Morgunblaðið - 20.11.2008, Blaðsíða 34
34 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008
Antík
Nýtt í Maddömunum
Ýmsir nýir spennandi hlutir í búðinni,
t.d. harmonikka, herhjálmur, postulín
o.fl. Opið til kl. 22 þann 20. nóv.
Lokum eftir jól, svo nú er lag!
maddomurnar.com
Barnavörur
Litla kistan, www.litlakistan.is
Erum með barnafatnað og fleira,
mest úr náttúrulegum efnum. 20%
afsláttur af organic og fair trade í
nóvember. Litla kistan, Laugavegi 54
og á netinu www.litlakistan.is
Heilsa
Frelsi frá streitu og kvíða
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is, www.theta.is
Húsgögn
Vantar háa og mjóa kommóðu
eða hillu ca. 110 til 120 á hæð, 40 til
50 á breidd. Skoða allt.
Upplýsingar í síma 694 2326.
Húsnæði í boði
Íbúð til leigu í einbýlishúsi í
Garðabæ með sérinngangi. Laus
strax. Vantar hjálp við 8 ára strák og
getur það gengið upp í leiguna að
hluta. Eingöngu reyklausir og reglu-
samir koma til greina. Áhugasamir
hafið samband við Maríu 897-
7922 eða aria@islandia.is
Íbúð til leigu í 105 Rvk.
Til leigu rúmgóð og björt 94 fm,
þriggja herb. íbúð á jarðhæð.
Verð 100 þús. + hiti og rafm. Laus
strax. Uppl. fást í síma 899 1729.
Íbúð til leigu
Falleg, björt og mikið endurnýjuð, 3ja
herbergja, 68,4 fm íbúð í Vesturbæ
Kópavogs. Hússjóður innifalinn. Verð
110.000. Laus 1. jan. Uppl. í síma
822 0977.
Kaupmannahöfn -
Tengsl í Danmörku
Valberg býður upp á tímabundið
húsnæði fyrir Íslendinga sem hyggja
á dvöl/starf í Danmörku og ráðgjöf til
þeirra sem huga að búferlaflutningi.
www.danmork.dk
Falleg íbúð í fjölskylduvænu um-
hverfi, hverfi 113. 4ra herbergja,
100 fm. Verð 135.000 pr. mán. Leigist
frá 1. des. Langtímaleiga möguleg.
Upplýsingar í síma 825 6104 eða net-
fang: martahelga@gmail.com
Sumarhús
Sumarhús til leigu í Brekkuskógi
Stórglæsilegt sumarhús til leigu í
Brekkuskógi. Heitur pottur og allt
fyrsta flokks. Kynnið ykkur málið á
www.brekkuskogur.com
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Málverk
Olíumálverk eftir ljósmyndum
Portret málverk eftir ljósmyndum,
einnig dýra- og landslagsmálverk.
Ótrúlega vel gerð málverk!
Skoðið betur á www.portret.is
Námskeið
Námskeið að verðmæti 50 þús.
gefins í dag
Kíktu á www.netvidskipti.is til að fá
kennslu að verðmæti 50 þús. gefins!
Þetta er okkar framlag til íslensku
þjóðarinnar. Njóttu vel!
Frábært, rafrænt námskeið í
netviðskiptum. Notaðu áhugamál
þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að
skapa þér góðar og vaxandi tekjur á
netinu. Við kennum þér hvernig!
Skoðaðu málið á
http://www.menntun.com
Til sölu
Sniðugar kventöskur - margir litir
Ein taska með mörgum hliðum í um
20 litum. Skipt um hlið á 3 sekúnd-
um. Frábærar viðtökur á þessum
óvenjulegu og þægilegu töskum.
Sjá nánar á www.taska.is.
Sími: 847 2191.
Matador vetrarhjólbarðar tilboð
20% afsláttur af Matador
hjólbörðum þessa viku
gegn framvísun auglýsingar.
Kaldasel ehf.
hjólbarðaverkstæði,
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
s. 544 4333.
Evrur til sölu
í magni, afhendast í seðlum
hérlendis. Uppl. í síma 697-8827,
evrurtilsolu@hushmail.com
Þjónusta
Ljósmyndastofa
Gunnars Ingimarssonar
Suðurveri - Stigahlíð 45,
sími 553 4852.
Ýmislegt
Húsviðhald
Eruð þið leið á baðherberginu?
Breytum, bætum og flísaleggjum.
Uppl. í s. 899 9825.
Nýjar skolplagnir!
Endurnýjum lagnir með nýrri tækni!
Enginn uppgröftur, lágmarks truflanir,
auknir rennslis eiginleikar. Fullkomin
röramyndavél.
Ástandskoðum lagnakerfi.
Allar pípulagnir ehf.
Uppl. í síma 564-2100.
SMÁRAKLÚBBURINN
Smáraklúbburinn er skemmtilegur
tómstundaklúbbur fyrir krakka á
aldrinum 8-10 ára. Við gerum alltaf
eitthvað skemmtilegt!
Hafðu samband í síma 615 0025.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Ertu að leita þér
að vinnu? atvinna
✝ Stefanía Ingi-björg Guð-
mundsdóttir fædd-
ist á Norðfirði 8.
okt. 1917. Hún lést
á Sólvangi í Hafn-
arfirði, 13. nóv-
ember sl.
Foreldrar henn-
ar voru Þórunn
Kristjánsdóttir, f.
12.8. 1890, d. 22.11.
1966, og Guð-
mundur Eiríksson,
f. 17.6. 1874, d.
27.4. 1935. Stefanía
átti 8 systkini sem öll eru látin.
Þriggja vikna gömul var hún
hans er Þórey Svanfríður, maki
hennar er Guðmundur Hrafn
Grétarsson og á hún 4 börn. 2.)
Elín Sigríður, f. 25.6. 1946, maki
Jónas Gestsson og eiga þau 3
börn, þau eru: Jónas Gestur, f.
1970, maki Steinunn Ingibjörns-
dóttir og eiga þau fjórar dætur,
Berglind Stefanía, f. 1973, á hún
tvö börn, og Úlfar Andri, f. 1985.
Áður átti Jónas soninn Kristján
Eggert, f. 1960, maki Valgerður
Vilmundardóttir og eiga þau
þrjú börn.
3.) Guðjón Magnús, f. 19.7.
1956, og á hann 4 syni, þeir eru
Ólafur Ingi, f. 1978, Davíð Eirík-
ur, f. 1986, Atli Freyr, f. 1988, og
Gunnar Helgi, f. 1998.
Mestan hluta starfsævinnar
helgaði Stefanía fjölskyldunni og
heimilinu á Tunguvegi 5, Hafn-
arfirði. Stefanía verður jarð-
sungin frá Hafnarfjarðarkirkju í
dag kl. 13.
sett í fóstur til
frænku sinnar Guð-
laugar Bjarnadóttur
og Guðmundar Sig-
hvatssonar á Norð-
firði, sem bæði eru
látin, en þar ólst
hún upp ásamt fjór-
um fóstursystkinum
sínum.
Stefanía giftist
6.5. 1939 Ólafi Guð-
jónssyni bifvéla-
virkja, f. 11.6. 1911,
d. 22.10. 1987.
Þau áttu þrjú
börn: 1.) Þórir Guðmundur, f.
22.6. 1939, d. 9.6. 1996, dóttir
Í dag kveðjum við elskulega ömmu
okkar sem nú fær hvíld eftir erfið
veikindi. Við minnumst heimsókn-
anna að Tunguvegi 5 þar sem alltaf
var svo vel tekið á móti okkur og
þeirra ógleymanlegu stunda er við
áttum þar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku amma, með söknuði og
trega kveðjum við þig og þökkum
þér fyrir allar samverustundirnar.
Minning þín mun lifa með okkur.
Hvíl í friði.
Jónas Gestur, Berglind
Stefanía og Úlfar Andri.
Nokkur fátækleg kveðjuorð lang-
ar mig að festa á blað vegna andláts
minnar kæru mágkonu og vinkonu
Stefaníu Guðmundsdóttur sem and-
aðist á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi
hinn 13. þessa mánaðar.
Lífssögu hennar ætla ég þó ekki
að rekja, það munu aðrir gera . Eftir
því sem við lifum lengur verða þeir
fleiri af samferðafólki og vinum sem
við þurfum að fylgja til grafar.
