Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1925, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.09.1925, Blaðsíða 23
SKINFAXI 103 hafa þeir oft sagt niðjum sínum frá því, sem þá gerð- ist, niðjarnir hafa hlustað hugfangnir, og ærin urðu tilefni að bæta nokkru við fræðaíorðann, þvi að öldin var viðburðarík innanlands, og liitt var lika mikilsvert, sem farmenn fræddust um úti í heimi, er þeir voru i víking eða kaupförum, heimsóttu fræga frændur sína og gerðust handgengnir konnngum og jörlum. Iþróttastarfsemi, lcikir og þingferðir fornmanna var vel fallið til þess að bera sögurnar um land alt. Strjál- býlið og vetrarkvöldin löngu hafa lijálpað til þess að sálda þær og festa þær í minnum manna. Enn fremur hefir liið frjálslega kirkjulíf Islendinga fyrir og um Rit- öld orðið sögunum ómetanlega mikils virði, það hefir aukið þær að skáldlegri fegurð og veitt þeim mikið af lista.gildi. Hér hefir verið fátt eitt talið af öllum hinum mörgu öflum, sem ofið hafa íslendingasögur, en það er auð- séð af öllu, að þær eru mikillar ættar. pær hafa ekki verið ritaðar í launaskyni, heldur orðið til fyrir andans þörf eða þegar fræðimenn, skáld og rithöfundar voru knúðir af æðra aí'li til þess að tala, þvi hafa þær orðið lífsdögg á íslenskum þj(>ðarmeið, og má sá maður varla heita íslendingur, sem ekki hefir lesið þær. pað hefir verið sagt, að þreyttur hugur geti orðið leiður á öllu nema lestri íslendingasagna. petla er hið mesta sannmæli. Stillinn er víða fagur, þróttmikill og mærðarlaus, og efnið oft stórfenglegt og áhrifamikið. pó eru sögurnar dular af kostum sínum eins og flest snildarverk eru, þær verða að athugast itarlega ef njóta skal þeirra að fullu. Við getum lesið þær sein börn, unglingar og fullorðnir menn, og altaf liafa þær eitt- livað að bjóða, sem er við hvers manns hæfi, þær eru frjósamar eins og íslensku túnin og ótæmandi sem liafið. Myndir þeirra af mannlifinu eru sigildar eða ævai’andi, þær blikna aldrei þó aldir líði. Margt er þessu til sönnunar, tökum t. d. söguna af

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.