Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1926, Page 18

Skinfaxi - 01.03.1926, Page 18
18 SKINFAXI stjórans, ekki síður en þegar vér ókum eftir Kamba- veginum, er vér fórum austur á Eyrarbakka. Komurn tii Nordheimssilnd kl. 8 l/2 um kveldið. Nordheims- sund liggur við Harðangursfjörðinn. Undirlendið þar er aðallega dalverpi, sem gengur upp frá firðinum. Fjallshlíðarnar eru allbrattar, en mjög skógi vaxnar. þarna í dalnum eru snotur bændabýli umvafin blóm- görðum og trjálundum. par er nokkur' akuryrkja. — Næsta dag fréttum vér af stóru ungmennafélagsmóti, sem væri haldið á Franmesi, sem er skamt frá Nord- heimssund. Fórum vér þangað. pessi samkoma var haldin innanhúss og var þar uin 1200 manns. Fór þar fram söngur og ræðuhöld. Meðal þeirra sem töluðu var Castberg þingmaður. — Talaði bann um pólitíkst ástand i ríkinu. Sýndi liann fram á, að þar væri um alls- konar sundrung að ræða. Hann virtist bera mikið traust til ungmennafélaganna. Hann gat þess fagurlega, að liver einstaklingur ætti að vera sjálfum sér trúr og tryggur sínu eigin heimili og sannur gagnvart sínu eig- in föðurlandi. par talaði og Gullvág ritstjóri, Gule Tid- ende. Er hann ákafur málmaður og hefir mikill styrr staðið um hann nú síðustu árin. Gat hann þess að Norð- menn ættu sem mest að laga málið eftir Færeysku, en ekki að gera það sænskt eða danskt. pá skýrði formaður nu'itsins frá því, að hér væru þau undur á ferðinni að nokkrir íslendingar væru þar staddir, og bauð bann oss velkomna þangað. Stóðum vér þá upp i þakklætisskyni, og dundi þá við lófatak úr öllum salnum. pá var blásið i lúðra: „Yderst mod Norden lyser en ().“ Morguninn eftir, kl. 11 héldum vér sýningu á Fram- nesi. Hafði verið slegið upp trépalli til þess að glíma á, og var þak yfir. Kom það sér vcl, þvi að mikil rign- ing var þennan dag. prátt fyrir óhagstætt veður var

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.