Morgunblaðið - 20.11.2008, Page 18
18 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
KOMIN er í gang nokkurs konar
fegurðarsamkeppni um hvar
gagnaver rísi hér á landi á næstu
árum. Sjö sveitarfélög ásamt
Grundartangahöfn hafa nú skrifað
undir viljayfirlýsingu með fyrirtæk-
inu Greenstone um byggingu
gagnavers. Um 10-15 milljarða
króna fjárfestingu getur verið að
ræða við hvert gagnaver, fyrir utan
kostnað við að leggja sæstreng til
landsins frá Bandaríkjunum, sem
er forsenda þess að gagnaverin
verði reist. Kostnaður við slíkan
streng er áætlaður um 12 milljarðar
króna.
Fyrsta sveitarfélagið sem ritaði
undir viljayfirlýsingu með Green-
stone var Ölfus, eða í apríl sl., að
viðstöddum Össuri Skarphéð-
inssyni iðnaðarráðherra og fleiri
háttsettum mönnum. Við sama
tækifæri var önnur viljayfirlýsing
undirrituð milli Greenstone og Far-
ice um gagnaflutninga til Evrópu
gegnum nýja Danice-strenginn.
Síðan hafa nokkur bæst við eða
Fljótsdalshérað, Fjallabyggð, Dal-
víkurbyggð, Skeiða- og Gnjúpverja-
hreppur, Hafnarfjörður og loks
Austur-Húnvetningar með tilstilli
Byggðasamlags um atvinnumál A-
Húnavatnssýslu. Þá var í síðustu
viku tilkynnt um viljayfirlýsingu
með Grundartangahöfn.
Beiðni var send til fleiri sveitarfé-
laga, bæði með formlegum hætti og
óformlegum með fyrirspurnum, en
einhver þeirra munu hafa hafnað
erindi Greenstone, m.a. Akureyr-
arbær og Skagafjörður. Fyrr-
nefnda sveitarfélagið vildi vinna
þetta mál með fleiri aðilum í Eyja-
firði, þar sem ekki var talið nægt
landrými innan bæjarmarka Ak-
ureyrar, en Skagfirðingar eru með
annan samstarfsaðila í sigtinu.
Sveinn Óskar Sigurðsson hjá Ami-
cus á Íslandi, einum eigenda Green-
stone, segir að ekki verði skrifað
undir fleiri viljayfirlýsingar. For-
ráðamenn félagsins hafi viljað hafa
valkosti fyrir væntanlega leigj-
endur enda séu það þeir sem muni
velja þá staði sem þeim þyki væn-
legastir.
„Markmiðið er aðallega að brjóta
ísinn varðandi Ísland sem vænlegan
kost og hver staður á landinu hefur
sína kosti í þessu efni,“ segir hann.
Kemur Ölfusingum á óvart
Ólafur Áki Ragnarsson, sveit-
arstjóri í Ölfusi, segir það óneit-
anlega hafa komið sér á óvart hve
mörg sveitarfélög hafi bæst við eft-
ir að þeir skrifuðu undir í vor.
„Þetta er öðruvísi en lagt var upp
með en í sjálfu sér eru engin eft-
irmál af því af okkar hálfu,“ segir
Ólafur Áki en í samningi við Green-
stone er m.a. ákvæði um að ekki sé
rætt við aðra aðila á meðan frekari
ákvarðanir liggja ekki fyrir hjá
Greenstone. Þrátt fyrir slík ákvæði
segir Ólafur Áki að sveitarfélagið
hafi haldið áfram sinni heimavinnu
og tekið á móti öllum áhugasömum
fyrirtækjum í framkvæmdahug.
„Við verðum að halda áfram að
fiska. Við erum nú ýmsu vanir
hérna í sveitarfélaginu,“ segir Ólaf-
ur Áki en í gegnum tíðina hafa fjöl-
mörg fyrirtæki sýnt áhuga á að
reisa verksmiðjur og ýmis fyrirtæki
í Þorlákshöfn og nágrenni.
Spurður hvort ekki sé hætta á að
óraunhæfingar væntingar geti
skapast hjá sveitarfélögunum segir
Sveinn Óskar að í því ástandi sem
nú ríki um heim allan verði að leita
leiða fyrir landsbyggðina sem og
fyrir landið í heild.
Mikill áhugi í Kaliforníu
„Öllum aðilum er ljóst að við
verðum að bjóða valkosti. Ef við
náum að brjóta ísinn varðandi Ís-
land og ljósleiðari verður lagður frá
Íslandi til Bandaríkjanna, þá er
ljóst að fleiri gagnaver en eitt munu
rísa á Íslandi á næstu árum.“
En hver er staðan hjá Green-
stone í dag? Sveinn Óskar er núna
staddur á ráðstefnu í Palm Springs
í Kaliforníu til að kynna þá staði
sem eru í boði á Íslandi. Hann segir
áhugann vera mikinn.
