Skinfaxi - 01.12.1927, Síða 27
SKINFAX
187
Helgi Valtýsson
fimtugur.
Fæstir af þeim niörgu ungmennafélögum, sem þekkja
Helga Yaltýsson, munu liafa gert sér nokkra grein fyrir
aldri hans, svo ungur sem hann er í anda og að ytri
vallarsýn. pað kom því flestum á óvart er það kvisað-
ist nokkurra manna í milli, að brátt ætti hann fimtugs-
afmæli, en það var 25. okt. síðasta.
Að kveldi þess dags hélt U. M. F. Velvakandi honum
samsæti i Iðnó og sátu það milli 40 og 50 félagar. Form.
félagsins mælti fyrir minni heiðursgestsins og afhenti
lionum að gjöf frá félaginu veglega bókahillu, gerða
af Ríkarði Jónssyni af miklum hagleik og hugviti. Hún
er 160 sentímetra löng og eru sinn hvoru megin við
miðflötinn, sem er nokkru hærri, greypt geysthlaup-
andi hreindýr og í baksýn austfirsk stuðlabergsfjöll, en
af Austfjörðum er Helgi ættaður. — Undir er greypt
með höfðaletri: „Eldr es beztr með íta sonum.“--------
„Hjarðir þat vitu nær heim skulu renna.“ Á miðflöt-
inn er greypt æskugyðjan Iðunn, sitjandi á íslensku
birkitré, með eplin í nægtahorni, sem vex út úr stofni
trésins. En á umgerð flatarins er greypt með höfðaletri:
„Helgi Yaltýsson fimtugur — 1877 — 25. okt. — 1927
— frá U. M. F. Velvakandi“. Á bríkunum er Pegasus
og eru vængir hans bókastoðirnar. — Mun Skinfaxi
bráðlega flytja mynd af grip þessum. —
Fyrir minni tslands talaði Arngrimur Kristjánsson,
en Rikarður Jónsson fyrir minni konu Helga, Björn
Birnir flutti honum heillaósk frá U. M. F. Afturelding
en Steindór Björnsson frá Bandalagi Tóbaksbindindis-
félaga íslands. Margar fleiri ræður voru þar fluttar, m.
a. hélt Jóhannes Jósefsson íþróttakappi snjalla og
kjarnyrta ræðu og flutti kvæði það, sem birt er hér í
blaðinu. Var þarna margt sagt, mikið sungið og kveð-