Morgunblaðið - 20.11.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.11.2008, Blaðsíða 32
32 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008 ✝ Marteinn Guð-laugsson fædd- ist í Reykjavík 19. september 1935. Hann lést á krabba- meinsdeild 11 E Landspítala v/ Hringbraut þriðju- daginn 4. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Arndís Krist- rún Kristleifsdóttir, f. 26.11. 1913, d. 17.5. 1993, og Guð- laugur Davíðsson, f. 24.12. 1909, d. 27.10. 1986. Hálf- systir Marteins var Ingibjörg Guð- laugsdóttir, f. 6.7. 1935, d. 2.3. 1976. Arndís Kristrún giftist síðar Kolbeini Guðmundssyni, f. 24.10. 1909, d. 23.1. 2000. Hálfbræður Marteins eru Krist- leifur, f. 3.6. 1946, maki Stefanía Erla Gunnarsdóttir; Kjartan, f. 24.2. 1949, maki Helga Stefanía Haraldsdóttir, og Guðmundur Arnar f. 13.2. 1956, maki Kolbrún Jóhannsdóttir. Marteinn kvæntist 17.9. 1960 Kristínu Oddbjörgu Júlíusdóttur Ína Steingrímsdóttir, f. 15.6. 1983. Marteinn ólst upp hjá Móðurfor- eldrum sínum: Soffíu Guðrúnu Árnadóttur, f. 10.2. 1885, d. 13.9. 1981, og Kristleifi Jónatanssyni, f. 2.1. 1873, d. 7.2. 1946, á Efri- Hrísum í Fróðárhreppi en fluttist þá til móður sinnar og fósturföður í Reykjavík, gekk í Laugarnes- skóla og síðan í Iðnskólann í Rvk. Lærði húsgagnasmíði í Trésmiðj- unni Víði, öðlaðist þar meist- araréttindi í iðninni. Stofnaði þá sitt eigið fyrirtæki sem hlaut nafn- ið Sedrus. Halldór Ólafsson, sem lauk námi í húsgagnabólstrun í Víði, gekk til samstarfs við hann og ráku þeir Sedrus saman allt til ársins 1987. Eftir það starfaði Marteinn um tíma hjá Axel Eyjólfssyni (Axis húsgögn ehf.) En síðan hjá Sökkli ehf. þar til hann veiktist alvarlega í árslok 2005. Marteinn nam einnig fræði í Sál- arrannsóknaskólanum og var virk- ur þátttakandi í starfsemi Sálar- rannsóknafélags Rvíkur alla tíð síðan. Hann var líka mikill dans- áhugamaður og var umsjón- amaður Danshallarinnar v/ Drafnarfell um árabil. Útför Marteins Guðlaugssonar fer fram frá Laugarneskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13. (þau skildu 1986.) Foreldrar hennar eru Margrét Jensína Jónsdóttir, f. 4.5. 1916, og Júlíus Guð- jón Oddsson, f. 21.5. 1915, d. 16.3. 2001. Börn Marteins og Kristínar Oddbjargar eru 1) Júlíus Guðjón, f. 17.6. 1960, maki Thelma Hólm Más- dóttir, f. 9.9. 1964, börn þeirra: Daníel, f. 24.9. 1988, Sunna Sif, f. 20.11. 1991, og Sandra Kristín, f. 1.12. 1993 . 2) Arnar Rúnar, f. 20.1. 1964, fyrrv. sambýliskona Elízabeth Gunn- arsdóttir, f. 25.2. 1963, börn þeirra eru: Marteinn, f. 24.4. 1992, Daði, f. 20.2. 1994 og Máni, f. 3.2. 2000. 3) Soffía Dröfn f. 20.6. 1965, maki Haukur Magnússon, f. 12.1. 1964. Börn þeirra eru Gabríela, f. 10.2. 1998, og Róbert, f. 1.10. 2001. Marteinn var í sambúð um sjö ára skeið með Bjarnheiði Magn- úsdóttur, f. 31.1. 1951. Dætur hennar eru Harpa Sigríður Stein- grímsdóttir, f. 4.12. 1979, og Helga Elsku pabbi. Nú ert þú horfinn yfir móðuna miklu, horfinn inn í annan heim, heim sem gaf þér svo mikið að fræðast um. Þú óttaðist eigi, þú vissir hvað beið þín í ljósinu, en samt sem áður barðist þú svo hetjulega við illvíga sjúkdóminn þinn til að fá að staldra lengur við hérna hjá okkur. Það hjálpar okkur sem eftir sitjum líka svo mikið að sjá þig fyrir okkur halda ferðalagi þínu áfram í heimi þar sem tvær sólir skína, að þetta séu ekki enda- lok, heldur upphaf, laus úr viðjum þjáðs líkama. Oft voru erfiðir tímar í veikindunum þínum, en þú náðir líka að njóta lífsins, fara í ferðalög og á mannamót og þá varstu ekkert að spara þig því þú sagðist hafa all- an tímann í veröldinni til að hvíla þig. En þrautseigja þín kom víðar við, þá má minnast ferðalaganna um landið þegar við vorum krakkar, eins og þegar 5 manna fjölskyldu var pakkað í bílinn með farangur- inn á toppnum og ekið í Skaftafell, árið áður en hringvegurinn var opnaður, á malarvegunum sem þá voru. Eða þegar Cortínan réð ekki við árnar inn í Þórsmörk og tjaldað var á árbakka til að láta bílinn þorna og kom þá í ljós að allt var þarna krökkt af berjum og hefur fjölskyldan ekki tínt jafnmikið af berjum hvorki fyrr né síðar. Þú varst hlýr og yfirvegaður, ekki alltaf maður margra orða, en komst þínu til skila og laumaðir lúmskum húmornum inn. En stundum var bara svo notalegt að þegja saman og finna fyrir nærver- unni. Ég veit að þú verður með okkur í kirkjunni í dag og ég veit að þú munt fylgjast með okkur í framtíð- inni, fylgjast með Gabríelu og Ró- berti vaxa og dafna og sömuleiðis Ávaxtabílnum. Elsku pabbi minn, minning þín verður ljós í lífi okkar. Þín, Soffía. