Skinfaxi - 01.12.1927, Page 23
SKINFAXI
183
og e. t. v. víðar, og er stundir líða, í þennan sameigin-
lega sjóð er þátttakendur mynda.
6. gr. Iíennari skal vera einn fyrir hvert félag ef
unt er, annars fyrir 2—3 félög ef þau eru skamt hvert
frá öðru; gjalda þau þá lilutfallslega laun kennarans
7. gr. Áður en kennari tekur að sér þetta starf, skal
honum vel ljós andlega hliðin á þessu máli, ekki síður
en hin verklega. þess vegna skal halda námskeið með
lcennurum svo fljótt sein þarf, eða strax og þátttöku-
félögum fjölgar nokkuð.
I ræktunarnefnd U. M, F. í.
Guðrún Björnsdóttir. Guðbjörn Guðmundsson.
Sigurður Greipsson.“
1 sumar er leið var að eins byrjað á þessu starfi í
tveim ungmennafélögum. Undirtektir og skilningur var
í besta lagi, þar sem til var leilað. Tími til undirbún-
ings var stuttur, enda var byrjunin ekki umsvifamikil,
víðasthvar fenginn hluti úr heimagarðinum. Á þrem
bæjum voru nýir garðar gerðir, og á einum bæ rutt
land og brotið til nýyrkju og sáð i höfrum auk garð-
ávaxta (rófur, kartöflur).
þessi lilli vísir gekk ekki illa, vöxlur alstaðar sæmi-
legur. Besta kartöfluspretta var lijá Iijalta pórðarsyni,
15 ára pilli á Æsustöðum í Mosfellssveit. Vegið var
undan tveimur grösum og reyndist 1900 gr.
Sveinn Jónsson, 15 ára piltur í Helgadal í Mosfells-
sveit átti stærstar næpur. Hans stærsta næpa var
1325 gr.
Iíarl Andrésson á Hálsi í Kjós, 15 ára piltur, átti
þyngstu gulrófuna, 1200 gr. Hann ól einnig upp
stærsta blómkálshöfuðið, en það var 280 gr. pað var að
vísu ekki ýkjastórt, en þess ber að gæta, að þvi var
sáð úti í maílok, en tekið upp fyrir 25. sept.
Á Æsustöðum var hreðkum tvisáð og náðu bestu
sprettu í bæði skiftin.