Skinfaxi - 01.06.1925, Side 10
58
SKINFAXI
hin, sem leiða til lífsins. ]?að er hlutverk vor allra að
þroska hin andlegu verðmæti, sem með þjóðinni búa
og leysa þau með öllum hætti úr læðingi, sem bundin
eru, en verða mættu til að flytja og mynda andlega
strauma og dreifa logni og kyrstöðu, þvi að kyrstaða
er afturför en afturförin leiðir til dauðans. þetta má
gera á margvíslegan hátt, með ritum, ræðum og verk-
legum athöfnum. En fátt styrkir betur samúð og sam-
vinnu en samkomur og samfundir. Margskonar mót og
samkomur, sem taka til héraða eða félaga á lillu eða
stóru svæði, miða að því að styrkja samfélagskendina.
Og mönnum er það ljóst, að mót þessi hvetja til starfs
og örfa blóðrás þjóðlífsins á því svæði, er iþau ná til.
pvi eru héraðshátíðir víða um land orðinn svo nauðsyn-
legur liður í félagslífi hjeraðsins, að söknuður og tjón
hlytist af, ef þær væru feldar niður. Fyrir íþróttafélög
og ungmennafélög eru héraðsmót þeirra vissulega lífs-
nauðsyn. pegar þessar samkomur og mót eru svona
mikils virði, livers virði mundi það iþá, ef þjóðin í heild
stofnaði til móts á líkan hátt, sem sé þjóðhátíðar.
pjóðhátíð verður að tengja við einhvern atl)urð eða
einhverja athöfn i lífi þjóðarinnar, sem cngum getur
blandast bugur um að sé minningar verð. Hugmyndin
þjóðhátíð felur í sér svo mikið, að það orð má að eins
nota um þá hátíð, sem haldin er í minningu einhvers,
sem þjóðin öll lýtur í lotningu, af skilningi eða tilfinn-
ingu fyrir mikilvægi þess. Og það verður að hafa var-
anlegt minningargildi. pað eitt, sem uppfyllir þessi skil-
yrði til hlítar og er séreign vor, er Alþingi hið
f o r n a. Eg veit að þér, góðir ungmennafélagar, játið
þessu. Er nú ekki liklegt, að hátíð, haldin í minningu
Alþingis hins forna muni gela orðið aflgjafi þjóðlífi
voru? pér ihugið þetta og munuð cinnig játa þessu.
Er ekki hægt að leiða sennilegar líkur að þvi, að það
mætti koma á fót þjóðsamkomu á pingvelli, sem hefði
á marga lund skyldleika við hið fornfræga þing? par