„Verkefni af þessum toga veltur
ekki endilega á þeim stöðum sem
eru í boði, heldur mun fremur á Ís-
landi og þeim gagnatengingum sem
standa til boða, sem og orkuverði
og öryggisþáttum. Aðilar frá virt-
um netfyrirtækjum og stórnot-
endum gagnavera hafa komið og
rætt við okkur og lýst áhuga sínum.
Spurningin snýr að því hverjir
munu brjóta ísinn varðandi Ísland.“
Um fjármögnunina við núverandi
aðstæður segir Sveinn hana vissu-
lega vera erfiða. „En við bendum
aðilum á að þeir hafa á Íslandi að-
gang að mjög góðum kostum, vel-
vilja stjórnvalda og grænni orku á
samkeppnishæfu verði. Þar liggur
samkeppnishæfni Íslands umfram
aðra staði í heiminum,“ segir hann.
Fegurðarsamkeppni bæja
Búið að gera átta viljayfirlýsingar um gagnaver Greenstone Öðruvísi en lagt var upp með, segir
sveitarstjóri Ölfuss Verðum að bjóða marga valkosti og brjóta ísinn, segir einn eigenda Greenstone
Í HNOTSKURN
» Á meðan Greenstone leit-ar að samstarfsaðilum hér
á landi er Verne Global komið
lengst í sínum undirbúningi.
» Verne áformar gagnaverá gamla varnarsvæðinu á
Keflavíkurflugvelli og hefur
skoðað fleiri staði á landinu
undir önnur gagnaver.
» Félagið Titan Global, semer m.a. á vegum Jónasar
Tryggvasonar, er einnig að
skoða möguleika á gagnaveri.
"
!
"
#$
%&
$&
'
*
&)
+&&)
$
'
( %)
&*
*$
!
+"
,
,&)
*
-
$
$
!
*&
-"
.$)/#
*
"
$
&)
0&/
#
*
1
2
)&
3
4
* ! )
5)
&
& % $
FJÁRFESTINGARSTOFA lét VGK-Rafhönnun (nú
Mannvit) gera skýrslu fyrr á þessu ári um möguleika á
gagnaverum/netþjónabúum á Íslandi, þar sem úttekt
var gerð sérstaklega á 10 sveitarfélögum og einu land-
svæði. Ekki var um tæmandi úttekt að ræða, að sögn
Þórðar H. Hilmarssonar, framkvæmdastjóra
Fjárfestingarstofu, heldur leiðbeinandi skýrslu til að sjá
hvaða landshlutar gætu tekið við starfsemi af þessu tagi.
Þannig er t.d. ekki Höfn í Hornafirði í skýrslunni en það
svæði gæti að sögn Þórðar hentað ágætlega.
Tekið var tillit til nokkurra þátta, eins og rafmagns- og ljósleiðarateng-
inga, samgangna, atvinnumála og aðgengis að kælivatni.
Þessir 11 staðir voru Borgarbyggð, Ísafjarðarbær, A-Húnavatnssýsla,
Sveitarfélagið Skagafjörður, Akureyrarbær, Fljótsdalshérað, Seyðisfjarð-
arkaupstaður, Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Ölfus, Grindavík-
urbær og Sandgerðisbær. Komu flestir þessara staða ágætlega út í skýrsl-
unni, nema hvað að ókostir reyndust mestir á Ísafirði og Seyðisfirði.
Við þrjá þessara aðila hefur Greenstone nú gert samning; Ölfus, Fljóts-
dalshérað og A-Húnvetninga, og leitað svo til fleiri sem ýmist hafa hafnað
erindunum eða ekki afgreitt þau. Önnur gagnaversfyrirtæki hafa stuðst
við skýrsluna og skoðað marga af þessum stöðum.
Þórður segir að þótt Greenstone eða önnur fyrirtæki hafi fengið upplýs-
ingar og gögn þaðan þá hafi hún ekki mælt með þeirri leið að gera samn-
inga við svo mörg sveitarfélög. Aldrei verði svo mörg gagnaver reist og
miklar líkur á að byrjað verði á suðvesturhorni landsins.
Ellefu staðir voru skoðaðir
VERNE Global er líkast til
lengst á veg komið í sínum und-
irbúningi með gagnaver hér á
landi. Félagið varð sér úti um
fasteignir á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli og hefur þegar
auglýst eftir fólki til starfa. Verne er í eigu Novators Björgólfs Thors og
bandaríska félagsins General Catalyst Partners. Þorvaldur E. Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Verne Global, vísaði í gær á fjölmiðlafulltrúa félagsins
þegar leitað var eftir upplýsingum um stöðu verkefnisins en sá vildi ekki
tjá sig að svo stöddu. Fram hefur komið í máli Þorvaldar í Morgunblaðinu
að Verne verði líklegast búið að ráða um 10 manns til starfa hér á landi
næsta haust. Í dag starfa fjórir fyrir félagið á Íslandi en 12 í Bandaríkj-
unum við undirbúning margs konar.
Verne komið lengst á veg
HALLDÓR Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði og for-
maður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segist ekki
hafa fengið beiðni frá Greenstone, enda hafi Vestfirðir,
Snæfellsnes og fleiri landsvæði ekki verið inni í mynd-
inni vegna óöryggis í raforku- og gagnaflutningsmálum.
Því miður hafi vilji ekki reynst fyrir því hjá stjórnvöld-
um að leysa þessa þætti. Sambandsleysið til Vestfjarða
hafi hamlað fleiri fyrirtækjum sem hafi haft áform um
rekstur þar.
Um það hvort verið sé að vekja óraunhæfar væntingar
meðal sveitarfélaga með undirritun svo margra viljayfirlýsinga segir Hall-
dór, að alltaf sé hætta á að einhverjir treysti því að af verkefninu verði.
„Ég skil samt mjög vel að sveitarfélögin vilji skrifa undir því þau hugsa
sem svo að miði er möguleiki. Ef svona fyrirtæki myndi leita til okkar, þá
myndi ég hiklaust mæla með því. Hins vegar megum við passa okkur á að
vænta ekki of mikils af svona verkefni. Við megum ekki við öðru vatns-
ævintýri,“ segir Halldór og vísar þar til allra þeirra áforma sem hafa verið
uppi um vatnsverksmiðjur víða um land.
„Miði er möguleiki“
TITAN Global er nýr þátttakandi í kapphlaupinu um
byggingu gagnavers á Íslandi. Jónas Tryggvason, fv.
framkvæmdastjóri hjá Actavis og gamall fimleikakappi,
er meðal þriggja aðstandenda þess félags en í samtali
við Morgunblaðið segist hann vera með aðra aðkomu en
Greenstone og Verne. Titan Global ætli sér ekki að reka
gagnaver heldur koma því í hendurnar á stóru, erlendu
fyrirtæki sem vill hýsa slíka starfsemi á Íslandi. Þá er
ekkert verið að veðja á smákónga, heldur risa á borð við
Microsoft, Google, Yahoo og fleiri áþekk fyrirtæki. Við-
ræður hafa farið fram við erlenda aðila en engir samningar verið undirrit-
aðir enn. Að sögn Jónasar er áhersla lögð á stað í 100 km radíus frá höf-
uðborgarsvæðinu. Búið er að þrengja staðarvalið við þrjá kosti, sem Jónas
upplýsir ekki nákvæmlega hverjir eru, en á endanum verður aðeins einn
staður valinn.
„Númer eitt, tvö og þrjú er að vanda staðarvalið því þessi stóru fyrirtæki
velja ekki hvað sem er. Ein fyrsta reglan er að hafa gagnaver ekki í ná-
grenni við millilandaflugvöll, vegna hættu á flugslysum og hryðjuverkum.
Þar þarf fjarlægðin að vera hið minnsta fimm kílómetrar,“ segir Jónas og
vísar þar greinilega til áforma Verne Global við Keflavíkurflugvöll. „Mestu
skiptir að vita hvað viðskiptavinurinn vill áður en við förum að velja staði
sjálfir. Það þarf að skapast reynsla fyrir gagnaveri á Íslandi, ekkert slíkt
er risið enn. Þeir sem þurfa að reka gagnaver á Íslandi hafa sett það upp í
útlöndum, eins og CCP hefur gert,“ segir Jónas en gagnaver Titan er háð
góðu ljósleiðarasambandi við Evrópu gegnum sæstrengina.
Titan Global með
stórfyrirtæki í sigtinu
SÚ viljayfirlýsing sem Greenstone
hefur gert við sveitarfélögin hefur
í megindráttum verið hin sama.
Um er að ræða 50 þúsund fer-
metra lóð undir gagnaver sem
sveitarfélögin hafa heitið að út-
vega ásamt fleiri kostum.
Áform eru um að reisa allt að
40 þúsund fermetra hús í tveim-
ur áföngum, þar sem byrjað yrði
á 1. áfanga á árunum 2010-2011.
Greenstone hefur tekið að sér
kynningu á möguleikum sveitarfé-
lagsins í þessu efni, hönnun og
væntanlega byggingu gagnavers.
Talið er að hvert gagnaver
skapi 20 ný störf og um 20 af-
leidd störf fyrir viðkomandi
svæði. Jafnframt hefur Green-
stone ritað undir viljayfirlýsingu
með Landsvirkjun um að útvega
50MW til hvers gagnavers. For-
senda fyrir þessum byggingum er
hins vegar að sæstrengur verði
lagður milli Íslands og Bandaríkj-
anna. Engin ákvörðun hefur verið
tekin um slíkan streng.
Viljayfirlýsingarnar samhljóða