Morgunblaðið - 20.11.2008, Side 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008
Hefur þú skaðast í slysi?
Við könnum rétt þinn á bótum!
Slys breyta aðstæðum í starfi og frítíma.
Gættu réttar þíns.
Fulltingi þér við hlið / www.fulltingi.is / sími 533 2050
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Í DAG verður opnaður á netinu
nýr evrópskur menningarvefur,
europeana.eu. Þar verða allar
helstu menningarperlur Evr-
ópuþjóðanna aðgengilegar öllum
sem hafa aðgang að netinu.
Landsbókasafn Íslands – Háskóla-
bókasafn er fulltrúi Íslendinga í
þessu sameiginlega verkefni Evr-
ópuþjóðanna.
Á europeana.eu verða bækur,
kvikmyndir, tónlist og tímarit,
myndlist, fræðirit og vísindalegar
rannsóknarskýrslur. Brúin virkar
í báðar áttir þannig að um leið og
Íslendingar fá aðgang að menn-
ingarverðmætum annarra Evr-
ópuþjóða, fá þær aðgang að staf-
rænu efni Landsbókasafns Íslands
– Háskólabókasafns, s.s. hand-
ritum okkar, Íslandskortum, blöð-
um og tímaritum. Síðar verður
opnaður aðgangur að íslenskum
bókmenntum, kvikmyndum og
öðrum menningarafurðum okkar.
Europeana.eu mun auðvelda al-
menningi, nemendum og fræði-
mönnum að afla sér upplýsinga
um ólíkustu málefni og bera sam-
an skyld efni frá mismunandi
löndum. Hingað til hafa menn yf-
irleitt þurft að fara víða til að ná í
nauðsynlegar upplýsingar vegna
rannsókna sinna en á europeana-
.eu fá þeir sem t.d. eru að rann-
saka Rembrandt aðgang að öllum
upplýsingum um hann á einum
stað og geta skoðað verk hans,
bækur og kvikmyndir um hann á
netinu.
Menningarperlur Evrópu-
þjóða aðgengilegar á Netinu
LAGT hefur verið til að mótuð verði ný sam-
göngustefna fyrir Reykjavíkurborg. Mark-
mið samgöngustefnunnar yrði að innleiða
vistvænar samgöngur í starfsemi borg-
arinnar og stuðla að betra og umhverf-
isvænna samgöngumynstri til framtíðar.
Umhverfis- og samgöngusviði yrði falið að
innleiða stefnuna sem kæmi til endanlegrar
samþykktar í borgarráði.
Í greinargerð með tillögunni kemur fram
að samgöngustefnan sé liður í að draga úr
bílastæðaþörf, umferðarhnútum og bæta
loftgæði í borginni. Bílum í Reykjavík hafi
fjölgað umtalsvert síðustu ár. Þannig fjölg-
aði einkabílum í Reykjavík um 40% á ár-
unum 1999-2007 en íbúunum um 7%. Fjöldi bíla á hverja þúsund íbúa var
676 á síðasta ári sem er langt umfram þær borgir sem við berum okkur
helst saman við. Fjöldi daga þegar loftmengun fer yfir heilsuverndarmörk
er nú töluvert meiri en lög og reglur gera ráð fyrir.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar eiga að vera til fyrirmyndar á ferðum
sínum um borgina og ætti borgin að sýna gott fordæmi með því að innleiða
vistvænar samgöngur í starfsemi sína og tryggja góða aðstöðu fyrir gang-
andi og hjólandi starfsfólk og viðskiptavini.
Tillaga um samgöngustefnu
fyrir starfsemi Reykjavíkur
Samgöngustefna Reykjavíkur.
BORGUN, Am-
erican Express
og Icelandair
hafa náð sam-
komulagi um
sameiginlegt
markaðsátak til
að fjölga komum
erlendra ferða-
manna til Ís-
lands með því að hvetja milljónir
American Express-korthafa frá
ýmsum löndum Evrópu til að
heimsækja landið. Átakið, sem nú
er hafið, kallast „Discover Ice-
land“ og stendur til 30. apríl 2009.