Stefanía, systkini hennar og fjöl-
skylda tóku mér frábærlega vel er ég
kom í hópinn sem eiginkona Guðna,
bróður þeirra. Þau urðu öll vinir
mínir. Stefanía var mér eins og besta
systir. Ég fékk að baka fyrir brúð-
kaup okkar Guðna í eldhúsinu henn-
ar og Ólafs Guðjónssonar, manns
hennar, á Tunguvegi 5. Engan
skugga bar á okkar samskipti öll ár-
in sem við vorum samferða.
Stebba var fríð kona eins og systur
hennar allar. Heimili hennar var
skreytt með fallegri handavinnu og
enn var hún með handavinnu er hún
flutti á Hjúkrunarheimilið Sólvang.
Börnin hennar og fjölskylda voru
augasteinarnir hennar. Síðast komu
þau saman á níræðisafmæli hennar
fyrir rúmu ári. Veit ég að það var
henni mikil gleði, þrátt fyrir að hún
væri þá farin að heilsu.
Mann sinn Ólaf missti hún fyrir all-
mörgum árum og son sinn Þóri, sem
varð bráðkvaddur á besta aldri. Það
varð henni mikið áfall. „Sorgin
gleymir engum,“ segir einhvers stað-
ar. Stefanía gekk í gegnum margs
konar sjúkdómsþrautir þegar hún
var á miðjum aldri og oft héldum við
að hún yrði fyrst til að kveðja okkur
en hún lifði öll systkini sín.
Hún átti einlæga trú á frelsara
sinn og þótt hugsunin væri ekki leng-
ur skýr og heilabilun hrjáði hana, veit
ég að Drottinn stendur alltaf við sína
samninga.
Ég vil endilega þakka öllu því
elskulega fólki sem annaðist hana.
Ég varð svo oft vitni að því er ég
heimsótti hana hve hún fékk yndis-
lega umönnun. Guð blessi allt það
fólk. Hvernig sem líkamlegt og and-
legt ástand okkar er munum við alltaf
finna og meta þann kærleika sem við
verðum aðnjótandi. „Kærleikurinn
fellur aldrei úr gildi.“
Ég þakka Stebbu, mágkonu minni,
fyrir vináttuna og samfylgdina. Ég
og fjölskylda mín blessum minningu
hennar.
Við sendum Ellu, Guðjóni, Þóreyju
og fjölskyldum þeirra innilegar sam-
úðarkveðjur.
Jóhanna Karlsdóttir.
Stefanía Ingibjörg
Guðmundsdóttir Keppnin um
Súgfirðingaskálina hafin
Keppni um Súgfirðingaskálina, tví-
menningsmót Súgfirðingafélagsins,
hófst á mánudagskvöldinu með þátt-
töku 12 para. Þetta er í áttunda sinn-
sem mótið er haldið. Úrslit úr 1. lotu
urðu eftirfarandi en meðalskor er 88
stig.
Gróa Guðnad. - Guðrún K. Jóhannesd. 108
Valdimar Ólafsson - Karl Bjarnas. 99
Arngrímur Þorgrss. - Sigurp. Ingibergss. 98
Jón Óskar Karlss. - Karl Ómar Jónss. 95
Einar Ólafss. - Þorsteinn Þorsteinss. 95
Gróa og Guðrún drógu spaðaásinn
sem rásnúmer í upphafi móts og
héldu sínu striki allt kvöldið.
Spilaðar verða fimm lotur og telja
fjögur beztu skorin.
Sveit Þorsteins Laufdal vann
sveitakeppnina í Gullsmára
Sveit Þorsteins Laufdal vann
sveitakeppni félagsins. Ásamt honum
spiluðu í sveitinni: Jón Stefánsson,
Páll Ólason og Elís Kristjánsson.
Röð efstu sveita varð þessi:
Sveit Þorsteins Laufdal 182
Sveit Jóns Jóhannssonar 166
Sveit Eysteins Einarssonar 144
Sveit Birgis Ísleifssonar 144
Að sveitakeppninni lokinni var spil-
aður stuttur tvímenningur með þátt-
töku 20 para. Úrslit í N/S:
Einar Markússon – Steindór Árnason 76
Jens Karlsson – Örn Einarsson 71
A/V
Tómas Sigurðss. – Sigtryggur Ellertss. 73
Samúel Guðmss. – Jón Hannesson 72
Á fimmtudaginn kemur verður svo
tvímenningur aftur á dagskrá.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is