Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.1926, Side 47

Skinfaxi - 01.03.1926, Side 47
SKINFAXI 47 Mörgum liugsandi Eyfirðing svíður það sárt, að sjá þessar síðustu skógarleifar héráðsins eyðast ár frá ári. öft hefir K. H. skógfræðingur talað um, að nauðsyn- legl væri að friða skóglendið með girðingu og eftirliti trúrra manna. pó hefir ekkcrt orðið af framkvæmd- um og féleysi jafnan borið við, enda hafa fjárframlög til skógræktar verið næsta lítil hingað til. Nú er von um að þetta lagist, því að stjórnarráðið leggur til, að veitl verði meira á þessu þingi til skógræktar en gert hefir verið hingað til. Ef sú tillaga verður samþykt, má gera ráð fyrir að Leyningshólaskógur hafi eitthvað gott af því, einkum þar sem Ungmennafélag Akureyrar hefir nú fengið ráð yfir skóginum, og ætlar sér að sjá um, að hann eyðist eklci meir en orðið er. En auðvitað krefst það þess, að nokkru verði kostað til lians af almannafé. Kalla má að þrjár sýslur í Norðlendingafjórðungi séu nú gjöreyddar að trjágróðri, þó mun hver þeirra eiga einn skógarblett. þeir eru sem síðustu ættliðir deyj- andi kynslóðar og eiga í vök að verjast. Sárt er til þess að hugsa, að menning eða ómenning hinnar 20. aldar standi yfir moldum þeirra, en svo mun fara, ef ekki verður bráðlega hafist handa og unnið að umbótum. G. B. Skagfirðingar- Minna hefir kveðið að starfsemi ungmennafélaga í Skagafirði um alllangt skeið en víða annarsstaðar. þó hefir þetta breyst nokkuð síðastliðin ár. Félögum hefir fjölgað, þau hafa myndað héraðssamband, þó ckki hafi það enn gengið í U. M. F. I. Héraðssamb. efnir til skemtunar fyrir sýslubúa á vorin, sýnir íþróttir og hef- ir þá margt fleira með höndum, svo sem títt er á slík- um samkomum. Lika lögðu allmargir ungmennafélag- ar fund með sér s.l. sumar á Hegranesþingstað hinum

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.