Átakið beinist að því að vekja
athygli American Express-
korthafa á sérstæðri náttúru og
ferðamannastöðum á Íslandi um
leið og kynnt verða hagstæð flug-
fargjöld og gistimöguleikar, auk
afsláttar hjá bílaleigum, versl-
unum og veitingastöðum víðs veg-
ar á landinu.
Discover Iceland verður kynnt
milljónum American Express-
korthafa í Evrópu eftir hefð-
bundnum leiðum í beinni markaðs-
setningu.
Fara í markaðsátak til að
kynna ferðir til Íslands
STJÓRN Þórs, félags ungra sjálf-
stæðismanna á Akranesi, telur að
ljóst sé af framgöngu Evrópusam-
bandsins í garð Íslands í tengslum
við Icesave-málið og IMF-lánið, að
sú skoðun aðildarsinna, að rödd
smáríkja heyrist hátt og snjallt inn-
an Evrópusambandsins sé kolröng.
„Raunin er sú að hagsmunir
hinna stærri ganga framar hags-
munum hinna smærri.“
Rödd smáríkja
heyrist ekki
EURES, samevrópsk vinnumiðlun
sem rekin er af Vinnumálastofnun,
stendur fyrir kynningu á starfs-
tækifærum erlendis í Ráðhúsi
Reykjavíkur á föstudag nk. kl. 17-
21 og aftur á laugardag nk. kl. 12-
18.
Þarna verða samankomnar 16
ráðningarþjónustur víðs vegar að.
Þau störf sem bjóðast spanna flest
svið, þó einkum í byggingariðnaði.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kynning á störf-
um í Evrópu
Í DAG kl. 20 verður haldinn borg-
arafundur í Deiglunni á Akureyri
undir yfirskriftinni „Hverjir borga
og hvað mikið“.
Tilgangur fundarins er að leitast
við að ræða þau mál sem brenna á
þjóðinni í kjölfar efnahagshrunsins.
Framsögumenn verða Jón Þorvald-
ur Heiðarsson hagfræðingur og
Jónína Hjaltadóttir.
Borgarafundur
STUTT
KOMIN er út bókin Sigurbjörn bisk-
up um dr. Sigurbjörn Einarsson sem
lést fyrr á þessu ári. Höfundur
verksins, Sigurður A. Magnússon,
afhenti Karli, biskupnum yfir Íslandi
og syni Sigurbjörns, fyrsta eintak
bókarinnar í gær.
Hér er um að ræða mjög breytta
og endurbætta bók sem áður kom út
fyrir 20 árum. Fjallað er um síðustu
20 árin í lífi Sigurbjörns og þá hefur
verið bætt við kafla um sálmaskáldið
Sigurbjörn.
„Ég heillaðist af þessum manni.
Hann hafði veruleg áhrif á mig og ég
hafði mikinn áhuga á að taka þátt í
gefa bókina út. Mér finnst mjög
merkilegt að lesa um hann, ekki síð-
ur um æskuárin og námsárin en það
sem síðar gerðist,“ sagði Helgi Jóns-
son við Morgunblaðið en hann er eig-
andi Tinds, sem gefur bókina út.
Sigurbjörn Einarsson lést 28.
ágúst sl. og fór útför hans fram frá
Hallgrímskirkju 6. september.
Sigurbjörn átti að baki fjölþættan
lífsferil. Í bókinni er brugðið upp eft-
irminnilegum myndum, allt frá
dauða móður hans og kröppum kjör-
um bernskuáranna í Meðallandi, til
erfiðra námsára í Reykjavík og Upp-
sölum, prestskaparára á Skógar-
strönd og í Reykjavík, kennsluára
við Háskóla Íslands og langs emb-
ættisferils á biskupsstóli. Hann
kvæntist Magneu Þorkelsdóttur árið
1933 en hún lést árið 2006. Eignuð-
ust þau átta börn og eru sex á lífi.
Eftirminnilegum myndum
brugðið upp af Sigurbirni
Morgunblaðið/Golli
Biskupsbók Sigurður A. Magnússon, höfundur bókarinnar, og Karl Sig-
urbjörnsson, biskup og sonur séra Sigurbjörns, glugga í bókina í gær.