Skinfaxi - 01.03.1926, Blaðsíða 31
SKINFAXI
31
gagnólík áhrif á menn eí'tir hugarfari þeirra. — —
B jarfsýni — trú á 1 í f i ð, m e n n i n a og liina
huldu framtíð, — breytir öllum áhyggjum og sorgum
í þroskameðul, en b ö 1 s ý n i ð bægir burtu geislum
ijóssins.-----
Yið þekkjum það öll, að illgresið vill taka birtu og
næringu frá plöntunum, og þess vegna reynum við að
uppræta það. Dimmar og daprar hugsanir eru illgresi
hugans, — því ekki að reyna að uppræta þær. pvi leyf-
um við þeim að kæfa plöntur gleðinnar og bjartsýnis-
ins. — Ef tunnu er hvolft út á blómum skrýddan hlað-
varpann á vordegi, þá verður á skömmum tíma grasið
undir henni gnlt og visið. Blómin drúpa og grasið ligg-
nr máttvana, af þvi birtuna vantar. Eitthvað líkt fer
þeim manni, sem lokar huga sinum með sínum eigin
dimmu hugsunum. Hugur hans verður Ijósvana eins
og grasið undir tunnunni.
Við gerum áreiðanlega of lítið að því að rækta hug-
ann. Bægja burtu dimmum hugsunum en rækta þær
björtu. Dapurlegar bugsanir mega ekki hreiðra sig í
huganum, þá er bölsýnið á næstu grösum.
Öll höl'um við veitt því eftirtekt, hve fagurt sólar-
lag vekur hjá okkur angurbtiðar og háleitar hugsanir.
Fagurt sólarlag felur í sér göfgandi og þroskandi feg-
urð. Eg held þessi áhrif standi í sambandi við ást okk-
ar á sólinni — ljósinu. Við erum bljúg og tilfinninga-
næm, af þvi að sólin er að kveðja okkur. — Ástin lýsir
sér ætíð heitast á skilnaðarstundunum.
En eg þarf ekki að vera að minna ykkur á þetta.
]?ið vilið eins vel og eg, live ljósið er ykkur lcært. J?að
þarf ekki að minna á ástina. Hún segir lil sín sjálf.
En það er annað sem við þurfum stöðugt að hafa hug-
l’ast, að ljós sálarinnar dofni ekki, eða deyi, i striti
hversdagslífsins. — Við verðum að gæta þess, að eiga
alt al' eitthvað sem okkur er kært, —- eitthvað, sem
gefur eldsneyti í sálarlífið, — ást á lmgsjón, —