Morgunblaðið - 20.11.2008, Side 12

Morgunblaðið - 20.11.2008, Side 12
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Klippt og skorið Feðgarnir Björn Gíslason og synir hans, Kjartan og Björn Daði, eiga marga fastakúnna enda hef- ur stofan starfað í sextíu ár. Kjartan er að snyrta fastakúnnann Jón Sigurðsson, fangavörð á Litla-Hrauni. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „ÉG hef alltaf verið í félagsstarfi og hef ríka þörf fyrir að láta gott af mér leiða,“ segir Kjartan Björnsson rakari á Selfossi. Hann stendur fyrir jólatónleikunum „Hátíð í bæ“ á Sel- fossi á aðventunni og hefur staðið fyrir þorrablóti Selfyssinga í sjö ár. „Það er gott að breyta til. Ég starfa við það sama alla daga, allan ársins hring og hef gert í 26 ár. Ég finn hjá mér þörf til að brjóta upp hversdagslífið, gera eitthvað nýtt,“ segir Kjartan þegar hann er spurður að því hvers vegna hann standi í þessu. Hann var í nokkur ár söngv- ari í hljómsveit á sveitaböllum og hefur lengi sungið í karlakór. „Ég hef því verið í hringiðunni,“ segir Kjartan. Höldum áfram að vera til Fyrir sjö árum efndi Kjartan til þorrablóts Selfyssinga. „Það höfðu ekki verið haldin nein þorrablót á staðnum í mörg ár. Menn sögðu að þau væru bara fyrir sveitirnar. Ég svaraði því til að Selfoss væri mín sveit og hef haldið þorrablótin í sjö ár. Sömu sögu má segja um tón- leikana. Allir þessir stóru tónleikar voru haldnir í Reykjavík og við urð- um út undan. Ég ákvað því að halda jólatónleika í fyrra. Þeir voru fjöl- sóttir og tókust vel og ég ætla að halda þá aftur. Fólk verður að halda áfram að vera til, þótt kreppi að. Við gerum þetta á skynsamlegum nótum og miðaverðið er eftir því,“ segir Kjartan. Hann tekur ekki undir fullyrð- ingar um að dauft sé yfir menning- arlífinu á Selfossi. Hann nefnir að öflugt sönglíf sé á Suðurlandi, til að mynda tólf kórar á Selfossi. Kór- starfinu fylgi mikil menning og margar samkomur. Þá sé Leikfélag Selfoss með öflugt leiklistarstarf, svo fleiri dæmi séu nefnd. „Ég tel að menningin og þátttaka í henni sé leið til að dreifa athyglinni frá að- steðjandi vandamálum, fjár- málakreppunni núna og jarðskjálft- unum sem tóku mjög á okkur í vor,“ segir Kjartan. Vantar betri aðstöðu „Það má kannski segja að menn- ingin hér hafi ekki verið nógu áber- andi og það vantar aðstöðu. Flestir tónleikar eru haldnir í Selfosskirkju sem er okkar helsta menningarhús. Við höfum orðið að halda þorrablót- in og jólatónleikana í íþróttahúsum bæjarins. Lykillinn að auknu menningarlífi er að aðstaðan verði bætt. Selfoss er þjónustukjarni fyrir Suðurland. Fólk kemur hingað til að kaupa inn og það þarf einnig að bjóða afþrey- ingu. Við höfum glæsilegt hótel og fjölbreyttar verslanir og þjónustu,“ segir hann. Bæjarstjórn Árborgar vinnur að undirbúningi menningarhúss í nýj- um miðbæ Selfoss þar sem ætlunin er að skapa aðstöðu fyrir allar list- greinar og söfnin. „Maður sér fyrir sér að það yrði glæsileg aðstaða en spurningin er hvenær raunhæft sé að ætla að af því geti orðið,“ segir Kjartan. Hann telur að setja ætti peninga í að ljúka óinnréttuðum menningarsal í Hótel Selfoss. Þar sé frábær salur sem hægt sé að koma í notkun á tveimur árum fyrir til- tölulega lítið fé. Þörf á að brjóta upp hversdagslífið Kjartan Björnsson rakari skipuleggur atburðina á Selfossi 12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008 IMAGINE PEACE siglingar SUNNUDAGA TIL FIMMTUDAGA Friðarsúlan skoðuð frá sjó og landi Tveggja tíma ferð með leiðsögn Brottför kl 20:00 frá Skarfabakka Viðeyjarstofa