Skinfaxi - 01.03.1931, Side 18
62
SKINFAXI
menningarmeðal æskulýðsins. Þeir eru sannfærðir um
það, ef íþróttakennslan væri meiri og fullkomnari i
skólum vorum, en nú er, þá yrði þróttur og þjóðarbrag-
ur ólíkt betri. Og i þvi sambandi má minna á það aga-
leysi, og eg vil segja stjórnleysi, sem oft er bér á manna-
mótum. Það er eins og við kunnum eigi að blýða. Hver
vill fara sínu fram, án þess að taka tillit til annarra
eða beildarinnar. í þetta reka erlendir menn fljótt aug-
un, og þykir ]>að vera þjóðarlöstur, sem von er. Með
íþróttahreyfingunni eykst skipulag og agi. íþróttaiðk-
endur verða fljótt sannfærðir um ágæti skipulagsins,
samvinnunnar og sjálfsagans. —
Þetla leikmót er eitt af þeim íþróttamótum, sem
eiga að hjálpa til þess, að benda mönnum á nytsemi
hollra íþrótta, og kenna mönnum að færa sér þær í
nyt. —
Aldrei liefir verið haldið fjölmennara leikmót liér á
landi, en þetta mót, og ber það ótvírætt vott um vax-
andi áhuga og menningu iþróttamanna vorra. — -—
Ben. G. Waage.
Noregsför ungmennafélaga.
Eftir Gnðbjörn Guðmundsson.
IV.
Fimmtudaginn 7. ágúst fórum við á fætur kl. 6 og
kl. 7 erum við komin af stað á járnbraut. Eftir einn-
ar stundar akstur göngum við úr lestinni, stígum á
skip og siglum í 2 tíma eftir Tinnvatni. A þessu vatni
ganga farþegaskip og flutningaskip, sem taka beilar
járnbrautarlestir og eru þessi skip, ásamt járnbraut-
inni milli Notodden og Rjúkan, eign Norsk-Hydro. —
Á stöðinni í Notodden kom til móts við okkur Ragúel