Skinfaxi - 01.06.1925, Síða 26
74
SKINFAXI
36
• Miðreitur •
Leikendur skiptast í tvo flokka, og þurfa flokkarnir
að vera auðkendir með litum, hver frá öðrum, og er
það hægt á margan hátt, best með livítum og rauðum
l)orðum bundnum um handleggina, eða að annar flokk-
urinn auðkenni sig einhvernveginn með vaaaklútnum
sínum, en allir verða að g'era það á sama hátt. Að því
búnu skifta leikendur sér i reitina, tveir saman, einn
af hvoru liði, 18 leikendur geta verið í leiknum, en séu
fleiri, þá má í sumum reitunum hafa 4, og ef færri en
18 eru hðtækir til leiks, iþá er hægt að láta 2 gæta
tveggja reita. Hver flokkur hefir sitt mark að verja,
og hinir sækja á,livihr sú vörn sérstaklega á mark-
manninum, (þ. e., þeim af flokknum sem er á mark-
reitnum). 1 þeim sama reit hefir hinn flokkurinn einn-
ig mann, og er hann sækjandi, og er hans hlutverk að
grípa knöttinn þegar hann kemur inn í reitinn, kasta
honum upp í loftið, þannig, að hann falli niðiu- í körf-
una, og hefir hann þá gert mark. Verjandinn aftur á
móti reynir að grípa knöttinn og kasta honum til með-
leikanda síns í næsta reit, og þannig áfram yfir að
hinu markinu. Eins og áður er getið, er knötturinn
gefinn upp í miðreitnum á þann hátt, að honum er
kastað beint upp, og verður að koma niður á þann
reit, og annar hvor sá reitbúi að kasta honum yfir i
næsta reit, í áttina til þess marks, sem liann á að sækja
á, þannig Jeitast allir við að kasta eða slá með flötum
lófa knöttinn til meðleikanda í næsta reit, uns mark
sækjandi í markreit liefir náð honum. Reynir hann þá