Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.1926, Side 35

Skinfaxi - 01.03.1926, Side 35
SKINFAXI 35 sitt 868 ár, og margir mikilhæfustu menn þjóðarinnar vildu ekki annað heyra, en að Alþingi yrði háð á þing- völlum, þá er það var endurreist. Tómas Sæmundsson ritaði áköf eggjunarorð um þetta mál, þótt hann væri þá lagstur á banabeð, og Jónasi Hallgrimssyni fanst það helst hugfró eftir lát Bjarna, að hann þurfti ekki að lifa við þá þjóðarskömm, að sjá Alþingi háð i Reykjavík. Svo mjög voru hugir þeirra merku manna og margra annara bundnir við þennan fomhelga stað, þó að aðrir réðu meiru um, hvar þingið var sett. A pingvöllum hefir verið sannkallaður þjóðskóli um margra alda skeið. ]?ar liefir mátt sjá þjóðlíf vort í fjöl- breyttastri mynd. J>ar hefir allan þjóðveldistímann og eflaust miklu lengur, verið hægt að sjá og læra meira og fleira en völ var á annarsstaðar. par hefir margsinn- is verið kastað teningnum um örlög hinnar íslensku þjóðar. Mætti þvi ætla, að hún myndi þann stað, sem svo margar merkilegar minningar eru bundnar við. 1930 verður, sem kunnugt er, 1000 ára afmæli Al- þingis, og um leið liins íslenska þjóðfélags. Hefir verið rætt og ritað um, að skylt sé þjóðinni að balda veglega hátíð á pingvöllum það ár. þó hafa rithöfundar og ræðumenn verið furðu hljóðir um þetta mál, svo merki- legt sem það er, og margir ætla að minna hafi verið gert til þess að undirbúa hátíðina en þurft liefði að vera. !?að hafa verið valdir menn til þess að semja sögu Al- þingis, og á hún að vera komin út fyrir þjóðhátíðar- árið. Lika hefir dóms- og' kirkjumálaráðuneytið skipað þá Matthías ]?órðarson þjóðmenjavörð, Geir Zoéga landsverkfræðing og Guðjón Samúelsson Iiúsameistara í nefnd lil þess að athuga og semja tillögur um, hverj- ar framkvæmdir og ráðstafanir sé nauðsynlegt að gera á þhngvöllum og í nágrenninu í framtíðinni, eu þó sér- staklega fyrir árið 1930. pingvallanefndin hefir nú gef- ið út ítarlegt nefndarálit, og verður það eflaust rætt á yfirstandandi Alþingi. Eru tillögur nefndarinnar að

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.