Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1925, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.09.1925, Blaðsíða 16
96 SKINFAXI sinnum farsælla og meira virði en sífelt þot og fálm og leit úr einum staðnum í annan. Að eg ekki tali um hvað þá er staðið betur að vígi, með það að geta gert það, sem í kringum sig er, eitthvað betra og hlýrra, glaðara og gæfusamara. Eins er það með félagsskap. Yið vitum ekki Iivers virði það er, að v i n n a s a m- a n að góðum störfum, hvort sem framkvæmd þeirra er i dag, eða lengst út i hugsjónalöndum framtíðarinn- ar, vitum það ekki til fulls, fyr en við sjáum engin ráð til að lífga aftur það sem dáið er. pá finnum við oft- ast að við höfum legið á liði okkar, að einhverju leyti dregið okkur í hlé, vanlað lifandi áhuga og þálttöku í starfsemi félags, ekki hirt um að vekja eða viðhalda þeim kröftum, sem i okkur húa. pað er fátt eins gremjulegt og þetta svar, sem marg- ir viðhafa við beiðni um einhverja þátttöku: „pað mun- ar ekkert um mig.“ Ef þetta er af yfirlætisleysi, þá er það samt sem áður hinn versti og hrapallegasti mis- skilningur, sem nokkur ungmennafélagi gerir sig sek- an um. Jú, vertu viss. pað munar mikið um þig ein- ann, liver sem þú ert. pað munar um livort þú sækir fundi eða ekki. pað munar um livort þú efnir þau lof- orð, sem þú gefur með atkvæði þínu. pað munar um hvert einasta orð eða athöfn, sem þú vinnur gagnvart félaginu þínu, og það munar um hverja einustu góða hugsun í garð þess. Er ekki í rauninni alt komið undir hugsunarhættin- um? Alt komið undir þeim anda, sem hvert verk er unnið í? Finnum við þetta ekki daglega heima hjá okk- ur? pau störf, sem við vinnum með lifandi áhuga og kap])i, og hugsum okkur að gera bæði vel og mikið, er það ekki eins og þau margblessist, og launin verði margföld í þeirri meðvitund einni, að hafa gert m e i r a e n s k y 1 d u s í n a. En — er það ekki eins og van- blessun í öllu, sem gert er með liangandi hendi og með það eitt fyrir augum að fá vissa launauj)phæð?

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.