Skinfaxi - 01.12.1927, Qupperneq 13
SKINFAXI
173
„Er það gleði andskotans,
umboðslaun og gróði,
fjármunir þá fátæks manns
fúna í ríkra sjóði.“
Enginn veit hvernig hugsunarhætli þeirra manna er
varið, sem vinna svona verk. Enginn veit hvernig reikn-
ingsskil þeirra verða metin á efsta degi. En þeir sem
hugsa með alvöru um taumlausa fjárgi’æðgi maura-
])úkanna hljóta að minnast þess, sem Kristur sagði:
„Hægra verður úlfaldanum að ganga gegnum nálar-
auga en ríkum manni inn í himnaríki“.
Ungmennafélögin eru ))ianniiðarfélög, sem segjast
byggja starf sitt á kristilegum grundvelli. þau verða að
vinna ltappsamlega að þvi að bæta hugsunarháttinn.
pau verða að láta það liverfa úr sögunni, sem margir
kalla níðingsverk, þó það kunni að vera heimilt að
lögum. Mannræktin er oftast erfið og seinunnin, en hún
er lika þýðingarmesta verkið, sem hægt er að vinna á
jörðu.
práinn.
Stúfar um mælskulist.
i.
Ræðulist var ein höfuðnámsgrein í skólum Róm-
verja og Forngrikkja. J?essum menningarþjóðum var
það ljóst, að mikið skorti á um uppeldi unglinga þeirra,
er tungustamir voru og stirðmálir. J?ær gerðu því það,
sem unt var til Jæss að bæta málfar þeirra og auka
oi'ðfimi.
-Etla mætti að nútíðarmönnum — sem vfirleitt verða
teljast yfirborðsmenn og málskrafsmiklir •— væri
l’etta einnig ljóst, og rynni þeim því kapp i kinn að