Skinfaxi - 01.03.1926, Qupperneq 36
36
SKINFAXI
mestu um nýjar byggingar, sem hún telur að þurfi að
reisa á þingstaðnum fyrir þjóðhátiðina, og um breyt-
ingar á húsum þeim, sem þar eru fyrir. Lika telur
nefndin nauðsynlegt, að ríkið fái meiri ráð en það hel'-
ir yfir nágrenni pingvalla. Litið eða ekkert talar nefnd-
in um, hvernig hátíðahöldum skuli haga, enda hefir víst
ekki verið til þess ætlast, því að gert hefir verið ráð
fyrir, að fleiri nefndir yrðu kosnar lil að sjá um liin
ýmsu störf, sem þarf að vinna vegna hátiðarinnar. En
ekki eru nefndir þær enn kjörnar, og þykir mörgum
framkvæmdaleysið ískyggilegt.
Björn ]?(')rðarson, hæstarjettarritari, liefir ritað merki-
legar greinar um þjóðhátiðahöld Islendinga. Vill hann
að sjálfsögðu, sem fleiri aðrir, láta vanda senr best til
afmælishátíðarinnar, en telur líka nauðsynlegt að ping-
vellir verði notaðir í framtíðinni sexn þjóðhátíðarstað-
ur, annaðhvort á hverju ári eða með vissu árabili. —
Leiðir hann rök að því, að þetta muridi þjóðinni mikill
menningargróði. Gerir hann ráð l’yrir, að ungmenna-
félagar bæði vilji og geti unnið allmikið fyrir þetta
merkilega þjóðernismál; munu flestir honum samdóma
um, að svo ætti og mætti verða.
Guðmundur Finnbogason flutti hér erindi fyrir
skömmu um pingvallahátíðina, og hefir nú birt það
í „Andvara“. Telur hann að þjóðliátiðin verði dómsdag-
ur, sem bajði erlendir og innlendir menn haldi yfir þjóð-
inni, munu flestir taka undir það, að þetta sé hið mesta
sannmæli. Guðmundur ber fram margar eftirtektar-
verðar tillögur um, hvað beri að gera vegna hátiðar-
innar. prjú atriði telur liann nauðsynlegust. pað fyrst,
að semja mjög vandað og ítarlegt rit á erlendu máli,
— helst ensku — um land og þjóð, Vill hann að rit
þetta verði allvíðtækt; á það að lýsa sem flestu úr
menningarlífi þjóðarinnar, bæði að fornu og nýju. pá
vill hann að tekin verði kvikmynd af náttúru landsins
og þjóðlífi okkar i sem flestum greinum, og vandað