Morgunblaðið - 20.11.2008, Side 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008
Citroën C5 SX Citroën Berlingo Van Citroën C4 SX Saloon
Citroën C3 SXCitroën C4 Comfort Saloon Citroën C5 SX
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | notadir.brimborg.is
C
ohn
&
W
olfe
P
ublic
R
elations
Íslandi
Eingöngu bílar sem sérfræðingar Citroën mæla með
Farðu á netið og skoðaðu Citroën á notadir.brimborg.is
Skoðaðu notaða úrvalsbíla í sýningarsal Citroën, Bíldshöfða 8, í dag.
Komdu í kaffi og kleinur í sýningarsal Citroën, Bíldshöfða 8.
Nýtum notaðan Citroën
Nýtum notaðan CItroën
Nýtum notaðan Citroën
Nýtum notaðan CItroën
Nýtum notaðan Citroën
Nýtum notaðan Citroën
1,6 bensín sjálfskiptur
Fast númer ZKY67
Skrd. 09/2007 Ek. 8.000 km
Ásett verð 2.090.000 kr
Afsláttur 300.000 kr
Tilboðsverð 1.790.000 kr.
1,6 bensín sjálfskiptur
Fast númer TE728
Skrd.07/2006 Ek. 23.000 km
Ásett verð 2.095.000 kr.
Afsláttur 345.000 kr.
Tilboðsverð 1.750.000 kr.
2,0 dísil beinskiptur
Fast númer DJ251
Skrd. 06/2005. Ek. 75.000 km
Ásett verð 1.350.000 kr.
1,6 bensín beinskiptur
Fast númer OS893
Skrd. 06/2005. Ek. 37.000 km
Ásett verð 1.590.000 kr.
2,0 bensín sjálfskiptur
Fast númer RS670
Skrád. 07/2005 Ek. 40.000 km
Ásett verð 2.050.000 kr.
2,0 bensín sjálfskiptur
Fast númer PP833
Skrád. 08/2005 Ek. 76.000 km
Ásett verð 1.950.000 kr.
Citroën Avant Garde Design
er svolítið sjálfhverf hönnun. Hún er mjög
framúrstefnuleg enda hugsuð fyrir
sjálfstætt fólk. Sjáðu Citroën. Spurðu um
Fyrirmyndarþjónustu Brimborgar.
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
ÍMYND Íslands hefur beðið hnekki
og heyrist jafnvel fleygt að með
hruni efnahagsins hafi áratuga
markaðsstarf farið í súginn. Hjá Ice-
landair eru menn þó ekki sammála
því að vörumerkið Ísland sé ónýtt,
þar hefur verið unnið markvisst að
því frá 1. október að snúa vörn í
sókn.
Svæðisstjórar helstu umdæma
Icelandair; þ.e. Norðurlanda, Bret-
lands, meginlands Evrópu, Norður-
Ameríku og Íslands, eru nú á land-
inu og hittust í gær til að fara yfir þá
stöðu sem blasir við og hvernig tek-
ist hefur að vinna úr henni síðustu
vikur. Í máli þeirra allra kemur fram
að í einu vetfangi hafi markaðs-
staðan gjörbreyst. Snemma í októ-
ber var ákveðið að færa áhersluna af
íslenska markaðnum og yfir á þann
erlenda með skjótum árangri.
Neikvæð umfjöllun leituð uppi
Margir hafa gagnrýnt stjórnvöld
fyrir að láta almannatengslastarf
mæta algjörum afgangi í kreppunni.
Ímynd Íslands út á við er allri þjóð-
inni mikilvæg en ekki síst fyrirtæki
eins og Icelandair sem byggir af-
komu sína á henni.
Starfsfólk Icelandair erlendis sá
sér því ekki annað fært en að bretta
upp ermar og hefur jafnvel leitað
markvisst uppi neikvæða umfjöllun
til þess gagngert að leiðrétta hana.
„Allt fór á hvolf á einum degi,“
segir Einar Páll Tómasson, svæð-
isstjóri meginlands Evrópu. „Um-
ræðan var mjög neikvæð en við
brugðumst við af mikilli ágengni og
okkur tókst að snúa umfjölluninni
við.“
Svipaða sögu segir Hjörvar S.
Högnason af Bretlandi. Þrátt fyrir
beitta gagnrýni á Íslendinga í bresk-
um blöðum óx áhuginn á Íslandi sem
áfangastað hratt á örfáum dögum,
einkum borgarferðum, enda hafa
Bretar verið áberandi á götum
Reykjavíkur síðustu vikur. Á Norð-
urlöndum hefur í haust verið lögð
áhersla á að nú sé rétti tíminn til að
heimsækja loksins Ísland og
Reykjavík er kynnt sem ódýrasta
höfuðborg Norðurlanda.
Í N-Ameríku var að sama skapi
markaðssetningu Icelandair
snarsnúið á methraða í kjölfar efna-
hagshrunsins og mikil áhersla lögð á
styrkleika dollars gagnvart krónu.
Uppskeran er 100% aukning á
bókunum frá Norður-Ameríku til Ís-
lands í október og nóvember miðað
við sama tíma í fyrra og vakti her-
ferðin athygli bandarískra miðla s.s.
New York Times, sem fjallaði um
möguleikana á að snúa erfiðri mark-
aðsstöðu sér í vil. Einar Páll segir að
lykilatriði hafi verið að hamra járnið
á meðan það var heitt „Ef við hefð-
um tekið okkur 2 vikur í að komast í
gang þá hefði það misst marks.“
Þeir segja bókunarmunstrið hafa
breyst, fólk bregðist nú t.d. hratt við
gengisbreytingum krónunnar og
bóki með stuttum fyrirvara ferðir
sem áður voru skipulagðar langt
fram í tímann. En þótt þeir auglýsi
sérstaklega hagstætt verð leggja
þeir áherslu á að ástæður þess að
fólk vilji koma til Íslands séu þær
sömu og áður. „Við erum að selja Ís-
land á nákvæmlega sömu forsendum
og áður, varan hefur ekkert breyst í
sjálfu sér,“ segir Einar.
Þvert á móti sé nú byggt á sterk-
um grunni eftir margra ára vinnu að
ímyndarsmíð Íslands. Það sem helst
sé nú breytt sé að mikill fjöldi þeirra
sem alltaf hefur langað að heim-
sækja landið, sjái sér það loksins
fært í fyrsta sinn vegna lægra verðs.
Ísland enn gott vörumerki
Morgunblaðið/RAX
Birkir H. Guðnason, Helgi M. Björgvinsson, Einar Páll Tómasson, Hjörvar S. Högnason, Þorvarður Guðlaugsson, Bjarni B. Harðarsson og Þorsteinn Egilsson.
Ímynd Íslands er ekki með öllu farin í súginn að mati svæðisstjóra Icelandair erlendis sem staðið hafa
í markvissri herferð til að snúa umræðunni Telja áhuga á Íslandi enn fyrir hendi og tækifærin mikil