann tefldi fyrst í meistaraflokki MEIRIHLUTI þeirra, sem tóku þátt í könnun, sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins, er hlynntur aðild að Evrópusambandinu. 36,3% reyndust vera mjög hlynnt því að ganga í Evrópusambandið og 26,1% frekar hlynnt eða samtals 62,4%. 22,2% voru andvíg ESB-aðild. 63,8% svarenda voru því fylgjandi að taka upp evru. Fram kom í könnuninni, að 81% samfylkingarfólks styður aðild en 3% eru henni andvíg. 24% sjálfstæð- ismanna eru hlynnt aðild en 54% and- víg. 59% framsóknarmanna vilja að- ild en 31% er á móti. 50% stuðningsmanna Frjálslynda flokks- ins vilja aðild, 28% á móti, og 45% Vinstri grænna vilja aðild en 28% ekki. Meirihluti styður aðild að ESB

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.