Skinfaxi - 01.12.1927, Síða 21
SKINFAXI
181
vonir. Blettirnir okkar urðu víðast hvar til mikillar
byrði, en litillar gleði.
Svona liðu árin.
Almenningur Iiristi höfuðið. „Svona fara allar fram-
kvæmdir ungmennafélaganna,“ sagði liann, en enginn,
hvorki einstakir menn, félög eða landsstjórnir íreyst-
ust þó til að framkvæma það, sem þeir ámæltu ungm.-
fél. fyrir að heykjast undir.
Arin liðu og alt upp að 20, frá stofnun U.M.F. pá
kemur út i Búnaðarritinu ritgerð eftir Metúsalem Stef-
ánsson, er hann nefndi „Hugur og hönd“. Sú ritgerð
var síðar sérprentuð og send U.M.F. um land alt. petta
rit varð þeim hin mesta happasending, því það vakti
áliuga þeirra á þessu máli að nýju og liina djörfustu
trú á fullum sigri ef með liagsýni væri unnið. parna
lærðum við, að við eigum að byrja á börnunum, strax
í bernsku þeirra og steppa þeim ekki aftur, og að
við eigum að kenna þeim hinar réttustu og bestu að-
ferðir til allra verka, svo að þau sjái og þreifi á og
skilji til fulls, hversu nauðsynlegt það er að vita, og
að vita rétt. En þó á umfram alt að hjálpa þeim til að
finna starfsgleðina sjálfa.
A sambandsþingi U.M.F. i júni s.l., var þetta mál
rætt allitarlega, og greindi menn ekki á um orð eða
atvik. parna var um gamalt og kært stefnuskráratriði
að ra'ða, og var því tekið tveim liöndum. pað er víst,
að ungm.fél. standa óskift að þessu máli, en láta sér
gömut víti að varnaði verða, og fara nú að engu óðs-
lega. pað þarf vel að atlrnga hvernig best verður að
þessu unnið liér i landi, hvaðan liægt verður að vænta
fjárstyrks, hvernig séð verður fyrir öruggum mark-
aði o. fl. Leitað verður fyrir um þetta og aðferðir reynd-
ar á litlu svæði fyrst, áður en slept verður út um tandið.
Félögum er óhætt að bíða rólegum, það kemur röðin
að þeim, þegar teið er fundin og reynt, að hún er
sæmilega fær.