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Drengur góður, drengskapar- maður, prúðmenni. Marteinn mátti aldrei vamm sitt vita. Þegar ég kom til Reykjavíkur átta ára gömul að heimsækja eldri systur mína og tilvonandi mág, vildi hann sýna dreifbýlisbarninu eitthvað sérstakt. Hann fór að háu fjölbýlishúsi við Hátún til að leyfa mér að upplifa að fara í lyftu. Mar- teinn varð síðan stór hluti æsku minnar. Sjálf bjuggu þau Obba og Marteinn á Hofteig 36 í hlýlegu umhverfi Laugardalsins, umvafin fallegum görðum með rifsberja- og sólberjarunnum og jarðarberja- ræktun. Stofa ungu hjónanna skartaði fallega mahónískápnum, sem var sveinstykki hins unga húsgagna- smíðameistara og bar vandvirkni hans og fágun vitni. Aldrei létu Obba og Marteinn sig vanta þegar ég spilaði á tónleikum í Keflavík þó að þau væru þá komin með lítið barn. Marteinn setti á stofn eigið hús- gagnasmíðafyrirtæki, Sedrus. Það rak hann af fádæma samviskusemi, elju og dugnaði. Þegar við Hemmi rákumst óviðbúið inn til þeirra hjóna á Háa- leitisbraut, vorum við umsvifalaust drifin að matborðinu. Þar nutum við allra heimagerðra kræsinga húsmóður með ívafi góðlátlegrar kímni húsbóndans um menn og málefni. Man ég að honum fannst hugsuðir í stjórnmálum fremur Marteinn Guðlaugsson ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall eiginmanns, sonar, föður, afa og bróður, ÞÓRHALLS GEIRS GÍSLASONAR frá Brúum, Aðaldal, Kambahrauni 5, Hveragerði. Bestu þakkir fær starfsfólk og læknar gjörgæslu- deildar í Fossvogi fyrir einstaka umönnun og vinsemd. Valgerður Jónsdóttir, Jóhanna Halldórsdóttir, Róbert Þórhallsson, Þuríður Annabell Þórhallsdóttir, Aðalsteinn Guðmundsson, Helga Vala Svavarsdóttir, Þorgerður Gísladóttir, Halldór Gíslason, fjölskyldur og aðstandendur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, BERGRÚN JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR, Einbúablá 44a, Egilsstöðum, sem lést sunnudaginn 9. nóvember, verður jarðsungin frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 22. nóvember kl. 15.00. Helga Berg, Ólafur Arason, Sigrún Pálsdóttir og ömmustrákarnir. ✝ Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa, langafa og langalangafa, HALLDÓRS ÞORSTEINS GESTSSONAR, Skálarhlíð, Siglufirði, sem andaðist mánudaginn 3. nóvember. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar. Guð blessi ykkur öll. Líney Bogadóttir, börn og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, JAKOBÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Bíbí, Vatnsstíg 15, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. nóvember kl. 13.00. Örn Scheving, Bragi Reynisson, Eulogia Medico, Guðrún Hanna Scheving, Gísli Hermannsson, Sigmar A. Scheving, Hjördís Jóhannsdóttir, Brynja A. Scheving, Karl Jóhann Guðsteinsson, Egill A. Scheving, Laufey Þórðardóttir og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA NANNA JÓNSDÓTTIR frá Mýri í Bárðardal, Rauðumýri 7, Akureyri, verður jarðsungin frá Glerárkirkju þriðjudaginn 25. nóvember kl. 13.30. Konráð Erlendsson, Gréta Ásgeirsdóttir, Karl Erlendsson, Eyrún Skúladóttir, Jón Erlendsson, Aðalbjörg Erlendsdóttir, Stefán Aðalsteinsson, Helgi Erlendsson, Steinunn Kristjánsdóttir og ömmubörnin öll. ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir og mágur, INGIMUNDUR GUÐMUNDSSON bifreiðastjóri, Fannborg 7, áður Kársnesbraut 72, Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudaginn 19. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna s: 588-7555 eða hjúkrunarheimilið Sóltún s: 590-6000. Kristrún Daníelsdóttir, Ragnheiður Ingimundardóttir, Sigurður Gunnar Sveinsson, Guðmunda Ingimundardóttir, Þórarinn Björn Guðmundsson, Daníel Gunnar Ingimundarson, María Antonía Jónasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn, Elsa Drageide, Halldór Örn Svansson. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTÞÓR BORG HELGASON skipasmíðameistari, Njálsgötu 44, Reykjavík, lést mánudaginn 10. nóvember. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 21. nóvember kl. 13.00. Kristín Ingibjörg Benediktsdóttir, Benedikt Guðjón Kristþórsson, Unnur Björg Kristþórsdóttir, Guðlaugur Ásgeir Kristþórsson, tengdadóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Samúðarkerti/hólkar með huggunarorðum fást í blómabúðum. isdecor@isdecor.is Samúðarkerti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.