Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.1926, Blaðsíða 40

Skinfaxi - 01.03.1926, Blaðsíða 40
40 SKINFAXI um sið. par geta félögin átt landsheimili. par gætu þau haldið aðalfundi sína, og tekið þátt i hátiðahöld- um, ef framkvæmdar verða tillögur Björns pórðarson- ar um það mál. Hér liefir verið minst á helstu tillögur, sem fram hafa komið gagnvart hátíðahöldum á pingvöllum og framtíð þcirra, og getið um fátt af mörgu, sem ætla má að ungmennafélagar geti lagt til þeirra mála. Ungmennafélagar þurfa að fylkja sér fast og einhuga um pingvallamálið. pau þurfa að ræða það. ítarlega í hverju félagi um land alt, á komandi vetri, samþykkja tiilögur um það á liéraðsþingum og bera þær fram á Sambandsþingi U. M. F. I., sem á að halda vorið 1927 og ætti að liá á pingvöllum. G. B. Örnefni. í 4. hefti Skinfaxa s. 1. á. er orðsending frá sambands- stjórn, þar sem hún víkur að tillögu siðasta sambands- þings í örnefna-málinu, og hvetur til að farið sé að sinna því og undirbúa fyrir næsta sambandsþing. Mér dettur því i hug að biðja Skinfaxa fyrir nokkr- ar línur um þelta mál. En það verður að mestu leyti orðrétt tekið upp úr Geisla, félagsblaði ungmennafé- lagsins Dagrenning, er eg ritaði í um málið, veturinn 1924. Samkvæmt ósk minni var málið svo flutt á síðasta sambandsþingi af fulltrúa héraðssambands ungmenna- félaga Borgarfjarðar, búfr. Ara Guðmundssyni frá Skálpastöðum, og er eg honum þakklátur fyrir flutn- ing þess. Einnig þakka eg sambandsþinginu fyrir hinar ágætu undirtektir er það. fékk þar, og gefur það góðar vonir

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.