Skinfaxi - 01.06.1925, Qupperneq 5
SKINFAXI
53
um. Mætti verja fé úr almennum félagssjqði til þess
að styrkja fulllrúa úr fjarlægum héröðum til ferða og
gera öllum dvölina sem kostnaðarminsta.
m.
Stefnuskrá ungmennafélaganna hingað til virðist að
sumu leyti hafa verið of almenn. í s 1 a n d i a 11 má
teygja á ýmsa vega og allir þykjast fylgja því boði. Á
hinn bóginn virðist hafa mistekist að liða hana sund-
ur i einstök verkefni. íþróttirnar eru ágætar og sjálf-
sagðar. Skóggræðslan of erfitt og kostnaðarsamt verk-
efni. Bindindið óþarft, þar sem hindindisfélög eru á
hverju strái, og hefir víða verið svo illa haldið, að
félagsskapnum hefir verið til vansa og hnekkis. Snm
atriði (t. d. að skipa öllum félögum að þúast) hégóm-
inn einber.
Alt það besta í stefnu félaganna má segja í tveim
orðum: 1 s 1 e n s k s v e i t a m e n n i n g. )?að verk-
efni er bæði nógu alment og auðvelt að liða það sundur i
atriði, sem hendur verða festar á. Og það er ómetan-
legt að lýsa markinu i sem fæstum orðum, sem geta
brent sig inn í hug hvers félaga og vakið ]?ar ákveðna
hugmynd.
Meginskoðun sú, sem i þessu kjörorði er fólgin, er
á þá leið, að í íslensku sveitalíl'i sé best vaxtarskilyrði
fyrir þjóðmenningu og einstakling, og heilbrigði lcyns
vors sé undir eflingu sveitanna komin. En í því er
ekki fólgin nein tilraun til þess að hlása að úlfúð milli
sveita og bæja. Fyrir bæina væri miklu betra að fá
íærra fólk úr sveitinni og belur ment. Og jafnframt
þvi, sem félagsskapurinn vill gera sveitirnar hyggilegri
og hygðari, vill hann efla íslenska menningu i bæjun-
um, og láta líka þar þrifast alt, sem einkennir þjóðlíf
vort á betra veg.
Sama liættan vofir núyfirflestumNorðurálfuþjóðum:
fólkið streymir úr sveitunum i borgirnar, úrkynjast