Skinfaxi - 01.03.1926, Page 43
SKINFAXI
43
)?að er því áskorun mín til allra ungmennafélaga um
land alt, að taka höndum saman og gera gangsköraðþví,
að á næstu árum verði öllum örnefnum sem þekkjast,
safnað, bæði í bygðum og óbygðum, og samdar ná-
kvæmar skrár yfir þau, með skýrum lýsingum á þeim,
og afstöðu þeirra innbyrðis og lil þeirra landshluta sem
næstir liggja, svo bægt sé fyrir ókunnuga að þekkja
þau eftir lýsingunni.
Einnig þarf að skrásetja allar þær sagnir, sem menn
þekkja að tengdar eru við örnefnin, og það þótt menn
viti ekki sannsögulegt gildi þeiri'a, en þess bæri þá altaf
að geta i upphafi sagnarinnar, bvort bún væri sann-
söguleg eða þjóðsaga.
Fyrir hvert býli ætti að vera sérstök skrá, er byrjaði
á örnefnalýsingunum heima við bæinn, en endaði á
þeim örnefnum sem fjærst lægju.
Upp úr býlaskránum ætti að semja skrá fyrir hvem
hrepp fyrir sig, og byrja á þingstaðnum og fara svo
boðleið um breppinn.
Fyrir sýslu bverja ætti að semja sameiginlega skrá,
upp úr breppaskránum.
Býlaskrárnar ættu að fylgja býlunum, en hreppa-
skrárnar ættu að geymast með bókum breppanna, sem
eru í vörslum hreppstjóra, og vera eign hreppanna.
Sýsluskrárnar ættu að geymast á rikisskjalasafninu, og
vera eign ríkisins.
Við fyrsta álit mætti virðast svo, að vel mætti kom-
ast af með býlaskrárnar eingöngu, eða breppaskrár eða
sýsluskrár, en við nánari athugun sést, að til þess að
•skrárnar komi að scm mestum notum, þurfa þær lielst
að vera eins og áður greinir.
Með býlisskrána i höndum hefir nýi ábúandinn skil-
yrði til þess að þekkja örnefni býlis síns, en glatist skrá-
in, sem ætíð getur komið fyrir, er fljótlega hægt að end-
urnýja bana eftir breppsskránni. Finnig getur farið
svo, að hreppsskrá glatist, og er þá hægt að fá hana