Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1926, Page 8

Skinfaxi - 01.03.1926, Page 8
8 SKINFAXI skera þar úr. En til þess er ekki aðeins nóg sérmentun, eins og þarf til þess að rækta land, eða vera prestur, :svo að eg taki tvö dæmi, er nærri liggja, heldur þari' almenna mentun, mentun og þekkingu í ýmsum grein- unx þjóðfélagsniálanna og mannlífssviðanna. Og nú er eg komihn að því, ungu og efnilegu bænda- efni, sem mér virðist vera ljóður á þeirri stétt íslensku þjóðarinnar, sem þér munuð teljast til í framtíðinni, íslensku bændastéttinni, að eg lxygg að segja megi, að hún sé ekki nógu gagnmentuð, liafi of einskorðað sjón- arhorf, of þröngan sjóndeildarhring og of litla getu til að taka þann þátt í menningarstarfi þjóðarinnar alment, sem hún vegna fjölmargra góðra kosta sinna er sjálfkjörin til. Mig langar þvi til að gera þá kröfu til yðar, eða minna yður á það á þessum nýju og merki- legu tímum, sem framundan eru í íslensku þjóðlífi, þar sem þér eigið að skipa vandasöm og vandskipuð rúm, að yður ber að láta ekki sitja við þá þekkingu og þroska, sem þér hafið öðlast, heldur auka að miklunx mun, og ekki aðcins á sviði búfræðinnar — mér ligg- ur við að segja miklu fremur á hinum almennu þj(’)ð- lífs og mannlífssviðum — því að þér verðið ekki aðeins kallaðir til þess að rækta ásinn, sem bíðiu-, heldur að vaka yfir og stjórna þjóðlifinu með viti og þekkingu. Og rétl er i því sambandi að minnast þess, að íslensk menning hefir löngum þióast best og dafnað fyrir að- stoð þeiri'a manna, er kynst liöfðu siðum, menningu og sjónarhorfum erlendi'a mentaþjóða.. Mér virðist því að framtíðarmenn íslensku þjóðarinnar megi ekki vei’a heimalningar. pað er líka sagt, að heimskt sé heima alið barn. Ef eg skil i'étt hið besta, sem frarn liefir komið með vestræmnn þjóðum síðan ái'ið 1914, þá er það fólgið í þvi, að halda fram rétti hjartans og náttúrunnar. pað or eins og Rousseau hinn frakkneski sé endurborinn, en meginboðorð lxans var fólgið í þessum alkunnu orð-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.