Skinfaxi - 01.09.1925, Page 29
SKINFAXI
109
einhvern bækling til upplýsinga og minningar. Er á
þesskonar riti allmikil þörf, þvi að fráteknum hinum
góða smá-bæklingi, sem Guðm. Daviðsson, þáverandi
sambandsstjóri skrifaði „Um Ungmennafélag lslands“
1915 og' nú er orðinn of garnall og nær ófáanlegur, er
ekkert yfirlit til, sem veiti almennar upplýsingar
um ungmennafélög og starfsemi þeirra. Slikt skrif,
sem að visu mun ekki geta orðið stórt, þarf að vera
sem allra besl við hæfi, en það má því að eins verða
að þau gögn öll, sem flest og greinilegust, er ungmenna-
félagsskapinn varða frá byrjun séu fyrir höndum.
þegar eg flutti mál þetta á sambandsþinginU, var
það tilætlun min, að bvetja til rækilegra a ð>-
g e r ð a i því að safna og geyma vandlega allra þeirra
upplýsinga er til kunna að vera um stofnun og starf-
semi hvers einasta ungmerinafélags. Svo og fjórðunga
og héraðssambanda, og þar með alls sambandsins í
heild. Mundi þá tiltækilegt að semja útdrátt úr þeim
upplýsingum er benta þætti.
Söfnun þessara gagna og félagsfróðleiks, og verndun
bans mætti vera á ýmsan hátt. J>ó myndi það einna
tryggasta leiðin, eins og tillagan frá sambandsþinginu
gerir ráð fyrir, að bver héraðsstjórn liafi eftirlit með
því í sinu héraðssambandi. Héraðsstjórnirnar annað-
hvort leggi málið fyrir héraðsþingin (þær sem ekki
hafa þegar gert það) til nánari yfirvegunar, ellegar Jner
fyrirskipa félögunum beinlínis um aðgerðir og tilhög-
uu í þessu efni.
Stjórn hvers félags ætti að leggja málið fyrir félags-
fund einn eða fleiri. Félagið gæti siðan falið stjórn sinni
eða einhverjum úr henni, ellegar hverjum öðrum fé-
laga, er hæfastur þætti að safna saman og gegnum-líta
alt það er félagið ætli af þessu tagi. Ennfremur að skrá
í fáum dráttum það sem menn kynnu að vita um for-
tið eða starfsemi félagsins, og eigi væri áður skrifað.
Stjórnin sæi svo um geymslu þessa eða ábyrgðist hana