Skinfaxi - 01.09.1925, Blaðsíða 28
108
SKINFAXI
með tilliti til sambandsins í heild sinni og hvers ein-
staks félags. Einnig geti hún orðið allmerkileg fyrir
menningarsögu þjóðarinnar. Sambandsþingið felur sam-
bandsstjórninni að gera sitt ítrasta til þess að bvert
einstakt félag í sambandinu gæli þess vandlega að safna
og geyma öll gögn sem til eru og félagsskapinn gætu
varðað. Sambandsstjórn leggi áberslu á það við héraðs-
stjórnirnar að þær beiti sér fyrir málinu, liver i sínu
héraði.“
Samkvæmt tillögu þessari er hvert f é 1 a g r æ k i-
1 e g a m i n t á, „a ð s a f n a o g g e y m a ö 11 þ a u
g ö g n, s e m t i 1 e r u o g félagsskapinn gela
varða ð.“
Nú er þegar liðinn alllangur timi svo að nokkrum
árum skiftir frá stofnun margra hinna eldri ungmenna-
félaga. Störfin og forstaða félaganna taka óðum að
breytast. Upphafsmenn og fyrri stjórnendur félaganna
sleppa þeim störfum af ýmsum ástæðum. Menn flytj-
ast brott í aðra staði, lilaðast öðru annríki, verða þreytt-
ir á striti félagsskaparins, eða láta öðrum yngri og
röskari eftir störfin. Og þó dugnaður og elja sé óbiluð,
þrýtur sjálft lifið, — oft þegar minst varir.
Alt þelta, ásamt mörgu öðru, veldur því, að hvar sem
skiftir um starfskrafta og störfin flytjast milli manna,
er altaf hætta á því að eitthvað geti gleymst eða glat-
ast af skrifum eða bverskonar gögnum, ellegar upplýs-
ingum, sem félagsskapinn varða. Og þá ekki siður margt
fallið í gleymsku um starfsemi og bætti, sem láðst bef-
ir að skrá nokkuð um svo geymanlegt yrði. Og þó smá-
ræði kunni að sýnasl í svipinn, er nálega a 11 slíkt
mikilsvert — og dýrmætara en sjóðir og fastir
munir — sé litið til komandi tíma.
Jafnframt þessu ber og að líta á það, að eftir 5 ára
bil er ungmennafélagsskapurinn 25 ára á landi hér. Og
verður þá vart bjá því komist, að sambandið gefi út