opin með kaffiveitingar Bóka þarf fyrirfram í síma: 5553565 www.elding.is NICOTINELL Fæst nú hjá okkur! ®Nicotinell er samstarfsaðili Krabbameinsfélagsins Ártúnshöfða - Lækjargötu – Hringbraut – Háholti    Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is STJÓRNARFLOKKARNIR hyggj- ast setja á laggirnar nefnd um sam- einingu Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans. Geir H. Haarde for- sætisráðherra sagði að loknum þing- flokksfundi Sjálfstæðisflokksins í gær að hann hefði fengið hugmynd- ina að sameiningu stofnananna í fyrradag. ,,Ég er með henni að taka undir það sem fram kom í ræðu seðla- bankastjóra í fyrradag,“ sagði hann. Forsætisráðherra gerir ráð fyrir því að krónan fari skjótt á flot eftir afgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á lánsumsókn íslenskra yfirvalda og sé það bara spurning um daga. Samfylkingin treystir ekki forystu Seðlabankans og hefur sagt breyt- inga þörf áður en krónan verður sett á flot. Geir telur málin ótengd. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði að loknum þingflokksfundi Samfylk- ingarinnar í gær að væntanlega þyrfti að skilgreina verkaskiptingu og stjórnskipulag auk annars vegna sameiningarinnar. „Það þarf ein- hvern tíma til þess að vinna það,“ sagði utanríkisráðherra sem kvaðst hafa efasemdir um að þeirri vinnu yrði lokið áður en krónan yrði sett á flot. Utanríkisráðherra sagði aðalat- riðið að staðið yrði vel og faglega að því að setja krónuna á flot og að menn væru algjörlega samstiga í því máli, bæði stjórnvöld og Seðlabank- inn. Óráðið er hvenær störfum vinnu- hóps um sameininguna lýkur og hve- nær frumvarp verður lagt fram, að sögn Geirs. „Það verður bara að koma í ljós í þessu starfi hvað er raunhæft.“ Hann kvaðst vona að vinnan gengi hratt fyrir sig. „Það er mikilvægt að það séu ekki óvissutímar hjá starfs- fólki.“ Forsætisráðherra bætti því við að með fyrirhugaðri sameiningu Fjár- málaeftirlitsins og Seðlabankans fælist engin ásökun um að til dæmis starfsfólk Fjármálaeftirlitsins hefði ekki staðið sig vel. „Ég held að þetta sé spurning um að sameina kraftana í stað þess að dreifa þeim.“ Utanríkisráðherra og forsætisráð- herra funduðu um þessi mál í gær- kvöld. Sameiningin var hugmynd Geirs  Skipa á nefnd um sameiningu FME og Seðlabankans  Krónan verður sett skjótt á flot  Samfylkingin vildi breytingar fyrir fleytingu krónunnar  Óráðið hvenær nefndarstörfum lýkur Morgunblaðið/Ómar Fagmennsku krafist Ingibjörg Sólrún segir að vinnan við fleytingu krón- unnar verði að vera fagmannleg. Fleyta á krónunni skjótt, að sögn Geirs. Í HNOTSKURN »Samfylkingin segir traustmilli stjórnvalda og Seðlabankans nauðsynlegt. Slíkt sé ekki til staðar nú. Breytinga sé þörf áður en krónan er sett á flot. » Forsætisráðherra kveðsttelja málin alveg óskyld. » Samfylkingin er fylgj-andi sameiningu Fjár- málaeftirlitsins og Seðla- bankans. Jólatónleikarnir „Hátíð í bæ“ verða haldnir í Iðu, íþróttahúsi Fjöl- brautaskóla Suðurlands á Selfossi, þriðjudaginn 9. desember kl. 20. Fram koma eldri barnakór og unglingakór Selfosskirkju, Páll Óskar og Monika, Sigrún Vala, Frið- rik Ómar og Guðrún Gunnarsdóttir, Gísli Stefánsson og Maríanna Más- dóttir, Diddú og Karlakór Selfoss, auk leyniatriðis. „Þetta er ekta skemmtun fyrir Sunnlendinga og fólk af höf- uðborgarsvæðinu, til að upplifa hinn sanna jólaanda,“ segir skipu- leggjandinn, Kjartan Björnsson. Upplifa hinn sanna jólaanda Kjartan Björnsson rakari skipuleggur atburðina á Selfossi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.