Skinfaxi - 01.03.1926, Page 39
SKINFAXI
39
styrktu bestu glímumenn sína til þess að iðka glimur
næslu ár, svo þeir geti orðið héruðum sinum og alþjóð
til sóma á þingvöllum. Ekki mundi við eiga, að þreyta
kappglímu á þjóðhátíðinni þannig, að einn glímdi við
alla og allir við einn; það mundi taka of langan tíma,
þar eð ætla má, að keppendur yrðu margir, og kappið
um að halda velli verður stundum svo mikið i slíkum
glímum, að iþróttin nýtur sín ekki vegna þess. Glímu-
sýning mundi best við eiga, þar getur leikni glímumanna
notið sin að fullu. þjóðlegt yrði það, og mundi verða
áhrifamikið fyrir þá, sem sjaldan eða aldrei hafa glím-
ur séð, að glímd yrði hændaglíma á hátiðinni.
Mikils mun við þurfa, til þess að alt fari skipulega
fram á pingvöllum 1930. Mundi mörgum þykja vel
við eiga, að flokkur ungmennafélaga kæmi þar fram
sem sjálfboðaliðar og gerðust hátíðar-verðir, yrðu þeir
þá að sjálfsögðu að hera sameiginlegt merki ungmenna-
félaga. —
í hinum ágætu ritgerðum, sem Björn pórðarson hefir
samið um hátíðahöld á pingvöllum, leggur hann til
að reistar verði þar búðir í fornum stil, og í nefndar-
áliti pingvallanefndar segir svo: „Fornmenjavörður
hefir áformað að reisa við og tjalda að sumrinu eina
af hinum gömlu búðartóttum frá 18. öld, og að hyggja
að nýju eina húð stóra, svo sem helst má ætla, að verið
hafi húðir fornmanna.
Komið iiefir ungmennafélögum í hug að reisa búðir
á pingvöllum, eina eða fleiri, ef leyfi fæst lil þess.
Eru þau byrjuð á að safna fé til að standast kostnað
þann, sem af því leiðir. Ekki er óhugsandi, að ung-
mennafélagar fengju rétt til að reisa aðra hverja af
húðum þeim, sem getið er um i nefndaráliti ]?ingvalla-
nefndar. En hvað sem því liður, þá er hitt víst, að varla
gætu ungmennafélagar gcrl þarfara verk en að reisa
sér samkomustað á pingvöllum. Mætti hann vel vera
gerður af torfi og grjóti, og tjaldaður innan að forn-