Skinfaxi - 01.03.1926, Síða 16
16
SKINFAXI
glímusýning í T u rnhalle n, stærsta leikfimishúsl
borgarinnar. Áður en sýningin hófst, atlmguðum vér
glímusvæðið. Var þar upphækkaður pallur og breidd-
ar þar á dýnur eins og tíðkast við grísk-rómveska glimu.
Létum vér ryðja þessu burtu, en glímdum á heru gólf-
inu. Aðsókn var mikil að þessari sýningu. Sýningum
var liagað þannig: Fyrst voru öll lielstu brögð glim-
unnar sýnd og varnir við þeim. Líka var útskýrt i*æki-
lega, hvað teldist bylta í glímunni. Auk þessa höfðum
vér bækling með oss, skrifaðan á nýnorsku, sem skýrði
frá helstu atriðum glimunnar. Var hann og mikill styrk-
ur fyrir áhorfendurna til þess að geta fylgst hetur með
í íþróttinni. pvi næst glímdi einn við alla og allir við-
einn. Hver lota stóð yfir i rúma mínútu.
Áhorfendurnir virtust fytgjast allvel með i glímunni
og klöppuðu óspart fyrir velteknu bragði eða góðri
vörn.
Á undan sýningunni hélt Eirik Hirth kennari ræðu.
(Hirth var einn liinna norsku ungmennafél. er komu
hingað i heimsókn 1914). Að sýningunni lokinni héll
Jóhann Blytt kaupmaður snjalla ræðu fyrir frændþjóð-
inni á íslandi. Að siðustu var hrópað margfalt húrra
fyrir glímuflokknum.
Seinna um kveldið var slegið upp veislu mikilli í
stærsta samkomuhúsi ungmennafélaganna, „Gimli“.
Var þarna fjölmenni mikið. par á meðal marg-
ir Islendingar, sem J?á voru staddir i Björgvin. Yfir
borðum voru ræður fluttar, margar og snjallar. Flutti
Blytt kaupm. þróttmikið kvæði, er hann liafði sjálfur
orkt, þar í var þetta erindi:
„Vise de vil oss — Kampglade —
gammel idrott glíma. —
Fast de holder
Fædrenes arv.“