Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1925, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.09.1925, Blaðsíða 4
84 SKINFAXI Miðlung og Fullsterk. Hefir nú þegar allslór sveit efni- legra manna vaxið upp úr skauti þingeysku ungmenna- félaganna, og þó komið eigi alllítill kyrkingur i þann gróður, vegna óviðráðanlegra orsaka. III. Stofnun „Sambands þingeyskra ungmennafélaga“ hafði eigi þau áhrif á starfsemi félaganna heima fyrir, sem straumhvörfum mætti valda. En með henni hefst sameiginleg stai’fsemi þeitTa. Nýtt land var numið og lagt við liið gamla. Fyrsta framkvæmdamál Sambandsins var íþrótta- námskeið, er það stóð fyrir á útmánuðum 1915. Kenn- ari var Guðm. Kr. Guðmundsson, íþróttamaður í Reyltjavik, og kendi hann 38 námssveinum. Siðar um vorið stóð sambandið fyrir íþróttamóti og héraðshátíð á BreiðumjTÍ. Sást þá árangurinn af starfi G. Kr. G. og sambandsins. Mun það hafa verið glæsilegasta hér- aðshátið, sem lialdin liefir verið í pingeyjarsýslu. pessa byrjun var þó frekast að skoða sem próf á því, hvers sainliandið væri megnugt. Að vísu var hér með liafið starf saml)andsins fyrir íþróltalíf héraðsins. En íþróttamálið hefir aldrei verið aðalmál þess, heldur miklu meir mál hvers félags heima fyrir. Sambandið hefir skoðað það sitt hlutverk, að örfa þá starfsemi fclagsdeilda sinna, en heldur eigi meira. pað hefir tvis- var staðið fyrir íþróttanámskeiði síðan, 1915 (1922 og 1925), tvisvar fyrir íþróttamóti (1917 og 1919) og leik- völl hefir það gert á Breiðumýri. En annað hefir það eigi fyrir íþróttirnar gert svo teljandi sé. Aðalmál samhandsins liafa verið menningarmál hér- aðsins. pegar á fyrsta aðalfundi þess var rætt um að stofna alþýðuskóla í héraðinu, og fékk það mál ein- dregið l'ylgi á fundinum. Áður hafði málið verið rætt í sumum félögunum, einkum ungmennafél. Efling í Reykjadal, en ekkert á unnist vegna samhandsleysis

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.