Skinfaxi - 01.09.1925, Blaðsíða 1
U ngmennafélögin
í Suður-Þingeyjarsýslu.
i.
Ritstjóri Skinfaxa hefir beðið mig að skýra lesendum
ritsins frá þingeysku ungmennafélögunum i stuttu máli.
Hefir Skinfaxi jafnan látið hljótt um þau, enda eru þau
ekki i allsherjarsambandi ungmennafélaganna, U. M.
F. í. Hinsvegar hafa þau verið með slarfsömustu ung-
mennafélögum landsins, og stórhuga eins og hest ger-
ist um þau.
Um aldamótin náðu bindindisfélög, sem aðallega
voru fyrir æskulýð, allmildum þroska i sumum sveit-
um þ’ingeyjarsýslu, og stóðu sum þeirra með blóma
fram til 1908. En um líkt leyti og ungmennafélagshreyf-
ingin hófst annarsslaðar á landinu, byrja ungmenna-
félög að vaxa upp i pingeyjarsýslu við hlið bindindis-
félaganna og sumstaðar a. n. 1. í kapp við þau. pessi
hreyfing var fyrst veik og skipulagslaus, en 1907 rís
allsterk alda, sem stefnir að þvi að gera hana víðtæk-
ari og skipulagsbundnari, og eru forgöngumennimir
því mótsnúnir, að félögin geri bindindisstarfsemi að
stefnuskráratriði, og vilja bafna sambandi við U. M.
F. í., nema feld séu úr skuldbindingaskéá þeirra bind-
indisheit og þúunarskylda og ákvæði um, að félagið
bygði starf sitt á kristilegum grundvelli numið úr lög-
um þeirra. Töldu þeir, að þessi atriði leiddu að eins til
óeinlægni og yfirdrepsskapar í félögunum.