Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1925, Blaðsíða 7

Skinfaxi - 01.09.1925, Blaðsíða 7
SIÍINFAXI 87 inu sem sjálfseignarstofnun á þessu ári. Skuld skólans verður þá færð i Söfnunarsjóð Islands og sýslan tekur ábyrgð á henni gagnvart sjóðnum með bakábyrgð þeirra 20 manna, sem nú bera ábyrgð á lánum skól- ans. Ekki skal því neitað, að betur væri, að skólinn væri skuldlaus, þegar sambandið afhendir hann, en þess ber að gæta, að hann hefir upphitun, sem ekkert kostar og er það meira virði en skuldunum nemur. Ennfremur á hann nú þegar eignir í bókum, kenslu- áhöldum o. fl., sem nemur alt að 5 þús. krónum, og svo verður vel frá skuldunum gengið. Alt annað sem sambandið hefir unnið fyrir menn- ingarmál héraðsins er smærra. Á öðru starfsári sínu 1916 byrjaði það að beitast fyrir bættum póstgöngum í héraðinu. Skipulag á póstgöngum í austurhluta sýsl- unnar hefir verið fráleitt. Aðalpóstafgreiðslan er á Grenjaðarstað, 4 km. til hliðar við aðalveg sýslunnar og alllangt frá miðju héraðsins. pangað gengur auka- ]>óstur frá Húsavík, einkahöfn austursýslunnar, í veg fyrir aðalpóstinn á austnrleið, sem tekur þann hluta Húsavíkurpóstsins, sem á í Laxárdal, Mývatnssveit og lengra austur, en póstur í Reylcjadal og Bárðardal og vestur biður þangað til hann kemur til baka. pá kem- ur aftur póstur frá Húsavík í veg fyrir aðalpóst, og verður þá eftir og bíður næstu ferðar sá póstur, sem á í austursveitirnar. S. ]?. U. vildi fá póstafgreiðsluna færða í Einarsstaði eða Breiðumýri, sem eru á kross- götum í miðju héraði. þangað skyldi póstur ganga vikulega frá Húsavík. Milli aðalpóstferðanna hugðust ungmennafélögin að dreifa honum út um sveitirnar. Póstleiðin yrði um aðalvegi sýslunnar. Allur póstflutn- ingur um héraðið yrði þannig mildu greiðari og þó ekki dýrari. petta hefir fengið eindregið fylgi sýslu- nefndar og hngsandi manna í pingeyjarsýslu nema í næsta nágrenni Grenjaðarstaða, en aðallega hefir mót- staðan verið af hálfu prestsins þar, sem póstafgreiðsl-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.