Skinfaxi - 01.12.1927, Side 28
188
SKINFAXI
skapur góður. Stóð hóf þetta til miðnættis og á eftir
skamma stund stiginn vikivaki undir stjórn Helga, en
að lokum fylgdu allir heiðursgestinum heim.
Fjöldi heillaskeyta bárust Helga, m. a. frá ung-
mennafélögum, héraðssamböndum, stjórn U. M. F. í.
o. fl., og vissu þó næsta fáir um heiðursdag þcnnan, af
þeim fjölda vina, sem hann liefir eignast víðsvegar um
landið.
Helgi hefir jafnan látið málefni ungmennafélaganna
til sín taka og hvorki sparað fé né fyrirhöfn til að veita
þeim að málum. Hann var einn af stofnendum U. M.
F. Reykjavíkur 1906 og Sambands U. M. F. 1 1907.
Skinfaxa stofnaði hann 1911 og gaf út uns liann fór
utan 1913. Öll þessi ár var hann í fyrirlestraferðum
milli félaganna víðsvegar um landið og vakti ættjarðar-
ást og liugsjónir hjá íslenskum æskulýð með áliuga
þeim og eldfjöri, sem liann á í ríkara mæli en flestir
aðrir. — Strax eftir að hann kom heim aftur 1920 fór
hann að taka þátt í störfum félaganna og þegar U. M.
F. Reykjavíkur var lagt í rústir en U. M. F. Velvak-
andi stofnað 1925, var liann einn af stofnendum þess.
— Helgi Valtýsson er orðinn hálfrar aldar gamall. En
það varðar engu liversu árin eru mörg, þvi hann er og
v e r ð u r altaf æskunnar maður — yngsti karlinn og
yngsti ungmennafélaginn — í anda.
Og þess vegna flytja nú íslenskir æskumenn og ung-
mennafélagar honum hlýjar kveðjur og kærar þakkir
fyrir alt hans starf á liðnum árum, með heitri ósk um
að fá að njóta krafta hans um langa framtið.
Guðbjörn Guðmundsson.
ATH. Vegna mjög mikilla anna í prentsmiðjunni
var ekki hægt að senda liefti þetta fyrir nýár. Eru kaup-
endur heðnir að aísaka þetta.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN