Skinfaxi - 01.06.1925, Síða 27
SKINFAXI
75
strax að gera mark, hepnist það, þá stöðvast leikur-
inn, þar til búið er að gefa upp aftur, takist það ekki
er haldið áfram. petta er gangur leiksins, annars fylgja
honum þessar reglur fyrir dómara:
1. Leiktími er 40 mínútur; eftir 20 mín. er hálfleik
lokið og er þá skift um mark. Báðir flokkar í samein-
ingu velja sér dómara. — Leikandi má slá knöttinn
eða kasta honum svo framarlega að hann að einhverju
leyti sé inni í sínum eigin reit, en sé hann alveg fyrir
utan og hreyfi knöttinn, er mótspilanda lians i þcim
reit fenginn knötturinn og á hann vítiskast.
2. Ef tveir keppendur grípa til knattarins samtímis,
þá tilheyrir hann þcim er fyr hefir á honum báðar
hendur.
3. Hal'i einn leikandi knöttinn, þá er engum andstæð-
ing hans heimilt að reyna að taka hann af honum,
stjaka við honum eða á annan hátt hindra hann i þvi
að kasta, en hins vegar ber hverjum leikanda að kasta
strax án tafar og ekki má hann ganga meira en tvö
skref með knöttinn, áður en kastað er.
4. þegar marksækjandi hefir fengið knöttinn og
stendur það nálægt markinu, að hann álítur að tiltök
séu að gera mark, kallar liann „stopp“, og frá þeim
stað er hann hefir gripið knöttinn, verður hann að reyna
að kasta honum i lcörfuna. Ef verjandi í sama reit
reynir á einhvem hátt að koma í veg fyrir að kastið
takist, fær sækjandi að kasta aftur frá sama stað, og
er það „fríkast“. Fær hann þá straffímark, ef honum
tekst að hæfa í körfuna, en það er fullur vinningur.
5. Lendi knötturinn út fyrir ystu marklínu, verða
leikendur í þeim reit, þar sem hann fór út, að sækja
hann, og sá er fyr snertir hann, á að kasta honum inn;
gerir liann það frá þeim stað, þar sem knötturinn fór
út fyrir línuna, og má hann kasta hvert sem hann vill,
nema ef kastað er inn frá enda línunnar, þá má ekki
kasta inn í markreitinn.