Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.1926, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.03.1926, Blaðsíða 23
SKINFAXI 23 r Islenskar þjóðsögur. Yfir þjóðsögúnum okkar gömlu hvílir heillandi töfraljómi, sem hverjum þeim cr kunnur, er lesið hefir hækur þessar með atliygli. Sá ljómi er endurskin þeirr- ar sólar, sem lýsti upp moldarkofana þegar grútartíran var útbrunnin og skammdegisnóttin sat að völdum. J?að veit enginn, hve mikið við eigum þjóðsögunum okk- ar að þakka. J?ær eru ótaldar kvöldvökurnar, sem þær hafa verið sveitafólkinu til ánægju og um leið til gagns; en sá, sem veitir ánægjustundir gefur meira en hinn, sem kastar smápeningum á torgið fyrir almúgann. — pjóðsögurnar hafa verið ótæmandi brunnur yrkisefna fyrir skáld og listamenn. pó munu þær mestu hafa komið til leiðar þegar þær voru lesnar á kvöldvökun- um í sveitunum. Vetrar töngu vökurnar voru öngum þungbærar, er við söng og sögurnar söfnuðust föngin unaðar. Svo kveður Ólína skáldkona og munu margir geta tekið undir orð hennar. í hverjum hól er fult af huldufólki, misjafnlega góð- gjörnu, eins og gerist og gengur i mannheimum. Ást og hatur Imldumeyjanna er engin hálfvelgja. par er ekkert reykvikst „fjöll“ eða „fornemmelse“ á ferð- inni. — A nýársnótt er gleði mikil og glaumur í álf- heimum. Og ekki var þá altal' fýsilegt að sitja eftir heima á bæjunum til að verja þá, þegar allir aðrir fóru til kirkju. Sumstaðar l)ar svo við að sá, sem eftir var heima, fanst dauður morguninn eftir þegar komið var frá kirkjunni. En orsökin var sú, að einhverjir sam- viskulausir huldumenn höfðu tekið bæinn með Bessa-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.