Skinfaxi - 01.12.1927, Qupperneq 25
SKINFAXI
185
Nefndarálit.
Heimilisiðiiaðarsýning mun verða einn liður þjóðliá-
tíðarinnar 1930, og ekki hvað þýðingarminstur.
Sýning þessi þarf mikinn undirbúning og vakandi
athygli og áliuga alþýðu manna um land alt, ef hún á
að fara sæmilega úr hendi. Er það tvímælalaust, að
ungmennafélög verða að eiga hér mikinn lilut að, ef vel
skal vera. Viljum við nú heita sem kröftuglegast á alla
ungmennafélaga að vinna af fullri ósérplægni að und-
irbúningi sýningarinnar, hver i Iiéraði sinu og félagi.
Skal hér Ibent á nokkur störf, er á ríður að öll U. M. F.
vinni:
1. Að vekja áliuga liagra manna og kvenna á því, að
vinna sem besta muni til sýningar, og sjá um að góðir
iðnmunir, sem til eru eða til fallast, séu ekki teknir til
ríotkunar eða skemdir.
2. Að fá fólk U1 að vinna sem mest úr íslensku efni
og með íslensku sniði. Saumur, tréskurður og önnur
vinna, þótt vel sé ger, hefir að eins liálft gildi, ef fyrir-
myndin er útlend.
3. Iðnsýningar í smáum stíl þarf að halda i sem
flestum og helst öllum sveitum landsins og þorpum
á vori komandi, eða, ef það er ekki hægt, þá vorið
1929. Frá smásýningum þessum þarf svo að senda valda
muni til sýninga, er lialda verður í hverri sýslu lands-
ins sama vor, eða vorið 1929. Frá sýslusýningunum
verður svo sent úrval á landssýningu 1930. U. M. F.
verðaaðsjá umað sýningar þessar ko m-
i s l á, og standa fyrir þeim, þar sem ekki er þegar
fullkomlega trygt að aðrir geri það.
Heimilisiðnaðarnefnd U. M. F. I.
Guðrún Björnsdóttir. Aðalst. Sigmundsson.
Sigurður Eyvindsson.