Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1925, Blaðsíða 24

Skinfaxi - 01.09.1925, Blaðsíða 24
104 SKINFAXI pór, er hann fór iil Utgarða-Loka. pað má lesa hana eða segja lítt þroskuðnm börnum, þau hlýða sögunni hugfangin og löngun þeiri'a vex í því að fræðast og nema, svo létt er frásögnin og æfintýrarik. Séum við á unglingsaldri og viljum læra móðurmál okkar, getur varia fegri fyrirmynd en sögu þessa eða aðra vel valda kafla úr fornsögum. En fulltíða fólk les til þess að læra af því, það vill finna eitthvað, sem hefir gildi fyrir lífið, og umhugsunarefni verða ærin í þessari sögu. pór var máttarins guð, hann vildi ryðja jötnum og meinvættum af vegum manna, hann reiddi hamarinn hart og hlífðarlaust og sást ekki fyrir, en hamfarirnar reyndust þar illar til umbóta, sjálfur varð bann undan að láta og þótti slæm erindislokin. Hér kemur fram það sem er staðreynd á okkar dögum, að illa gefst ójöfn- uður, því að drottinn er ekki i storminum. Ein er sú saga i Njálu, sem mjög hefir snert hugi manna, hana kann hvert barn á íslandi; það er saga Gunnars, er hann reið sekur að heiman og leit til hlíð- arinnar. Hvað veldur því, að saga þessi er svo þjóð- kunn? pví er auðsvarað. Hún hefir verið skýrð og lesin vek Jónas Hallgrímsson kvað hana í hug og hjörtu allra íslendinga svo rækilega, að þess er enginn kostur að gleyma henni, en Jónas orti ekkert um það, sem Kol- skeggur sagði við þetta sama tækifæri. pó eru orð Kol- skeggs engu ómerkilegri en Gunnars. ]?á er Gunnar vildi að Kolskeggur hyrfi aftur með sér, mælti hann: „Hvárki skal ek á þessu níðask ok engu öðru þvi er mér er lil trúað, ok mun sá einn hlutr verða, at skilja mun með okkr.“ Margsinnis höfðu þeir bræður barist hlið við hlið; aldrei hafði Kolskeggur hikað við að hætta lífi sínu Gunnars vegna, aldrei hafði þá greint á um neitt fyr en þarna, en þegar Kolskeggur fann að Gunnar vildi ekki efna það, sem hann hafði heitið vin- um sínum og gekk á gerða sætt, þá þóttist hann finna að bt’óður sínum væri ekki bjargandi. Hægt mun að

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.